Morgunblaðið - 15.04.2019, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Samtvinnun Íslenski dansflokkurinn kom fram í Kringlunni á Barnamenningarhátíð um helgina og sýndi þar verk sem heitir The Great Gathering, og myndaði mannlegan töfrandi hring.
Eggert
Það hefur vart farið framhjá
neinum að fyrirhuguð innleiðing
þriðja orkupakkans svokallaða
hefur valdið miklum deilum í
samfélaginu.
Nú hefur Alþingi lokið fyrstu
umræðu um þingsályktunar-
tillögu utanríkisráðherra
Sjálfstæðisflokksins þar sem
lagt er til að reglur Evrópusam-
bandsins um orkumál séu teknar
upp í EES-samninginn. Innleið-
ing EES-gerða í EES-
samninginn fer fram með þingsályktun um af-
léttingu stjórnskipulegs fyrirvara.
Þingið spyr þjóðina
Þar sem um þingsályktun er að ræða hefur
forseti Íslands ekki synjunarvald eins og gildir
um lagafrumvörp. Því hefur almenningur ekki
færi á að hvetja forseta með undirskriftasöfn-
un eða öðrum hætti til að synja málinu stað-
festingar og leggja það þar með í þjóðar-
atkvæði. Þetta þýðir þó ekki að þar með sé
loku fyrir það skotið að vísa þessu máli til þjóð-
arinnar. Fimmtudaginn 11. apríl
var dreift í þinginu þingsályktun-
artillögu minni um að hugsanleg
innleiðing þriðja orkupakkans
fari í ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðslu samvæmt lögum um slík-
ar atkvæðagreiðslur.
Í þeirri atkvæðagreiðslu fengi
þjóðin tækifæri til að láta afstöðu
sína í ljós við Alþingi sem síðan
gæti haft vilja þjóðarinnar til hlið-
sjónar við endanlega afgreiðslu
þingmála sem snúa að þriðja
orkupakkanum.
Skýrt og skorinort
Texti þingsályktunartillögu minnar er skýr
og hljóðar svo:
Alþingi ályktar að heimild ríkisstjórnar-
innar til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu
EES-nefndarinnar nr. 93/2017 um breytingu á
IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (þriðji
orkupakkinn) verði borin undir almenning í
ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu, sbr. 1.
mgr. 1. gr. laga um framkvæmd þjóðar-
atkvæðagreiðslna, nr. 91/2010. Þar til sú at-
kvæðagreiðsla hefur farið fram skal fresta
staðfestingu á ákvörðuninni. Eftirfarandi
spurning verði borin upp í þjóðaratkvæða-
greiðslunni:
„Vilt þú að Alþingi heimili ríkisstjórn Ís-
lands að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun
sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017,
frá 5. maí 2017, um breytingu á IV. viðauka
(Orka) við EES-samninginn (þriðji orkupakk-
inn) og aflétta stjórnskipulegum fyrirvara?
Já.
Nei.“
Til viðbótar þessu yrði svo á kjörseðlinum
texti þar sem skilgreint er hvað átt er við með
hugtakinu þriðja orkupakkanum með tilvísun í
þær reglugerðir, tilskipanir og ákvarðanir
ESB sem heyra til þessa máls. Þingskjal
þingsályktunartillögu minnar má sjá á vef Al-
þingis (149. löggjafarþing 2018–2019. Þing-
skjal 1356 — 855. mál. Vefslóð: https://
www.althingi.is/altext/pdf/149/s/1356.pdf).
Gætum kosið í sumar
Samkvæmt 4. gr. laga um framkvæmd þjóð-
aratkvæðagreiðslna skal þjóðaratkvæða-
greiðsla fara fram í fyrsta lagi þremur mán-
uðum og í síðasta lagi einu ári eftir að þings-
ályktunartillaga hefur verið samþykkt á
Alþingi. Þannig yrði hægt að kjósa um þetta
mál í sumar og vilji meirihluta þjóðarinnar í
þessu mikla og umdeilda máli lægi ljós fyrir
þegar þing kæmi saman í sumarlok.
Vonandi fæ ég að mæla fyrir þessari þings-
ályktunartillögu minni um ráðgefandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann sem
fyrst eftir að Alþingi kemur saman eftir
páskahlé á störfum þingsins. Ég trúi ekki öðru
en allir þeir þingmenn sem unna lýðræði, og
ekki síst hugmyndum um beint lýðræði, muni
fagna þessari tillögu minni og leggja sitt af
mörkum til að hún hljóti samþykki meirihluta
á þingi.
Eftir Ingu Sæland » Fimmtudaginn 11. apríl var
dreift í þinginu þingsálykt-
unartillögu minni um að hugs-
anleg innleiðing þriðja orku-
pakkans fari í ráðgefandi þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Inga Sæland
Höfundur er alþingismaður
og formaður Flokks fólksins.
