Morgunblaðið - 15.04.2019, Page 1
M Á N U D A G U R 1 5. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 89. tölublað 107. árgangur
VALSKONUR
KOMNAR Í
ÚRSLIT
VEITURAFMAGN Í STAÐ
DÍSILRAFSTÖÐVA
SEX ÍSLENSK
NÚTÍMALEIKRIT
LEIKLESIN Í PARÍS
RAFSTRENGUR UPP Á KJÖL 14 HÖFUNDAR VIÐSTADDIR 28ÍÞRÓTTIR 24
Aron Þórður Albertsson
Teitur Gissurarson
„Við höfum ekki náð nægilega góðum árangri þrátt
fyrir að umtalsvert fjármagn hafi verið sett í þetta.
Það er áhyggjuefni,“ segir Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra um þann vanda sem upp er
kominn í heilbrigðiskerfinu vegna biðlista eftir lið-
skiptaaðgerðum á hné og
mjöðm. Hún segir ástand-
ið vissulega ekki við-
unandi, það verði að batna
og unnið sé að lausnum í
málum. Mun Svandís eiga
fundi um þetta með
stjórnendum Landspítal-
ans.
Greint var frá því í
Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins að um þúsund
manns bíði nú eftir að-
gerð. „Það er erfitt að
komast að annarri niður-
stöðu en að ríkið sé í
ákveðinni herferð gegn sjálfstætt starfandi sér-
fræðingum í heilbrigðisgeiranum,“ segir Hanna
Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar
og áheyrnarfulltrúi í velferðarnefnd Alþingis.
Lögum samkvæmt greiðir ríkið fyrir aðgerð er-
lendis ef sjúklingar bíða lengur en í þrjá mánuði
eftir aðgerð. Ríkið greiðir hins vegar ekki fyrir að-
gerðir sem framkvæmdar eru á einkasjúkrahúsi
hérlendis, Klíníkinni, þrátt fyrir að slíkt sé talsvert
ódýrara. „Mér finnst algjörlega útilokað að standa
svona að málum. Heilbrigðisráðherra verður auð-
vitað að skýra af hverju hún vill eyða tvöfaldri upp-
hæð erlendis fremur en að framkvæma aðgerð-
irnar hér heima. Þetta er í hennar höndum,“ segir
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks og 2. varaformaður velferðarnefndar.
Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingar
og nefndarmaður í velferðarnefnd, tekur í svipaðan
streng. „Þetta er virkilega vond staða sem kallar á
að auknir fjármunir séu settir í málaflokkinn. Það
þarf að styrkja opinbera heilbrigðisþjónustu,“ seg-
ir Guðjón.
Ástandið
verði að
batna
Svandís sögð í herferð
gegn einkaframtakinu
MVerið að drepa einkaframtakið »4
Biðlistar
» Um þúsund
manns bíða nú
eftir aðgerð.
» Vitað til þess
að fólk taki lán
til að eiga fyrir
liðskiptaaðgerð-
um hér heima.
Kyn, aldur,
uppruni, starfs-
reynsla og
menntun eru
þættir sem hafðir
verða til hlið-
sjónar við inn-
töku nemenda í
félagsvísindum
við Háskólann á
Akureyri á næsta
skólaári. Vegna
mikillar aðsóknar að HA verða
fjöldatakmarkanir í öllum deildum
skólans næsta haust – og í félags-
fræðunum undir fyrrgreindum for-
merkjum. „Okkar meginmarkmið
er að tryggja fjölbreytni nemenda-
hópsins og treysta þar með gæði
námsins,“ segir Þóroddur Bjarna-
son, brautarstjóri við HA. »6
Grípa til fjöldatak-
markana hjá HA
Þóroddur
Bjarnason
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik er á góðri leið með að
tryggja sér sæti í lokakeppni EM
sem fram fer í janúar á næsta ári. Ís-
land gerði jafntefli gegn Norður-
Makedóníu á erfiðum útivelli í
Skopje í gær, 24:24, þar sem Elvar
Örn Jónsson jafnaði fyrir Ísland þeg-
ar nokkrar sekúndur voru til leiks-
loka.
Þrátt fyrir að N-Makedónía hafi
unnið í Laugardalshöllinni í síðustu
viku þá eru þjóðirnar engu að síður
jafnar að stigum í undanriðlinum. Ís-
land á eftir að mæta Grikklandi ytra
og Tyrklandi heima í undankeppn-
inni. Vinni Ísland báða þá leiki er
sætið á EM 2020 gulltryggt en hvor-
ugt þessara liða er eins hátt skrifað
og það íslenska. » Íþróttir 25
Ljósmynd/Robert Spasovski
Mark Elvar Örn Jónsson í dauðafæri í
leiknum í gær en hann skoraði 5 mörk.
Elvar Örn tryggði
jafntefli í Skopje
Tíu fingra tjáning
í heitu pottunum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjóböðin á Húsavík, sem voru
opnuð síðasta haust, hafa gert
góða lukku og eru vinsæll við-
komustaður ferðamanna, ekki
síst meðal Íslendinga. Vatnið í
böðunum er steinefnaríkt og heil-
næmt og þess utan er ekki ama-
legt að flatmaga í vorsólinni í
pottunum, þaðan sem er ein-
staklega gott útsýni yfir hafið og
til hinna tilkomumiklu Kinnar-
fjalla. Að hætti landans eru svo í
pottunum stundaðar miklar rök-
ræður um málefni líðandi stundar
þar sem tilþrifamikil líkamstján-
ing með tíu fingrum er notuð til
að leggja áherslu á málflutning
og sjónarmið. » 11
Sjóböðin á Húsavík mjög eftirsótt
Fjölmiðlar um allan heim kepptust í gær við að
segja frá sigri næstsigursælasta kylfings allra
tíma, Tigers Woods, á Masters-mótinu á Augusta
National í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Er þar
um að ræða hið fyrsta af hinum fjórum árlegu
risamótum hjá körlunum í golfinu. Lauk þar með
langri bið Tigers eftir sigri á risamóti en hann
sigraði síðast á Opna bandaríska í júní 2008.
Tiger Woods er 43 ára og hefur á síðustu árum
gengist undir fjórar aðgerðir á baki. » Íþróttir 27
AFP
Ellefu ára bið lauk á Augusta
Tiger Woods náði vopnum sínum um helgina