Morgunblaðið - 15.04.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
2
2
6
RENAULT KANGOO
1,5 DCI, BEINSKIPTUR,
DÍSIL, 90 HESTÖFL,
Verð:2.411.290 kr. án vsk.
2.990.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT KANGOO RAFBÍLL
NÝ STÆRRI RAFHLAÐA - 33 KWH
UPPGEFIN DRÆGNI 180–200 KM**
Verð:4.090.000 kr.
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
tö
lu
r
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
/
**
S
am
kv
æ
m
tu
pp
ge
fn
um
tö
lu
m
fra
m
le
ið
an
da
um
dr
æ
gn
iv
ið
be
st
u
m
ög
ul
eg
u
að
st
æ
ðu
r
(W
LT
P
).
RENAULTKANGOO
Renault Kangoo er mest keypti sendibíll landsins.
Komdu í atvinnubíladeild BL og fáðu tilboð í nýjan Kangoo
www.renault.is
100% RAFMAGN
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Vegirnir hér á Vesturlandi koma æði misjafnlega und-
an vetri. Víða eru frostskemmdir og holur sem við fyllum
í. Sérstaklega hefur okkur fundist ástandið slæmt á
Kaldármelum og í Hnappadal. Fyrirbyggjandi viðhald
þarf að vera meira,“ segir Ásgeir Salberg Jónsson,
starfsmaður Vegagerðarinnar í Borgarnesi. Þeir Ásgeir,
sem er til hægri hér á myndinni að ofan, og Jón Sig-
mundsson, starfsfélagi hans, hafa farið víða um að und-
anförnu til að sinna viðgerðum á vegunum, en oft þarf að
bregast skjótt við, því bílar geta skemmst mikið ef þeim
er ekið ofan í holur sérstaklega ef ekið er á miklum
hraða.
Svæðið sem vegagerðarmenn í Borgarnesi sinna nær
frá Akranesi og úr Hvalfjarðarbotni, spannar allan
Borgarfjörðinn, vestur á Snæfellsnes og svo Bröttu-
brekkuna og Holtavörðuheiði. Var það einmitt á heiðinni
– Hrútafjarðarmegin – sem Morgunblaðið hitti kappana
tvo nú fyrir helgina. „Ökumenn mættu vera tillitssamari
og það gildir sérstaklega um bílstjóra á þeim tugum
trukka sem eru ferðinni,“ segir Ásgeir. sbs@mbl.is
Víða á ferðinni og fylla í holurnar
Aron Þórður Albertsson
Snorri Másson
Ráðning nýs bankastjóra Arion
banka er í höndum stjórnar bankans.
Þetta segir Haraldur Guðni Eiðsson,
upplýsingafulltrúi Arion banka.
Höskuldur H. Ólafsson, banka-
stjóri Arion banka, lætur af störfum
nú um mánaðamótin en hann sagði
starfi sínu lausu fyrir helgi. Hann
hefur starfað í bankanum frá sumr-
inu 2010, eða í um níu ár. Að sögn
Haraldar verða ákvarðanir varðandi
leit að eftirmanni Höskuldar teknar
af stjórn Arion banka.
„Næstu skref varðandi ráðningu á
nýjum bankastjóra verða tekin af
stjórn Arion banka,“ segir Haraldur.
Var ekki beittur þrýstingi
Að sögn Höskuldar var engum
þrýstingi beitt til að fá hann til að
láta af störfum. Þá hafi ákvörðunin
alfarið verið hans en hún hafi verið
tekin eftir talsverða umhugsun.
„Ég hef hugleitt þetta í nokkurn
tíma. Þegar maður er búinn að vera
svona lengi í þessu þá hugsar maður
hvort þetta sé ekki orðinn ágætur
tími,“ segir Höskuldur og bætir við
að tímapunkturinn sé heppilegur.
„Þetta er góður tími fyrir bankann
auk þess að vera góður tími fyrir
mig,“ segir Höskuldur.
Uppsögn Höskuldar kemur í kjöl-
far rekstrarárs sem olli miklum von-
brigðum. Fall WOW air, gjaldþrot
Primera Air auk fleiri atriða urðu til
þess að hagnaður síðasta árs var
talsvert undir væntingum. Höskuld-
ur segir að það hafi haft áhrif á
ákvörðun hans. „Það eru margir
hlutir sem safnast saman og verða til
þess að þú tekur ákveðna ákvörðun á
ákveðnum tímapunkti,“ segir Hösk-
uldur sem kveðst stoltur af starfi
sínu hjá bankanum. Þá skilji hann
sáttur við Arion banka. „Ég er mjög
stoltur af því verki sem ég og sam-
starfsfólk mitt í bankanum höfum
unnið. Í dag er bankinn öflugt fyrir-
tæki, sem hefur tvöfaldað efnahag-
inn, vaxið og er með forystu á mörg-
um sviðum. Þar að auki með eðlilegt
eignarhald og ekki í eigu ríkisins
eins og hinir bankarnir,“ segir Hösk-
uldur.
Næstu skref í
höndum stjórnar
Óvíst hvernig
leit að bankastjóra
verður háttað
Morgunblaðið/Eggert
Bankastjóri Höskuldur lætur af
störfum nú um mánaðamótin.