Morgunblaðið - 15.04.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Norðlingabraut 8
110 Reykjavík
S: 530-2005
Bíldshöfði 16
110 Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
600 Akureyri
S: 461-4800
&530 2000
www.wurth.is
Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur
Arvada flísjakki
• 100% prjónað pólýester
• Einstaklega þægilegir og flottir
flísjakkar með hettu og vösum
• Til í gulum og bláum lit
• Stærðir: XS - 3XL
Vnr: 1899 312
Verð: 8.900 kr.
Bambus sokkar
• 80% bambus/17% pólýamíð/3% teygju-
efni, mjög þægilegir og mjúkir
• Draga úr ólykt og þú svitnar mun minna
• 5 pör í pakka
• Stærðir: 39 - 42 og 43 - 46
Vnr: M451 044
Verð: 4.990 kr.
(5 pör í pakka)
Þrír biðu bana og
aðrir þrír slösuð-
ust þegar lítilli
flugvél hlekktist
á í flugtaki og
rakst á tvær þyrl-
ur á flugvellinum
í Lukla í Nepal í
gær. Flugvélin
var af gerðinni
L410 Turbolet.
Hún var að hefja
ferð sína til höfuðborgarinnar Kat-
mandú og rann út af flugbrautinni
með ofannefndum afleiðingum. Að-
stoðarmaður vélarinnar og lög-
reglumaður létust samstundis, en
annar lögreglumaður lést á leið á
sjúkrahús skömmu síðar.
Flugvöllurinn í Lukla er einkum
notaður til að ferja fjallgöngugarpa
að og frá Everest-fjalli, en flestir
sem ganga á fjallið hefja förina í
Lukla. Flugvöllurinn hefur afar
stutta flugbraut og er umvafinn
háum fjöllum. Hann er því af mörg-
um talinn einn sá hættulegasti í
heimi hvað varðar aðflug og flug-
tak.
NEPAL
Þrír létust er flugvél
rakst á tvær þyrlur
Nepal Frá slys-
stað í Lukla í gær.
Lögregla þurfti
að beita táragasi
gegn mótmæl-
endum á Norður-
brú í Kaup-
mannahöfn í gær
eftir mótmæla-
fund stjórnmála-
mannsins Ras-
mus Paludan.
Paludan hefur
undanfarnar vikur mótmælt í
Kaupmannahöfn en hans helsta
baráttumál er að fækka úlending-
um í Danmörku og berjast gegn
„íslamsvæðingu“.
Í samtali við danska ríkis-
útvarpið sagði Paludan að lögregla
hefði ekki gert nóg til að verja tján-
ingarfrelsi hans. Paludan hefur
mótmælt þar sem múslimar hafa
komið saman til að biðja. Upp úr
sauð þegar Paludan hóf að henda
kóraninum upp í loftið.
DANMÖRK
Beittu táragasi gegn
mótmælendum
Rasmus Paludan
Kosningabarátta vegna þingkosning-
anna á Indlandi fór aftur á fullt skrið í
gær, þremur dögum eftir fyrsta dag
kosninganna.
Kosningar sem hófust á Indlandi í
síðustu viku eru ekki aðeins þær fjöl-
mennustu í sögunni heldur taka þær
lengri tíma en venjan er því þeim lýk-
ur ekki fyrr en endanleg úrslit verða
birt 23. maí næstkomandi.
Önnur umferð kosninganna fer
fram næstkomandi fimmtudag.
Helstu stjórnmálaforingjar töluðu
á útifundum, þar á meðal Narendra
Modi forsætisráðherra, leiðtogi
stjórnarflokksins, Bharatiya Janata
(BJP), í þeim tilgangi að efla stuðning
samflokksmanna sinna.
Alls verður kosið í 97 kjördæmum í
13 ríkjum Indlands á fimmtudag. Í
héraðinu Tamil Nadu verður kosið í
39 kjördæmum, 14 í Karnataka, 10 í
Maharashtra, átta í Uttar Pradesh,
fimm í Assam, Bihar og Odisha,
þremur í Chhattisgarh og Vestur-
Bengal, tveimur í Jammu og Kashmir
og einu í Manipur, Tripura og Puduc-
herry.
Rúmlega 900 milljónir manna eru á
kjörskrá og með rétt til þátttöku í
kosningunum sem fram fara í sjö
þrepum á fimm vikum á tímabilinu 11.
apríl til 23. maí.
