Morgunblaðið - 15.04.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Alþingi var í liðinni viku, einsog jafnan, önnum kafið við að
stimpla reglur Evrópusambands-
ins. Ein þeirra fjallar um skrán-
ingu raunverulegra eigenda lög-
aðila og í máli
ráðherra kom
fram að megin-
markmið með
lagasetningunni
væri „að tryggja
að ávallt séu til
réttar og áreið-
anlegar upplýs-
ingar um raun-
verulega eigendur svo unnt sé að
greina og koma í veg fyrir pen-
ingaþvætti og fjármögnun hryðju-
verka“.
Nú er vitaskuld mikilvægt aðhindra eins og kostur er
starfsemi svikahrappa og hryðju-
verkamanna og vonandi nást þau
markmið fram með fyrirhugaðri
lagasetningu. Það gleymist þó æði
oft þegar rætt er um raunveru-
lega eigendur að önnur hlið efna-
hagsreiknings fyrirtækja er ekki
aðeins samansett af eigin fé held-
ur einnig skuldum. Og skuldir
vega gjarnan þyngra en eigið féð.
Dæmi um þetta má sjá í sam-bærilegum reglum sem settar
hafa verið um raunverulegt
eignarhald fjölmiðla og eru ætt-
aðar úr aðlögunarvinnunni al-
ræmdu frá því fyrir nokkrum ár-
um. Þá voru settar reglur, og
meira að segja sett á fót heil
stofnun til að fylgja þeim og fleiri
reglum eftir. Ætlunin var að al-
menningur vissi hverjir ættu fjöl-
miðla, en á meðan skuldirnar eru
óþekktar er raunverulegt eignar-
hald sumra þeirra það einnig.
Þingmenn líta að vísu aðeins svoá að þingið sé stimpilpúði, en
þeir ættu þó að velta því fyrir sér
hvort nýja frumvarpið skilar meiri
árangri.
Hver er raunveru-
leiki eignarhalds?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Í þær fimm fiðrildagildrur sem Nátt-
úrufræðistofnun Íslands hefur starf-
rækt síðustu ár hafa alls komið 538.096
eintök. Fiðrildi af 17 ættum hafa kom-
ið í ljósgildrur vísindamanna og lang-
flest þeirra eru af ætt vefara, eða rúm-
lega 70%. Af einstökum tegundum
hefur mest verið af barrvefurum, tígul-
vefurum og grasvefurum.
Þetta var meðal þess sem fram kom
í erindi Erlings Ólafssonar skordýra-
fræðings um „fiðrildin fögru“ á árs-
fundi Náttúrufræðistofnunar sl. föstu-
dag. 24 ár eru liðin frá því að verkefnið
hófst, með vöktunarstöðvum á Kví-
skerjum og Tumastöðum. Mógilsá og
Rauðafell bættust við 2005 og Skógar
2006. Síðan hafa vöktunarstaðir nátt-
úrustofa bæst við og eru fiðrildi nú
vöktuð víða um land. Vöktun ársins
hefst á morgun, þriðjudag, er ljósin
verða kveikt í gildrunum. aij@mbl.is
538.096 fiðrildi í ljósgildrur NÍ
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Barrvefari Margir vefarar hafa lent í gildrum Náttúrufræðistofnunar.
Sautján ættir og flestar af ætt vefara
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Kópavogsbær fékk nýverið vottun á
því að bærinn uppfylli lífskjara- og
þjónustustaðal World Council on
City Data, WCCD, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
WCCD er stofnun sem heldur ut-
an um samanburðarhæfingar mæl-
inga sveitarfélaga á alþjóðavísu.
Í staðlinum eru 100 vísar, sem
segja til um félagslegan, efnahags-
legan og umhverfislegan árangur
sveitarfélaga. Kópavogur fékk plat-
ínuvottun fyrir að skila inn 97 vísum
af 100.
Í bæjarfélaginu er unnið að inn-
leiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun en
mælingar úr fyrrnefndum staðli
munu nýtast til að mæla framgang
innleiðingar heimsmarkmiðanna.
Kópavogsbær er einnig í samvinnu
við OECD um gerð mælikvarða sem
nýta má við innleiðingu heimsmark-
miðanna.
Um mælingarnar segir Ármann
Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs:
„Hjá Kópavogsbæ höfum við undan-
farin ár unnið markvisst að því að
bæta mælingar á ýmsum þáttum í
starfi sveitarfélagsins. Það nýtist
okkur til að fylgjast betur með ár-
angri af settum stefnum og mark-
miðum og gerir rekstur sveitarfé-
lagsins betri.“
Nálgunin til fyrirmyndar
Dr. Patricia L. McCarney, fram-
kvæmdastjóri WCCD, segir framúr-
skarandi að skrá 97 af 100 vísum og
bendir á að óháðir vottunaraðilar
hafi lofað vinnu bæjarins, nákvæmni
og gagnaöflun: „Nálgun Kópavogs-
bæjar ætti að vera borgum um heim
allan fyrirmynd að mati vottunar-
aðila,“ segir McCarney.
Kópavogur fær
platínuvottun
Léttir innleiðingu heimsmarkmiða
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson
Kópavogur Bæjarfélagið er fyrst til
að uppfylla staðalinn hérlendis.