Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 50
Hönnun á heimsmælikvarða
Danska hönnunarfyrirtækið Ferm
Living þykir á heimsmælikvarða.
Vönduð Nýja línan býður upp á úrval
vandaðra og fallegra viskustykkja.
Sjóðheitt frá Ferm Living
Reyklituð Skurðarbrettin eru sér-
lega fögur og mikil heimilisprýði.
Vel heppnuð viðbót Nýi liturinn
er algjörlega æðislegur.
Það allra nýjasta frá Ferm Living var kynnt nú á dög-
unum með tilheyrandi tilhlökkun, en fyrirtækið er
þekkt fyrir að vera með nýjustu strauma og stefnur á
hreinu.
Helstu fréttirnar eru þær að Ripple Glass-vörulínan
verður nú fáanleg í reykgráum lit, en glösin og karafl-
an slógu í gegn og hafa hlotið hin ýmsu verðlaun.
Einnig voru kynntir forkunnarfagrir hitaplattar með
látúnsáferð, ný mynstur í viskustykkjum og ógnar-
fögur skurðarbretti svo fátt eitt sé nefnt.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Nýverið komu fyrstu laktósafríu
kryddostarnir á markað, en alls
komu þrjár mismunandi gerðir í
búðir. Ostarnir henta einstaklega vel
í matargerð og eru algjört sælgæti
ofan á kex. Hér er uppskrift að
girnilegum, einföldum og fljótlegum
forrétti eða smárétti.
Í uppskriftina þarft þú:
kryddost með hvítlauk frá Örnu
kex eða baguette
pekanhnetur
ferskt rósmarín, saxað
hunangssíróp
Hunangssírópið getur þú útbúið
með eftirfarandi hráefnum:
2 msk. agavesíróp, fljótandi
2 msk. hunang
óífuolía
Skerið ostinn niður í hæfilega bita
og leggið á kexið eða niðursneitt
baguette.
Saxið pekanhneturnar niður og
stráið yfir ostinn.
Hrærið öllu fyrir sírópið saman og
dreypið yfir allt.
Stráið rósmaríni yfir og berið
fram.
Þessa girnilegu uppskrift útbjó
Berglind hjá Gulur Rauður Grænn
& Salt.
Kex með hvítlauks-
osti, pekanhnetum
og hunangssírópi
Bylting Ljóst er að nýju laktósa-
lausu kryddostarnir frá Örnu
breyta tilveru margra.
Morgunblaðið/Berglind Guðmundsdóttir
Ómótstæðilegt Hver fær staðist dásemdar-
osta með heimagerðu hunangssírópi?
„Þetta fyrsta námskeið sem við
förum af stað með er hugsað sem
grunnnámskeið þar sem við kenn-
um hluti á borð við að steikja fisk
og þetta helsta sem allir verða að
kunna.“ Aðspurður segist Jón Arn-
ar fá fyrirspurnir reglulega frá
vinum sínum sem séu hálf handa-
lausir í eldhúsinu. „Svo ætlum við
að taka þetta skrefinu lengra og
bjóða upp á alls konar skemmtileg
námskeið á næstunni, meðal ann-
ars ketónámskeið sem haldið verð-
ur með Gunnari Má Sigfússyni,
ketómeistara með meiru, Matur og
fótbolti þar sem við stúderum fót-
boltaveitingar en Hjörvar Hafliða
verður með mér í því og svo fullt
af öðrum skemmtilegum nám-
skeiðum,“ segir Jón Arnar og ljóst
er að það eru spennandi tímar
fram undan.
Matreiðslunámskeið
fyrir karlmenn
Þetta er hugsað fyrir gæjana sem kunna eiginlega
ekki neitt en eru kannski nýfráskildir og þurfa að
geta bjargað sér og gott betur,“ segir Jón Arnar Guð-
brandsson sem stendur á næstunni fyrir fjölbreytt-
um námskeiðum á veitingastað sínum, Pure Deli.
Sniðugt Nauðsynlegt
er að kunna réttu
handtökin í eldhúsinu.