Morgunblaðið - 15.04.2019, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
TENGISTYKKIN
Dvergarnir R
Skoðið
nýju
heimas
íðuna
islands
hus.is
FÁST Í BYGGINGA-VÖRUVERSLUNUM
Sérsmíðuð tengistykki á dvergana
léttir vinnuna – margar tegundir
Langvinn lungnateppa er einsog nafnið bendir til lang-vinnur sjúkdómur í lungum
sem í mjög mörgum tilvikum orsak-
ast af tóbaksreykingum. Í byrjun
geta einkennin verið væg eða nánast
engin, til dæmis eingöngu þrálátur
hósti og stundum surg í kjölfar venju-
legra kvefpesta.
Stöðva má framgang
Ef lungnateppan greinist á fyrstu
stigum og viðkomandi tekst að hætta
að reykja má oftast stöðva framgang
sjúkdómsins. Fái lungnateppa að
þróast óáreitt leiðir það smám saman
til einkenna sem verða bagaleg og
íþyngjandi eins og langvinnur hósti
og mæði. Í lengra gengnum sjúkdómi
verður mæðin meira áberandi og hef-
ur veruleg áhrif á lífsgæði.
Langvinn lungnateppa er mjög al-
geng og rannsóknir benda til að tæp-
lega 20% Íslendinga 40 ára og eldri
séu með þennan sjúkdóm, en um það
bil helmingur þeirra með mjög væg-
an sjúkdóm.
Einföld mæling
Það er vel þekkt að allmargir
þeirra, sem samkvæmt rannsóknum
eru með langvinna lungnateppu, vita
ekki af því, það er að segja hafa ekki
verið greindir. Greiningin byggist á
einfaldri öndunarmælingu sem mælir
rúmmál lungna og hraða útöndunar.
Hafir þú lesandi góður haft vandamál
með þrálátan hósta í kjölfar kvef-
pesta, langvinnan hósta vikum eða
mánuðum saman, surg í brjósti eða
mæði og reykir eða hefur reykt er
fullt tilefni til að gera öndunarmæl-
ingu og meta stöðuna á lungum þín-
um.
Öndunarmælar eru á öllum heilsu-
gæslustöðvum landsins og læknirinn
þinn og hjúkrunarfræðingur geta
auðveldlega komist að því hvort hjá
þér leynist langvinn lungnateppa og
aðstoðað þig við að takast á við það.
Langvinn lungnateppa
Heilsuráð
Jón Steinar Jónsson heimilislæknir
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsu-
gæslu og Heilsugæslunni Efstaleiti
Hannes Hrafnkelsson heimilislæknir
Heilsugæslunni Seltjarnarnesi
Reuters
Reykingar Þær eru oft upphaf veik-
inda sem geta verið af ýmsum toga.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
S
jóböðin eru frábær viðbót
við nú þegar frábæra
ferðaþjónustu hér á
Húsavík. Hér á Húsavík
eru hvalaskoðunarferðir
út á flóann, áhugaverð söfn, fjöldi
veitingastaða og fín hótel. Í þessa
flóru eru sjóböðin góð afþreying og
staðurinn þannig að baðferðin sjálf
verður mikil upplifun,“ segir Sigur-
jón Steinsson framkvæmdasjóri
Geosea á Húsavík.
Þrír pottar og vitinn
Sjóböðin á Húsavík voru opnuð
og tekin í notkun í september á síð-
asta ári. Aðsóknin hefur verið góð
og þar hefur sérstaklega munað um
að Íslendingar sækja staðinn mikið,
sem er að nokkru umfram það sem
forsvarsmenn staðarins væntu. Bað-
staðurinn er á svonefndum Húsa-
víkurhöfða, við hlið ljósvitans sem
slær geislum sínum út yfir Skjálf-
andann og er hald og traust sjófar-
enda.
Þrír stórir pottar eru á bað-
staðnum sem er fram við klettabrún
og úr þeim er frábært útsýni yfir
flóann og til Kinnarfjalla. Það voru
arkitektarnir Sigríður Sigþórsdóttir
og Ari Þorleifsson hjá Basalt arki-
tektum sem hönnuðu mannvirkið,
rétt eins og sundlaugina á Hofsósi
og baðstað Bláa lónsins, enda er
margt með sama svip á öllum þess-
um stöðum.
Ostakarið var góð hugmynd
Í sjóböðin nyrðra er nýtt heitt
steinefnaríkt vatn, 37-41 gráðu
heitt, sem fengið er úr tveimur bor-
holum á Húsavíkurhöfða. Er þar
byggt á reynslu því lengi var á höfð-
anum stórt ostakar, fengið úr
mjólkursamlagi staðarins, þangað
sem Húsavíkingar fóru gjarnan til
baða ef þeir glímdu við húð-
sjúkdóma.
„Ostakarið var auðvitað mjög
frumstætt en það nýttist þeim sem
þurftu og hugmyndin var frábær.
Þetta er grunnurinn sem við byggj-
um á,“ sagði Sigurjón Steinsson
þegar hann kynnti Morgunblaðinu
aðstöðuna og staðinn nú á dögunum.
Tilefni til að mæta á staðinn
Það er hlutafélagið Sjóböð ehf.
sem stendur að rekstri sjóbaðanna
og lét byggja þau, en heildarkostn-
aður við framkvæmdir var um hálf-
ur milljarður króna.
„Aðsókn landans hefur verið
góð og eftir Vaðlaheiðargöngin er
ekkert mál að renna hingað til
Húsavíkur úr Eyjafirði. Talsvert
hefur verið um að Akureyringar
komi hingað og séu kannski eina
eða tvær nætur hér á hóteli, fari í
sjóböðin, út að borða og fleira
skemmtilegt. Þetta hefur verið
áberandi nú í vetur, á annars dauð-
um tíma í ferðaþjónustunni. Húsa-
vík er með sjóböðunum orðin raun-
verulegur áfangastaður ferða-
manna; fólk hefur með öðrum
orðum sagt tilefni til að koma hing-
að,“ segir Sigurjón.
Sjóböðin góð viðbót á Húsavík
Sáttur Aðsókn landans er góð,
segir Sigurjón framkvæmdastjóri.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Svaml Það er gott að láta þreytuna líða úr kroppinum þegar flatmagað er í pottinum sem er fram á sjávarkambi.
Busl! Sjóböðin á Húsavík
sem opnuð voru síðasta
haust hafa slegið í gegn.
Steinefnaríkt vatnið er
heilsubót. Frábært útsýni
úr einstakri heilsulind á
Norðurlandi.
Ljós Vitinn á Húsavíkurhöfða setur sterkan svip á umhverfi sjóbaðanna, þaðan sem sést vel yfir Skjálfandaflóann.