Morgunblaðið - 15.04.2019, Blaðsíða 12
Stærsta flugfarið hóf sig á loft
og klifraði í 15.000 feta hæð í
jómfrúrferðinni. Náði hún 170
mílna, eða 275 km/klst. hraða.
Tilraunaflugmaðurinn Evan
Thomas lét vel af henni.
Flugvélin gengur undir nafn-
inu Roc, smíðuð úr koltrefjaefn-
um og knúin sex hreyflum. Hún
er hönnuð til að skjóta flaugum
og öðrum geimferðabúnaði, allt
að 250 tonnum, áfram út í geim
úr 35.000 feta hæð. Takmark
Stratolaunch er að gera ferðir
með hluti á braut um jörðu eins
hversdagslegar og að kaupa miða
með áætlunarflugi borga á milli í
dag.
„Stærsta flugvél heims“ hóf sig á
loft í Mojave-eyðimörkinni í Kali-
forníu síðdegis á laugardag.
Vænghaf hennar er 117 metrar
eða sem nemur rúmlega fótbolta-
velli á lengdina.
Flugvélinni er ætlað að vera
fljúgandi skotpallur gervihnatta.
Hugmyndin er að flugvélin klifri
10 kílómetra í loft upp áður en
arðfarminum yrði sleppt lengra
út í hvolfið. Reynist það gerlegt
yrði þessi leið til að koma gervi-
tunglum á braut um jörð mun
ódýrari en með því að skjóta
þeim á loft af jörðu niðri.
Flugvélin, nefnd Roc, er tvíbola
AFP
Flugtak Hin óvenjulega Roc, stærsta flugvél heims að vænghafi, í jómfrúar-
fluginu frá Mojave-eyðimörkinni um helgina. Vænghafið er 117 metrar.
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
www.velaborg.is | Járnhálsi 2-4 | 110 Reykjavík | Sími 414-8600
Umboðsaðili CASE
vinnuvéla á Íslandi
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Bandarísku flugvélasmiðjurnar Bo-
eing hafa birt sölutölur fyrir fyrsta
fjórðung ársins. Þær leiða í ljós, að
ekki ein einasta pöntun barst í 737
MAX-þotulínuna í marsmánuði.
Pantanir og afhending flugvéla til
kaupenda á fjórðungnum drógust
saman miðað við sama tímabil í
fyrra.
Í heild voru pantaðar 95 Boeing
737 MAX-þotur frá áramótum til
marsloka, en 180 á sama tíma í fyrra.
Þá voru 184 þotur afhentar kaupend-
um í fyrra en 149 í ár og af þeim voru
89 allar útgáfur af 737-þotunni. Bo-
eing hefur hætt afhendingu allra
MAX-útgáfanna þar til lokið hefur
verið við að endurbæta hugbúnað
þeirra og fá hann samþykktan. Af
þessum ástæðum dró Boeing úr
framleiðslu MAX-véla úr 52 eintök-
um á mánuði í 42.
Hægja á afhendingu
Í pantanabók Boeing er að finna
rúmlega fimm þúsund þotur með
einum gangi milli sætaraða. Nokkur
flugfélög hafa þó látið í veðri vaka að
þau muni afpanta eða hægja á af-
hendingu MAX-véla. Þannig hefur
indónesíska flugfélagið Garuda þeg-
ar fallið formlega frá pöntun sinni á
50 MAX-þotum.
Í síðustu viku féllu hlutabréf í Bo-
eing vegna erfiðleika flugvélasmiðj-
anna með 737 MAX-þotuna í fram-
haldi af brotlendingu tveggja í Asíu
og Afríku. Óttast greinendur að það
taki Boeing mun lengri tíma að vinna
sig út úr erfiðleikunum; jafnvel að
737-MAX þoturnar verði kyrrsettar
í sex til níu mánuði til viðbótar við
það sem þegar er. Viðbrögð kaup-
halla jafngilda því að rúmlega 20
milljarða dollara markaðsverðmæti
Boeing hafi þurrkast út frá því þot-
urnar voru kyrrsettar vegna meints
galla í stýribúnaði sem slysin voru
rakin til, allavega að hluta.
Flugmálayfirvöld í Kanada, Kína
og Evrópu hafa látið í ljós að þau vilji
sjálf gera sína eigin öryggisúttekt á
MAX-þotunum áður en þær fá flug-
hæfisskírteini útgefin í þessum lönd-
um. Er talið að það gæti leitt til þess
að þær færu enn seinna í loftið á
þessum svæðum.
Dennis Muilenburg, forstjóri Bo-
eing, skýrði frá því í vikulokin að
reynsluflugmenn Boeing hefðu hafið
flugtilraunir með nýja útgáfu hug-
búnaðar fyrir MAX-þoturnar. Þegar
hefðu verið farnar 96 flugferðir er
samtals hefðu varað í 159 klukku-
stundir.