Litið er á kosningarnar fyrst og
fremst sem könnun á stöðu Modi sem
sakaður hefur verið um að kynda und-
ir deilum milli meirihluta hindúa og
hinna 200 milljóna múslima sem búa í
Indlandi. Um stöðu forsætisráð-
herrans og möguleika hans á að vinna
aftur meirihluta á þingi greinir grein-
endur á. Þar til fyrir skömmu voru
Modi og BJP-flokkurinn taldir lang-
sigurstranglegastir. Tap flokksins í
sveitarstjórnarkosningum í lykilríkj-
um í desember sl. varð til þess að
þingkosningarnar fengu meira mikil-
vægi í augum fólks. agas@mbl.is
900 milljónir
að kjörborðinu
Þingkosningarnar á Indlandi eru
umfangsmestu kosningar heims
AFP
Indland Fjölmenni á útifundi.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Flokkur jafnaðarmanna sigraði með
naumindum í finnsku þingkosningun-
um sem fóru fram í gær. Flokkur
jafnaðarmanna hlaut 17,7% atkvæða
en á eftir þeim fylgdi hinn þjóðernis-
sinnaði Finnaflokkur, áður Sannir
Finnar, sem var ekki nema 0,2 pró-
sentustigum á eftir jafnaðarmönnum.
Í þriðja sæti var Samstöðuflokkurinn
með 0,5 prósentustigum minna, 17%.
Sögufrægar kosningar
„Í fyrsta skipti síðan 1999 er flokk-
ur jafnaðarmanna flokkur forsætis-
ráðherrans, “ sagði Antti Rinne, leið-
togi flokksins, þegar niðurstöður lágu
fyrir, en venjan er í Finnlandi að for-
sætisráðherrann komi úr röðum þess
flokks sem fær mesta kosningu.
Kosningarnar voru merkilegar fyr-
ir fleira en gott gengi jafnaðarmanna
en í fyrsta skipti fékk enginn flokkur
yfir 20 prósenta kosningu.
Þá náðu Græningjar í fyrsta skipti
yfir tíu prósenta kosningu, en þeir
enduðu með 11,5 prósent atkvæða.
Líkur á erfiðum viðræðum
Talið er ólíklegt að stjórnarmynd-
unarviðræður muni ganga hnökra-
laust fyrir sig en fyrir kosningar lýstu
flestir flokkar yfir litlum sem engum
áhuga á að starfa í ríkisstjórn með
Finnaflokknum. Í gær sagðist ofan-
nefndur Rinne hins vegar „hafa
spurningar“ fyrir Finnaflokksmenn,
og útilokaði ekki stjórnarsamstarf
með þeim. „Sumar spurninganna
verða um gildi,“ sagði Rinne í samtali
við finnska fjölmiðla. „Gildi jafnaðar-
manna eru mjög mikilvæg, þau eru
límið sem munu halda ríkisstjórninni
saman,“ sagði hann.
Úrslit kosninganna voru nokkuð í
takt við það sem skoðanakannanir
höfðu bent til þegar stutt var eftir af
kosningabaráttunni.
Eins og fyrir þingkosningarnar hjá
nágrönnunum í Svíþjóð í fyrra voru
innflytjendamálin ofarlega á baugi
fyrir finnsku kosningarnar.
Strangari innflytjendastefna
Stefna Finnaflokksins í þeim mál-
um var m.a. það sem varð til þess að
stór hluti finnsku þjóðarinnar fylkti
sér á bak við flokkinn. Færri innflytj-
endur og strangari reglur um hælis-
leitendur eru á meðal þess sem flokk-
urinn lofaði.
Þá hefur Finnaflokkurinn verið
andsnúinn viðveru í Evrópusamband-
inu, og gagnrýnt starfshætti þess.
Loftslagsmál voru einnig mikið
rædd, en margir stærri flokkanna
hafa boðað miklar breytingar á því
sviði, og hafa meðal annars boðað
meiri álögur á flugferðir og kjötvörur.
Eins og í öðrum málaflokkum skar
Finnaflokkurinn sig nokkuð úr
flokkafylkingunni og lagði minni
áherslu á þessi mál. Virðist það
greinilega hafa fallið í kramið hjá
mörgum finnskum kjósendum.
Jafnaðarmenn sigruðu
Fengu 17,7% atkvæða í Finnlandi Fáir vilja starfa með þeim næststærstu
Enginn með yfir 20% Finnaflokkurinn skeytir lítt um loftslagsmál
AFP
Kampakátur Rinne fagnar með
samflokksmönnum í gærkvöldi.
Víða um hinn kristna heim voru
haldnar hátíðir í gær, pálmasunnu-
dag. Í mörgum kaþólskum kirkjum
fer fram pálmavígsla og helgiganga
á þessum degi, og héldu sóknarbörn
kaþólsku Grace Parish-kirkjunnar í
Buzi í Mósambík þessa hefð í heiðri í
gær.
Rétt um mánuður er síðan fellibyl-
urinn Idai reið yfir Mósambík, sem
varð um 600 manns að bana og olli
gríðarmikilli eyðileggingu. Því urðu
á vegi safnaðarins fallin tré og hús
án þaka, hurða eða glugga, á leið
hans til kirkju.
Pálmasunnudagurinn er haldinn
til minningar um innreið Jesú í Jerú-
salem, þegar fólk veifaði pálma-
greinum til að fagna komu hans. Því
var einnig haldin athöfn í Jerúsalem
í gær, ekki alls ólík þeirri í Buzi.
Fögnuðu
komu frels-
arans í gær
AFP