Morgunblaðið - 15.04.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Hágæða sláttutraktorar frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nokkrir fundir á dagskrá
Mjólkurfræðingar og flugfreyjur Icelandair funda hjá sáttasemjara í vikunni
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Búið er að skipuleggja nokkra fundi hjá rík-
issáttasemjara í vikunni. Í dag verður viðræð-
um Samflots iðnaðarmanna og Samtaka at-
vinnulífsins haldið áfram, en aðilar funduðu
tvisvar í síðustu viku.
Að sögn Elísabetar S. Ólafsdóttur, skrifstofu-
stjóra ríkissáttasemjara, munu forsvarsmenn
Mjólkurfræðingafélags Íslands einnig mæta til
fundar síðar í vikunni. Auk fyrrgreindra funda
hefur viðræðum Flugfreyjufélags Íslands og
Icelandair verið vísað til ríkissáttasemjara og
ráðgert er að funda í dag.
Spurð um hvort búast megi við fundum í
Karphúsinu í páskafríinu kveður Elísabet nei
við. „Við erum ekki búin að bóka neina fundi í
fríinu og eins og staðan er núna gerum við ekki
ráð fyrir því,“ segir Elísabet.
Flugfreyjur í viðræðum frá áramótum
Að sögn Berglindar Hafsteinsdóttur, for-
manns Flugfreyjufélags Íslands, var ákveðið
að leita liðsinnis ríkissáttasemjara þegar ljóst
var að lausn væri ekki í sjónmáli. „Það var
sameiginleg ákvörðun að vísa deilunni til sátta-
semjara og fá aðstoð embættisins við úrlausn
deilunnar. Við munum taka mið af lífskjara-
samningnum í þessum viðræðum en svo eru
sérákvæði sem eiga við um flugfreyjur,“ segir
Berglind.
Spurð um hvort langt sé á milli aðila í deil-
unni segist hún ekki vilja gefa það upp að svo
stöddu. Það gefi þó augaleið að ekki sé leitað til
ríkissáttasemjara að ástæðulausu. „Við höfum
verið að hittast frá áramótum eða allt frá því að
samningar losnuðu og hefur vinnan verið mikil
og góð. Það var reynt til þrautar en við sáum
ekki fram á að geta leyst þetta okkur á milli,“
segir Berglind.
Að sögn Elísabetar Helgadóttur, fram-
kvæmdastjóra mannauðs hjá Icelandair, hafa
viðræður milli aðila gengið ágætlega. „Viðræð-
ur hafa staðið yfir frá því um áramótin og geng-
ið ágætlega. Aðstæður í flugrekstri eru mjög
krefjandi um þessar mundir og því mikilvægt
að finna leiðir í samvinnu við Flugfreyjufélagið
til að styrkja samkeppnishæfni félagsins. Við
höfum áður notast við atbeina ríkissáttasemjara
við gerð kjarasamninga,“ segir Elísabet.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Kristberg Snjólfsson og Ingimund-
ur H. Hannesson voru sýknaðir af
ákæru vegna brots á höfundalögum
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Þeir höfðu frá byrjun árs 2017 og
fram til ársins 2018 gert höfundar-
varið efni aðgengilegt almenningi
með því að selja og afhenda að-
gangskassa (IPTV) í gegnum Face-
book-síðuna „Internet sjónvarp“.
Ákæruvaldið hélt því fram að
með þessu væru þeir að koma
„kaupendum í áskrift hjá erlendum
aðilum þannig að kaupendur slíkra
aðgangskassa gátu gert ólögmæt
eintök af höfundarvörðu efni, án
heimildar, án þess að inna af hendi
tilskilið endurgjald til rétthafa og
án heimildar til endursölu á að-
gangi tekið á móti útsendingum
sjónvarpsstöðva“. Þar á meðal
stöðva eins og Sky Sports, BBC og
HBO.
Litið til dóms dómstóls ESB
Í dómnum kemur fram að ekki
hafi reynt á þetta álitamál fyrir ís-
lenskum dómstólum áður og var við
úrlausn þess litið til máls í dómstóli
Evrópusambandsins frá 26. apríl
2017. Héraðsdómur taldi rétt að
leggja heildstætt mat á fjölmörg at-
riði tengd sölu og markaðssetningu
aðgangskassanna og tæknilegan
búnað þeirra. Þótti ekki nægilega
upplýst um þessi atriði til þess að
sakfella, auk þess sem ákveðin at-
riði er varða refsinæmi verknaðar-
ins voru talin óljós og ósönnuð.
