Morgunblaðið - 15.04.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra ræddi um mikilvægi hins
svokallaða bláa hagkerfis (e. Blue
Economy) í ávarpi sínu í þróunar-
nefnd Alþjóðabankans og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins nú um helgina.
„Hugmyndin um bláa hagkerfið er
nokkuð nýtilkomin en er nú mikið
notað hugtak fyrir atvinnustarfsemi,
vöxt og þróun sem tengist hafinu og
ströndunum. Sjálfbært blátt hagkerfi
getur séð minni ríkjum, sérstaklega
þeim sem liggja að sjó, fyrir umhverf-
isvænni og samkeppnishæfari efna-
hag,“ sagði Guðlaugur í ávarpi sínu.
Í þessu samhengi benti Guðlaugur
á að Ísland hefði auðgast mikið vegna
fiskveiða og að Ísland myndi reiða sig
á fiskveiðar til framfærslu í framtíð-
inni.
„Við verðum að átta okkur á þeim
tækifærum sem felast í heilbrigðum
höfum og sjálfbærri notkun á þeim.“
Sjórinn á jaðri umræðunnar
Guðlaugur sagði að höfin hefðu
lengi vel ekki verið nægilega miðlæg í
umræðunni um loftslagsmál. „Höfin
eru mikilvægur hluti af þýðingarmik-
illi umræðu um loftslagsbreytingar.
Höfin hafa þó lengi vel verið á jaðri
umræðunnar í stað þess að vera í
miðju hennar.“
Guðlaugur hélt ávarpið fyrir hönd
kjördæmis Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna en Ísland á sæti í
þróunarnefndinni á árinu 2019, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu. Þróunarnefnd-
in er sameiginleg ráðherranefnd Al-
þjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins og sinnir pólitískri
stefnumörkun í alþjóðlegri þróunar-
samvinnu gagnvart stofnununum
tveimur. Nefndin er skipuð 25 ráð-
herrum frá aðildarríkjum stofnan-
anna.
Heilbrigð höf undir-
staða hagsældar
Utanríkisráðherra
flutti ávarp um hið
bláa hagkerfi
Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherra Guðlaugur Þór
á fundi þróunarnefndarinnar.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það hefur í raun ekkert gerst í
málinu síðan það kom fyrst fram,“
segir Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, um „Procar-
svindlið“ svokallaða. Málið komst í
hámæli fyrr á þessu ári þegar í ljós
kom að bílaleigan Procar hafði átt
við kílómetramæla í bifreiðum fyrir-
tækisins áður en þeir voru seldir.
Aðili sem tengdist rekstri fyrir-
tækisins ljóstraði upp um málið en í
gögnum frá Procar mátti sjá að
akstursmælum hafði verið breytt í
tugum bíla.
Runólfur segist furða sig á því að
ekki hafi verið tekið á málinu af
meiri festu. „Það er liðinn mjög
langur tími og einu skilaboðin sem
berast eru þau að þetta mál sé í
skoðun. Fólk er að verða fyrir mikl-
um skaða af þessum völdum og svo
virðist sem hluti markaðarins vilji
að þetta mál hverfi bara, enda er
þetta óþægilegt mál,“ segir Run-
ólfur og bætir við að málið hafi
dregið verulega úr trausti neytenda
í viðskiptum með notuð ökutæki.
Þess utan hafi þetta skaðað neyt-
endur og fyrirtæki fjárhagslega.
„Fólk sem á bíl sem áður hefur
verið í eigu bílaleigu er í vandræð-
um með að selja hann. Það hefur
ekki einungis áhrif á þessa 100 bíla
sem þeir hafa viðurkennt að hafa átt
við heldur alla bíla sem áður hafa
verið í eigu bílaleigu. Þetta gerir
bifreiðarnar talsvert verðminni“
segir Runólfur.
Skerpa verður á reglum
Að sögn Runólfs er mikilvægt að
skerpa á reglum er varða breyt-
ingar á akstursmælum bifreiða. Þá
verði löggjöfin að vera talsvert
skýrari. „Það þarf að vera skýrari
löggjöf í þessum málum. Þetta ætti
að vera brot á hegningarlögum og
aðilar sem staðnir eru að slíku ættu
að vera sektaðir,“ segir Runólfur
sem kveðst vita til þess að nokkrir
einstaklingar hafi kært málið til lög-
reglu. Enn sem komið er hafi lítið
borið á viðbrögðum þaðan og málið
sagt í skoðun. Runólfur segist undr-
andi á hægagangi lögreglu. „Ég veit
að einstaklingar hafa kært málið til
lögreglu. Maður furðar sig í raun á
því að hún hafi ekki lagt hald á gögn
úr fyrirtækinu til að vernda rann-
sóknarhagsmuni,“ segir Runólfur.
