Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
MO RGU N F U N D U R I S AV I A
FA R Þ E G A S PÁ
K E F L AV Í K U R F LU GVA L L A R
2 0 1 9
Isavia boðar til morgunfundar þann
29. janúar næstkomandi á Hilton
Reykjavík Nordica kl. 8.30.
Á fundinum verður farþegaspá
Keflavíkurflugvallar fyrir árið 2019
kynnt og rætt um mikilvægi flugvallarins,
flugrekstrar og öflugs samstarfs
í íslensku efnahagslífi.
Boðið verður upp á kaffi og létta
morgunhressingu.
Skráning fer fram á
www.isavia.is/morgunfundur
Dagskrá
— Björn Óli Hauksson,
forstjóri Isavia, setur fundinn
F A R Þ E G A S PÁ 2 0 1 9
— Hlynur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs
Isavia á Keflavíkurflugvelli
STERKARI SAMAN
— Pétur Óskarsson,
framkvæmdastjóri Íslandsstofu
FYRIRSPURNIR ÚR SAL
Fundarstjóri er Elín Árnadóttir,
aðstoðarforstjóri Isavia.
SKRÁNING
ISAVIA . IS/MORGUNFUNDUR
HILTON REYK JAVÍK NORDICA
29. JANÚAR KL . 8 .30
Útlendingastofnun hefur bætt Mol-
dóvu á lista sinn yfir örugg upp-
runaríki. Þetta kemur fram á vef-
síðu stofnunarinnar. Þar segir að
Moldóva sé aðili að öllum helstu al-
þjóðasamningum um vernd mann-
réttinda eins og t.d. Genfar-
sáttmálanum, Mannréttindasátt-
mála Evrópu, alþjóðasamningi um
borgaraleg og stjórnmálaleg rétt-
indi og samningi SÞ gegn pynd-
ingum og annarri grimmilegri með-
ferð. Þá séu mannréttindi almennt
virt í Moldóvu og ekki séu stund-
aðar þar kerfisbundnar ofsóknir
gegn fólki.
Á vefsíðunni segir að Útlendinga-
stofnun hafi kannað aðstæður í
Moldóvu og fyrir liggi að allar for-
sendur séu fyrir hendi til að skil-
greina landið sem öruggt upp-
runaríki. Þar segir einnig að þó að
umsækjandi komi frá öruggu upp-
runaríki þýði það ekki að umsókn
hans verði sjálfkrafa synjað.
Moldóva á
lista yfir
örugg ríki
Aðili að mannrétt-
indasamningum
Útlendingastofnun Moldóva hefur
nú bæst á lista öruggra ríkja.
Meirihluti svarenda í viðhorfs-
könnun sem Samgöngustofa gerði í
lok síðasta árs telur hvers konar
notkun farsíma meðan á akstri
stendur hættulega. Í könnuninni
kemur einnig fram að 53% að-
spurðra telja sig sem ökumenn
verða fyrir mestri truflun í umferð-
inni af völdum farsímanotkunar
annarra ökumanna.
Þá sögðu allir aðspurðir það
hættulegt að skrifa skilaboð á far-
síma meðan á akstri stendur. 25%
viðurkenndu engu að síður að hafa
gert það, töluvert hefur þó fækkað í
þeim hópi sem sagðist sekur um
þetta, en árið áður voru þar 33% að-
spurðra.
Samgöngustofa, Sjóvá og Strætó
hafa nú hrundið af stað átakinu
Höldum fókus, í fjórða sinn. Að
þessu sinni er lögð áhersla á þær
áhættur sem við tökum í lífinu.
Segir í fréttatilkynningu frá þess-
um félögum, að það sé aldrei áhætt-
unnar virði að nota farsíma eða
annars konar snjalltæki undir stýri.
Í Bandaríkjunum sé talið að 25%
allra bílslysa verði af völdum notk-
unar farsíma og engin ástæða til að
telja að ástandið sé betra hér á
landi.
Fram kemur að í herferðinni
tengist fólk með Instagram-
reikningi sínum en gervigreind hafi
í samstarfi við Google verið notuð
til að sérsníða sögulínu að lífsstíl
hvers og eins. Þannig fái notandinn
upp sögu sem tengist vináttu, fjöl-
skyldu, gæludýrum eða ferðalög-
um, allt eftir því hvað er mest áber-
andi í hans „samfélagsmiðlasjálfi“.
Farsímanotkun hættuleg
Ljósmynd/Thinkstock.com
Hætta Fólk gerir sér grein fyrir að notkun farsíma undir stýri er hættuleg
Margir viðurkenna að hafa sent SMS undir stýri
Tvö tilboð bárust í smíði nýbygg-
ingar fyrir Byggðastofnun á Sauðár-
króki, en tilboðin voru opnuð á
þriðjudaginn.
Friðrik Jónsson ehf. bauð
568.864.075 kr. sem var nánast sama
tala og kostnaðaráætlunin, sem var
568.771.490 kr. K-TAK ehf. bauð
575.179.623 kr. Framkvæmdasýsla
ríkisins yfirfer nú tilboðin.
Hið nýja hús Byggðastofnunar
mun standa í Sauðármýri 2 á Sauð-
árkróki. Byggingin verður 998 fer-
metrar á tveimur hæðum og með
kjallara undir hluta hússins.
sisi@mbl.is
Tvö tilboð í
nýbyggingu
Byggðastofnun Hin nýja bygging.