Sævar Þór Jónsson, verjandi í
málinu, segir að líkja megi IPTV-
aðgangskassanum við myndlykil
með línulegri og ólínulegri mynd-
miðlun. Stöð 2 hefur m.a. haft sýn-
ingarrétt á sumu af því efni sem
var þarna aðgengilegt ásamt öðrum
sjónvarpsstöðvum sem telja sig
hafa keypt sýningarréttinn á efni.
„Þetta er merkilegt hvað það varð-
ar því hingað til hafa þessar stöðvar
litið svo á að þær hafi einkaréttinn
til miðlunar eða sýningar þessa efn-
is,“ segir Sævar. Af þessum dómi
má álykta að sala aðgangskassa
eins og IPTV hér á landi geti ekki
talist brot á höfundalögum ein og
sér.
Höfundalög ekki brotin
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði tvo menn af ákæru um að
selja aðgangskassa með aðgang að erlendum sjónvarpsstöðvum
Það er ekki útlit
fyrir hvíta páska
þetta árið, að
sögn Birtu Lífar
Kristinsdóttur,
veðurfræðings
hjá Veðurstofu
Íslands.
„Það er ekki
mikið sem bendir
til þess að það
hvítni eitthvað.
Þetta er svona meira slyddukennt ef
það nær að kólna nógu vel,“ segir
Birta.
Spár segja til um að hlýjast verði
á norðanverðu landinu. „Það verður
úrkomulaust þar og eiginlega hlýj-
ast þar mestallan tímann,“ segir
Birta og jánkar því að það líti allt út
fyrir að fínasta ferðaveður verði yfir
páskana.
„Á miðvikudag, fimmtudag og
föstudag erum við að tala um suð-
lægar áttir, rigningu og súld um
sunnan- og vestanvert landið en
þurrt norðaustanlands. Á laugardag
er útlit fyrir að það kólni með suð-
vestanátt, það verða slydduél sunn-
an- og vestanlands en áfram þurrt
og bjart norðaustan til. Á páskadag
er útlit fyrir frekar hæga austlæga
átt og svona einhverja rigningu,
jafnvel slyddu frekar víða, en fyrir
norðan verður þurrt, jafnvel bjart.
Það eru einhverjar líkur á því og
hitastigið er frá einni, tveimur gráð-
um upp í sjö.“ ragnhildur@mbl.is
Rauðir en
ferðavænir
páskar
Úrkoma Snjórinn
verður víðs fjarri.
Besta veðrið á
norðanverðu landinu
Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu,
sem GAMMA styrkir, lýkur á morg-
un þegar níunda og síðasta umferðin
verður tefld. Sú áttunda fer fram í
dag.
Eftir sjö umferðir er Rúmeninn
Constantin Lupulescu einn efstur
með 6 ½ vinning. Á eftir honum
koma tíu skákmeistarar með 5 ½
vinning. Síðan koma einir 20 kepp-
endur með 5 vinninga hver. Þeirra á
meðal eru Íslendingarnir Jóhann
Hjartarson, Guðmundur Kjartans-
son og Hjörvar Steinn Grétarsson.
Ásamt nokkrum fleirum eru Sigur-
björn Björnsson, Dagur Ragnars-
son, Halldór Grétar Einarsson,
Bragi Þorfinnsson og Hannes Hlífar
Stefánsson með 4 ½ vinning.
Lupulescu
efstur í Hörpu
Vatnsdalur í Austur-Húnavatnssýslu ber nú nafn
með rentu. Miklir vatnavextir hafa verið í Vatns-
dalsánni síðustu sólarhringa og kemur þar til mik-
il sólbráð í 14 stiga hita, stífur vindur og heiðskír
himinn. Snjó í hvömmum, dölum og uppi á hálend-
isbrúninni tók mjög hratt upp við þær aðstæður
og af því helgast vatnavextir þessir. Í gær flæddi
vatn á stuttum kafla yfir veginn á móts við bæinn
Hvamm í dalnum austanverðum, en engar
skemmdir hlutust þó af. „Það er ótrúlegt hvað
snjór bráðnar hratt þegar viðrar eins og nú, og
væntanlega verður þetta vatn ekki lengi að
sjatna,“ sagði Höskuldur B. Erlingsson, lögreglu-
varðstjóri á Blönduósi, sem var á eftirlitsferð í
dalnum í gær. sbs@mbl.is
Vatnsdalurinn eins og fjörður yfir að líta
Ljósmynd/Höskuldur B. Erlingsson
Mikil snjóbráð í hlýindum nyrðra og Vatnsdalsáin flæðir langt yfir bakka sína