Ferlið gæti tekið langan tíma
Uppfærðum hugbúnaði er ætlað
að koma í veg fyrir að áfallshorns-
nemar sendi frá sér rangar upplýs-
ingar og virki svonefndan MCAS-
búnað sem beini flugvél niður á við.
Kastljósið hefur verið á þann búnað
sem meginástæðu þess að 737 MAX-
þota Ethiopian Airlines steyptist til
jarðar 10. mars og þota Lion Air 29.
október sl., en með þeim fórust allir
sem um borð voru, samtals 346
manns. Þótt Boeing telji sig vera að
klára uppfærslu hugbúnaðarins er
eftir viðurkenningarferli sem tekið
gæti langan tíma.
Kyrrsetning Boeing 737 MAX-
flugvéla hefur knúið félög til að
skera upp flugáætlanir sínar og
halda áfram notkun gamalla og
ósparneytinna þotna. Um allan heim
búa flugfélög sig undir lengri kyrr-
setningu um 400 737-flugvéla en
hingað til og þykir fyrirséð að það
valdi verulegri röskun á sumarferða-
lögum. Flugfélagið American Air-
lines ákvað um helgina að 737 MAX-
flugvélar þess færu ekki á loft að
nýju fyrr en 19. ágúst í sumar í
fyrsta lagi en þær hafa sinnt 115
ferðum á dag. Sömu sögu er að segja
af Southwest Airlines sem kyrrsett
hefur sínar MAX-þotur fram til 5.
ágúst, en félagið er með stærsta flota
heims af þessari tegund. Með því
varð félagið að fella niður 160 ferðir
á dag.
Enginn pantar Boeing 737
AFP
Kyrrsettar Boeing 737 MAX vélar á flugvelli í Victorville í S-Kaliforníu.
Bandarísk flugfélög reikna ekki með þessum vélum fyrr en í ágúst nk.
Ekki barst ein pöntun á MAX-vélum Boeing í marsmánuði Dregið úr fram-
leiðslu á nýjum vélum Sjá fram á mun lengri kyrrsetningu en áður var talið
MAX-vélar í vanda
» Þykir fyrirséð að kyrrsetn-
ing 737-þotnanna valdi veru-
legri röskun á sumarferðalög-
um um heim allan.
» Kyrrsetning Boeing 737
MAX-flugvéla hefur knúið félög
til að skera upp flugáætlanir
og halda áfram notkun gamalla
og ósparneytinna þotna.
15. apríl 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.28 119.84 119.56
Sterlingspund 155.98 156.74 156.36
Kanadadalur 89.4 89.92 89.66
Dönsk króna 18.059 18.165 18.112
Norsk króna 14.025 14.107 14.066
Sænsk króna 12.861 12.937 12.899
Svissn. franki 119.12 119.78 119.45
Japanskt jen 1.0649 1.0711 1.068
SDR 165.72 166.7 166.21
Evra 134.82 135.58 135.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.8382
Hrávöruverð
Gull 1301.85 ($/únsa)
Ál 1846.5 ($/tonn) LME
Hráolía 70.95 ($/fatið) Brent
Óvíst er að indverska flugfélagið Jet
Airways fljúgi á ný en það aflýsti öllu
flugi fyrir helgi með þeim afleið-
ingum að farþegar þess urðu m.a.
strandaglópar í
Indlandi, Lond-
on, París og
Amsterdam.
Jet Airways
er stærsta
einkarekna
flugfélag Ind-
lands en er
þjakað af skuld-
um upp á rúm-
lega milljarð
dollara. Hefur félagið ekki getað
borgað laun. Ætlar það að freista
þess að ná samningum við lánveit-
endur sína til að komast hjá hruni fé-
lagsins. Þeirra á meðal er Indigo
Partners.
Jet Airways kyrrsetti 10 þotur sem
það gat ekki borgað leigugjöld af. Í
flota Jet Airways eru rúmlega 124
þotur og hefur það haldið uppi ferð-
um til 600 áfangastaða innanlands og
380 erlendis. Þær eru strandaðar eða
kyrrsettar víða um heim.
Indversk flugfélög verða að hafa
að minnsta kosti 20 þotur í ferðum til
að geta haldið áfram millilandaflugi.
Því var flugi sjálfhætt þegar félagið
hafði aðeins eftir yfirráð yfir 14 þot-
um.
Indverska olíufélagið Indian Oil
lokaði í síðustu viku þrisvar fyrir
eldsneytisflæði til Jet Airways vegna
skulda. agas@mbl.is
Jet Airways
hættir flugi
Starfsmenn vilja
bjarga félaginu.
Aflýsti öllu flugi
sínu um helgina