Morgunblaðið - 15.04.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Gisting fyrir stórfjölskylduna!
Frá kr.
99.995
m.v. 2 fullorðna
og 3 börn
Suites at the
Hollywood Mirage
ar
a.
2. júní
8 nætur
aaaa
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Fyrir menn sem hafa verið að fylgj-
ast með þessari vegferð þá held ég að
það sé erfitt að komast að annarri
niðurstöðu en þeirri að ríkisstjórnin
hafi síðastliðin ár verið í ákveðinni
herferð gegn sjálfstætt starfandi
sérfræðingum í heilbrigðisgeiranum.
Á því eru ýmsar birtingarmyndir en
ein þeirra sem er kannski hvað skýr-
ust er nákvæmlega þessi staða með
biðlistana og þær aðferðir sem heil-
brigðisyfirvöld beita þar. Það liggur
svo skýrt fyrir að aðrar og betri leiðir
eru færar.“
Þetta segir Hanna Katrín Frið-
riksson, þingflokksformaður Við-
reisnar og áheyrnarfulltrúi velferð-
arnefndar Alþingis, í samtali við
Morgunblaðið um þann vanda sem
uppi er innan heilbrigðiskerfisins
vegna biðlista í hnjá- og mjaðmaliðs-
skiptaaðgerðir.
„Þetta er opinber þjónusta“
Eins og fjallað var um í Sunnu-
dagsmogga um helgina bíða um þús-
und manns eftir aðgerð, þrátt fyrir
átak sem hófst vegna málaflokksins
fyrir þremur árum. Samkvæmt lög-
um mega sjúklingar fara til útlanda í
aðgerð ef þeir þurfa að bíða lengur
en í þrjá mánuði, og greiðir ríkið fyr-
ir. Ríkið greiðir hins vegar ekki fyrir
aðgerðir sem eru gerðar á einka-
sjúkrahúsi hérlendis, Klíníkinni,
þrátt fyrir að slíkt væri bæði hent-
ugra fyrir sjúklinga og ódýrara fyrir
ríkið.
„Yfirlýst markmið heilbrigðisyfir-
valda er að efla opinbera þjónustu,
en staðreyndin er sú að þetta er
greitt úr ríkissjóði og er því opinber
þjónusta,“ segir Hanna Katrín og
bætir við: „Það er bara verið að
drepa einkaframtakið til þess að efla
hið ríkisrekna.“
Þá nefnir hún að kerfið valdi
keðjuverkun, en sem dæmi hafi þær
stofnanir sem nú sinna umræddum
aðgerðum síður tök á að sinna öðrum
aðgerðum sökum anna.
Óásættanlegt ástand
„Það er allavega ljóst að við höfum
ekki náð nægilega góðum árangri
varðandi liðskipti, hvorki hné né
mjaðmir, þrátt fyrir umtalsvert fjár-
magn sem hefur sérstaklega verið
sett í þetta. Það er áhyggjuefni.“
Þetta segir Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra, spurð um málið.
Spurð hver sé ástæðan fyrir því að
ríkið hafi ekki samið við einkaaðila
um að sinna einhverjum af aðgerð-
unum segir Svandís: „Fyrst og
fremst vegna þess að þetta eru að-
skilin kerfi.“ Hún segir þurfa nýja
ákvörðun og nýtt fjármagn til þess að
semja við aðra en þá sem sinnt hafa
aðgerðunum innan opinbera kerfis-
ins. Bendir hún á að í ár hafi í fyrsta
skipti verið sett inn í kerfið varanlegt
fjármagn til að sinna biðlistavanda
vegna liðskiptaaðgerða. Hún segir
ástandið vissulega óásættanlegt og
að unnið sé að lausnum í málinu.