Einungis íbúðakaup stærri
Að hans sögn er afar mikilvægt
að einstaklingar sem urðu fyrir tjóni
vegna bifreiðanna fái það bætt. Mik-
ilvægt sé að tryggja að neytendur
séu verndaðir í málum sem þessum.
„Mér finnst skortur á því að neyt-
endur séu verndaðir. Það verður
einnig að líta til þess að einungis
íbúðakaup eru stærri kaup en bif-
reiðakaup venjulegrar fjölskyldu.
Það er því mjög mikilvægt að þessir
einstaklingar fái tjón sitt bætt,“
segir Runólfur að endingu.
Undrast seinagang
og lítil viðbrögð
Óbreytt staða í „Procar-svindlinu“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Procar Að sögn Runólfs hefur lítið
bólað á viðbrögðum í málinu.
Procar-svindlið
» Undrast það að ekki hafi
verið lagt hald á gögn úr fyrir-
tækinu til að vernda rannsókn-
arhagsmuni.
» Mikilvægt að einstaklingar
fái tjón sitt bætt sem fyrst.
» Akstursmælum í um 100
bifreiðum bílaleigunnar var
breytt fyrir sölu bifreiðanna.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Þingvallavegi, nr. 36, verður lokað
frá og með 24. apríl nk. og fram á
haust. Um er að ræða kaflann frá
Þjónustumiðstöðinni í þjóðgarðinum
og að vegamótunum við Vallaveg.
Aðgengi að miðstöðinni verður
óbreytt. Umferð verður beint um
Vallaveg meðan á framkvæmdum
stendur. Sjá nánar meðf. kort.
Samfara fjölgun ferðamanna hef-
ur umferð um þjóðgarðinn aukist
gríðarlega. Gerir Vegagerðin ráð
fyrir stöðugri aukningu næstu árin,
skv. spá til ársins 2042. Á sumrin er
umferðin um 2.500 bílar á sólarhring
og um 1.100 bílar að vetri til.
Buðu 484 milljónir í verkið
Um er að ræða síðari áfanga
verksins. Sá fyrri hófst síðasta sum-
ar þegar 3 km af Þingvallavegi voru
lagfærðir. Verktaki fyrir Vegagerð-
ina í þessu er fyrirtækið Þjótandi,
sem bauð 484 milljónir króna í verk-
ið. Það felst einkum í að fjarlægja
gróður í vegfláum, breikka veginn
um tvo metra, búa til nýja vegfláa og
koma gróðrinum aftur fyrir í nýjum
vegfláum.
Fram til 24. apríl mun Vegagerðin
lagfæra Vallaveginn eins og kostur
er. Að sögn Einars M. Magnússonar,
verkefnisstjóra hjá Vegagerðinni,
var Vallavegur einnig lagfærður í
fyrra, með því að setja upp víraveg-
rið og bæta við mætingarstæðum.
Núna verður bætt í og mætingar-
stæðum fjölgað um fjögur, auk þess
sem vegkantar verða styrktir á
nokkrum stöðum.
Á vef þjóðgarðsins er bent á að
vegurinn sé mjór og henti illa fyrir
stærstu bíla. Óskar Vegagerðin eftir
því að ferðaþjónstufyrirtæki noti
minni bíla meðan á framkvæmdum
stendur í sumar. Einar segir að í
fyrra hafi ekki mikið tillit verið tekið
til þessarar ábendingar en nú sé
þetta ítrekað, sem og að reikna sér
lengri tíma til að aka í gegnum þjóð-
garðinn.
Að sögn Einars var haft samráð
við þjóðgarðinn um að sameina bíla-
stæði við veginn. Þrjú stæði verða
búin til með pláss fyrir 10 bíla hvert.
Síðan verður búið til stórt stæði við
Gjábakka þar sem þjóðgarðurinn
mun gera nýjan útsýnispall í sumar.
Ljósmynd/Vegagerðin
Þingvellir Vegurinn um þjóðgarðinn, frá Þjónustumiðstöðinni og að Gjábakka, verður breikkaður í sumar.
Klára Þingvallaveg
Vegagerðin lýkur endurbótum á Þingvallavegi í sumar
Vegurinn lokaður 24. apríl til hausts Ekið um Vallaveg
Þingvallavatn
Re
ykj
aví
k
Selfoss
Lokun Þingvalla-
vegar í sumar
Vallavegur
Hjáleið
Þingvallavegur um
þjóðgarðinn verður
lokaður frá 24. apríl
og fram til næsta
hausts
Kortagrunnur: OpenStreetMap
Eftir er að framkvæma
endurbætur á um 6 km
kafla vegarins en 3 km
voru kláraðir 2018
Þingvallavegur
Lokað vinnusvæði
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Hálsmen
10.900,-
Hálsmen
8.900,-
Hálsmen
8.900,-
Hálsmen
9.900,-
Hringur
8.900,-
Hringur
8.900,-
Hringur
8.900,-
Eyrnalokkar
5.500,-
Eyrnalokkar
5.500,-