Morgunblaðið - 15.04.2019, Blaðsíða 7
Loðna Þessi fannst í Englendinga-
vík í Borgarnesi og reyndist vera
16 cm löng. Aðeins hafði verið
kroppað í hana af fuglum.
Borgarnes | Þúsundir fugla hafa
undanfarna daga verið á sveimi í
Borgarfirðinum í leit að loðnu
sem kom inn fjörðinn fyrir
nokkrum dögum.
Mest er af sílamáfum og hettu-
máfum en einnig eru aðrir fuglar
þar á sveimi. Þetta er trúlega í
fjórða sinn síðan 2010 sem loðna,
og trúlega líka eitthvað af sand-
síli, hefur vaðið inn fjörðinn,
fuglum og fiskum til ætisauka.
Fréttaritari Morgunblaðsins
brá sér um helgina niður í fjöru í
Englendingavíkinni í Borgarnesi
og fann þar eina dauða loðnu
sem staðfesti, alla vega fyrir hon-
um, hvað hefur verið á ferðinni
inn fjörðinn að undanförnu og
aukið fuglalífið þar til mikilla
muna.
Sem kunnugt er varð loðnu-
brestur á þessari vertíð og út-
gerðin varð af milljarða króna
tekjum. Þó að einhver loðna hafi
ratað inn í Borgarfjörðinn þá er
það of seint til að nýta hana til
vinnslu.
Loðnan fundin í Borgarfirði
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Ætisleit Horft frá bryggjunni út til Borgareyja í særokinu sem gengið hef-
ur yfir undanfarna daga. Þúsundir fugla sveima yfir sjónum í ætisleit.
Þúsundir fugla á sveimi í leit að loðnu í firðinum
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Endursöluaðilar á landsbyggðinni: Jötunn vélar Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum - Bike Tours Grindavík
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæð-
inu sinntu alls um 100 verkefnum frá
því klukkan 17 á laugardag fram til
klukkan 5 á sunnudagsmorgun nú
um helgina. Mörg málanna sem upp
komu voru vegna fíkniefna eða ölv-
unar, svo sem að bílstjórar voru
stöðvaðir grunaðir um akstur undir
áhrifum. Þá var tilkynnt um konu í
annarlegu ástandi í miðborginni.
Reynt var að aðstoða hana við að
komast heim en fór svo að lokum að
hún var vistuð sökum ástands í
fangageymslu. Þá voru tveir hand-
teknir, grunaðir um líkamsárás.
Auk framangreinds bárust lög-
reglu margar tilkynningar vegna
óhappa sem hlutust af hvassviðrinu
sem gekk yfir landið aðfaranótt
sunnudagsins. Þannig losnuðu t.d.
þakplötur sem fóru á flug, rúða fór
úr glugga, fiskikör fuku og hurðir
losnuðu. Í nauðum sem af því hlutust
komu björgunarsveitarmenn gjarn-
an fólki til aðstoðar, fljótt og örugg-
lega. sbs@mbl.is
Fíkniefna-
mál, ölvun
og foktjón
Hundrað verkefni
á 12 klukkustundum
Morgunblaðið/Eggert
Lögregla Í hundrað horn að líta.
Fangaverðir í fangelsinu á Akureyri
hlupu fanga uppi sem reyndi að
strjúka þegar verið var að opna
fangelsið í gær. Fanginn komst út en
var ekki nógu snöggur til að komast
undan. Frá þessu var fyrst greint á
vef RÚV. Mun þetta vera fyrsta
strokið úr lokuðu fangelsi hér á landi
frá árinu 2012 þegar Matthías Máni
Erlingsson strauk af Litla-Hrauni.
„Þetta er eitthvað sem ég geri ráð
fyrir að honum hafi dottið í hug og
fundist góð hugmynd í nokkrar sek-
úndur. Það er ekkert sem bendir til
þess að þetta hafi verið sérstaklega
skipulagt enda gekk þetta ekki upp,“
segir Páll Winkel fangelsismála-
stjóri. Hann bendir á að eftirförin
hafi ekki verið löng.
„Þeir tóku strikið á eftir honum og
náðu honum þarna neðarlega í göt-
unni.“ Aðspurður segir Páll að sér sé
ekki kunnugt um brotaferil fangans
en hann sé ekki hættulegur.
ragnhildur@mbl.is
Hlupu uppi
strokufanga
á Akureyri