„Okkar heilbrigðiskerfi á að vera
þannig að það sé tryggt að þeir sem
eru í mestri þörf séu fremstir í röð-
inni.“
„Verið að drepa einkaframtakið“
Ríkisstjórnin í herferð gegn sjálfstætt starfandi sérfræðingum, segir Hanna Katrín Um þúsund
bíða eftir liðskiptaaðgerð „Höfum ekki náð nægilega góðum árangri,“ segir heilbrigðisráðherra
Hanna Katrín
Friðriksson
Svandís
Svavarsdóttir
Hönnuðurinn Harpa Einarsdóttir gengur hér svartklædd með
hvítan hund í bandi eftir ónefndri götu í Reykjavík þó áletr-
anir á vegg gefi til kynna að þau séu stödd erlendis. Hinar lit-
ríku myndir sem prýða bakgrunninn minna lesendur á að
heimurinn er ekki einungis svartur og hvítur. Hann er líka
bleikur, appelsínugulur og meira en það. Hann er marglitur.
Morgunblaðið/Eggert
Svarthvítir vegfarendur í litaglöðum heimi
Ragnhildur Þrastardóttir
Jón Birgir Eiríksson
Heimasíðan hluthafi.com biðlar nú til
almennings og fyrirtækja að leggja til
„lítilsháttar hlutafé“ í þeim tilgangi
að tryggja rekstur Wow air til fram-
búðar.
„Við teljum að ef við náum að safna
minnst 10-20 þúsund hluthöfum þá sé
best að stofna almenningshlutafélag
sem myndi fjárfesta í Wow air eða
nýju lággjaldaflugfélagi,“ segir á
heimasíðunni, sem Skúli Mogensen
hefur sjálfur sagt að hann tengist
ekki.
Fram kemur á síðu hluthafa.com
að umsjónarmaður hennar sé Friðrik
Atli Guðmundsson. Faðir hans, Guð-
mundur Yngvason, verkefnistjóri hjá
Sólhúsum ehf., kveðst vongóður um
að nægur áhugi sé fyrir áskrift svo að
stofnað verði félag um lággjaldaflug-
félag sem fjallað er um á fyrrnefndri
síðu. „Sólhús er verndari og kostar
áhugahópinn, þ.e.a.s. þennan hóp sem
kemur t.d. að gerð þessarar heima-
síðu,“ segir Guðmundur og tekur
fram að ekki sé sóst eftir stjórnarsetu
í nýju félagi, heldur styðji þeir aðeins
við framtakið.
Hann segir Sólhús reiða sig á flug-
samgöngur að miklu leyti, en félagið
er stofnað árið 2003 og er byggingar-
og leigufélag.
Eins og áður hefur komið fram
hyggst Skúli Mogensen, stofnandi og
fyrrverandi forstjóri Wow air, endur-
vekja rekstur flugfélagsins. Skúli og
aðrir lykilstarfsmenn WOW air leita
um þessar mundir fjármögnunar upp
á um 4,8 milljarða króna, til að standa
straum af upphafi rekstursins.
Einhverjir hafa sýnt áformum
Skúla áhuga en þar má nefna KEA-
hótel og Hreiðar Hermannsson, hót-
elstjóra Stracta Hotel á Hellu.
Óblandað lággjaldaflugfélag
Hreiðar segir í samtali við mbl.is að
nálgun Skúla sé heppileg.
„Þau hugsa þetta þannig að það
verði dreifður og fjölmennur hópur
kringum félagið. Ég hef hugmyndir
um að leggja þessu lið ef þetta verður
rétt lagt upp. Ef þetta er ekki gert
núna, þá verður það erfitt síðar.“
Hreiðar leggur áherslu á að skýrt
ætti að vera að hið nýja flugfélag
verði lággjaldaflugfélag.
„Við viljum hafa eitt gott félag eins
og Icelandair og síðan annað alveg
hreinræktað lággjaldaflugfélag.“
Sólhús leitar að hluthöfum
Leita til almennings í þeim tilgangi að reisa WOW air við
Ljósmynd/Skjáskot
Skjáskot Forsíða hluthafi.com.