Ráðgefandi þjóðaratkvæði um þriðja orkupakkann
Loftslagsbreytingar á
heimsvísu eru alvarlegt vanda-
mál og sameiginleg áskorun
sem mannkynið stendur
frammi fyrir. Þrátt fyrir að
Kína sé stærsta þróunarríki
veraldar, tekur Kína fulla
ábyrgð og tekur á vandanum
af festu. Svo snemma sem árið
2007 lagði Kína fram sína
fyrstu áætlun til að takast á
við loftslagsbreytingar og var
fyrst þróunarríkja til að taka
upp og koma í framkvæmd aðgerðaáætlun
til að takast á við loftslagsvandann.
Kína hefur verið virkur þáttakandi í sam-
vinnu ríkja heims við að takast á við lofts-
lagsbreytingar. Á loftslagsráðstefnunni 2015
lék Kína lykilhlutverk við að tryggja Par-
ísarsamkomulagið. Forseti Kína, Xi Jinping,
hét því fyrir hönd kínversku ríkisstjórnar-
innar, að heildarlosun CO2 í Kína myndi
fara að dragast saman, ekki seinna en árið
2030, og einnig að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að stuðla að því að losunin
færi að dragast saman mun fyrr. Einnig var
sett það markmið að draga úr hlutfallsegri
losun CO2 á einingu af vergri
landsframleiðslu um 60-65%,
miðað við losun árið 2005, auka
hlut endurnýjanlegra orkugjafa,
á kostnað jarðefnaeldsneytis,
sem orkugjafa landsins upp í
20%, og auka skógrækt um 4,5
milljarða rúmmetra miðað við
árið 2005. Þetta er gríðarlegt
átak, en við höfum fulla trú á að
okkur takist að uppfylla þessi
markmið.
Í menningu Kína ríkir mikil
virðing fyrir náttúrunni og mik-
ilvægt er að sátt ríki í sambúð
manns og náttúru. Kína leggur mikla
áherslu á að skapa vistvæn, endurnýjanleg
vistkerfi sem stuðla að lítilli losun koltvísýr-
ings. Við höfum samofið umhverfismál inn í
áætlanagerðir, bæði til langs og skamms
tíma, og við leggjum mikla áherslu á gott
regluverk til að sem bestur árangur náist á
öllum sviðum tækni og viðskipta.
Með stöðugu átaki hefur Kína náð merki-
legum árangri sem vakið hefur athygli um-
heimsins. Losun CO2 í Kína hafði árið 2017
dregist saman um 46% miðað við hverja
einingu af vergri landsframleiðslu, miðað
við losun árið 2005.
Notkun endurnýjanlegra orkuauðlinda
Kína, sem er 28% af heimsnotkun endurnýj-
anlegrar orku, hefur nú þegar náð því að
vera um 13,8% af orkunotkun Kína. Skóg-
rækt hefur aukist um 2,1 milljarða rúm-
metra og í lok ársins 2017 tókst síðan að
koma á fót kerfi sem heldur utan um los-
unarheimildir og viðskipti með þær á lands-
vísu.
Baráttan við loftslagsbreytingar virðir
engin landamæri. Kína tekur virkan þátt í
alþjóðlegri baráttu við loftslagsvandann og í
gegnum tíðina hefur Kína staðið við sínar
skuldbindingar samkvæmt Suður-Suður
loftslagssamkomulaginu (South-South
Cooperation). Suður-Suður loftslagssjóður-
inn var settur á stofn af Kína árið 2015 með
stofnfé upp á 20 milljarða RMB í þeim til-
gangi að hvetja til samvinnu milli þróunar-
landa á þessu sviði.
Kína hefur nú þegar undirritað samninga
við 34 ríki, og boðið fram vörur og ýmsa að-
stoð í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Kína hefur einnig tekið þátt í þjálfun næst-
um þúsund embættismanna og vísinda-
manna frá meira en 100 þróunarlöndum
sem hefur síðan stuðlað að því að þeir eru
orðnir hæfari við að afla fjár til rannsókna
og berjast gegn loftslagsvandanum.
Þó að Kína og Ísland liggi landfræðilega
langt frá hvort öðru og umhverfi og að-
stæður þjóðanna tveggja séu mismunandi,
deila þessar tvær þjóðir áhuga á að takast á
við þær áskoranir sem fylgja loftslagsbreyt-
ingum, Við getum unnið saman að því að
deila upplýsingum og reynslu ásamt vist-
vænum tæknilausnum og framleiðsluvörum
í gegnum bæði tvíhliða og fjölþjóðlega sam-
vinnu, og saman getum við stuðlað að fram-
kvæmd Parísarsamkomulagsins.
Á þessari löngu og krefjandi vegferð við
verndun móður jarðar, er Kína reiðubúið að
vinna að því í samvinnu við bæði Ísland og
aðrar þjóðir að skapa betri veröld fyrir kyn-
slóðir framtíðarinnar.
Eftir JIn Zhijian » Við höfum samofið um-
hverfismál inn í áætlana-
gerðir og leggjum mikla
áherslu á gott regluverk til að
sem bestur árangur náist á öll-
um sviðum tækni og viðskipta.
Jin Zhijian
Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi.
Ábyrg afstaða Kína gagnvart loftslagsvandanum