Morgunblaðið - 15.04.2019, Page 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Þrjár gerðir: þunnar, með sólarvörn og myrkvunar.
Henta mjög vel í skáglugga og þakglugga.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Til hvers ætlar rík-
isstjórnin að troða
upp á okkur þriðja
orkupakkanum án
þess að við höfum
nokkuð við hann að
gera? Og án þess að
fyrir því sé almennur
vilji meðal þjóðar-
innar eða í grasrótum
stjórnarflokkanna? Og
það þó að EES-
samningurinn heimili
okkur að hafna þessum pakka án
afleiðinga fyrir þann samning? Því
er orkupakka þrjú ekki einfaldlega
hafnað?
Svarið liggur í því að þessi orku-
markaðslagabálkur ESB, orku-
pakki 3, plægir jarðveginn fyrir
tvennt, einkavæðingu Landsvirkj-
unar og lagningu sæstrengs sem
tengir okkur við orkukerfi og
-markað Evrópu. Þar í liggja gríð-
arlegir fjárhagslegir hagsmunir.
Og það liggur sannarlega fyrir
áhuginn á þessu hvoru tveggja,
innan Landsvirkjunar, hjá komm-
issörum ESB og ekki síst hjá ís-
lenskum ráðamönnum, eins og
fréttir bera með sér. Það þarf vart
að fara mörgum orðum um áhug-
ann á Landsvirkjun, en bæði for-
maður og varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins og fleiri ráðherrar
hans, hafa beitt sér í orði og verki
fyrir lagningu þessa sæstrengs,
hvað sem líður svokölluðum fyr-
irvörum sem þau þykjast ætla að
setja varðandi innleiðingu orku-
pakka 3. Þessir fyrirvarar, sem
hafa að sögn hlotið samþykki orku-
málastjóra ESB, munu ekki halda
fyrir dómi ef og þegar á það reyn-
ir. Þessi „sameiginlegi skilningur“
orkumálastjórans hefur nefnilega
ekkert ígildi löggjafarvalds hjá
ESB. Það hefur margoft komið
skýrt fram, m.a. í máli kommissara
ESB, að frávik frá regluverki ESB
er því aðeins mögulegt að um sé
að ræða tímabundna
aðlögun umsókn-
arríkis um aðild að
ESB. Því verður að
telja líklegt, vegna
þeirra hagsmuna sem
þarna togast á, að á
þetta muni reyna fyrir
dómi. Sá dómur
(EFTA-dómstóllinn)
dæmir eftir ESB-
lögum en ekki hinum
„sameiginlega skiln-
ingi“ orkumálastjóra
og óskhyggju ís-
lenskra pólitíkusa.
Þriðji orkupakkinn plægir þannig
leiðina fyrir sæstrenginn sem
sannarlega er á áætlun í Brussel
og er á endanum einnig samkvæmt
áður auðsýndum vilja þeirra ráð-
herra sem nú veifa framan í okkur
fyrirvörum og „sameiginlegum
skilningi“ embættismanna í Bruss-
el.
Það er aðeins í blekkingaskyni
sem því er haldið fram að höfnun
þessa orkupakka ógni EES-
samningnum, því hann heimilar
okkur einmitt slíka afstöðu. Það er
hins vegar ljóst að sæstrengurinn
mun valda stórhækkuðu orkuverði
til allra notenda hér á landi, stórra
sem smárra, t.d. vegna jafnaðar-
stefnu ESB og eins og kunnugt er,
er húshitunarkostnaður annarra
Evrópulanda mun hærri en hér.
Það er líklega eini kostnaðarliður-
inn í heimilisrekstrinum sem við
njótum góðs af í samanburði við
aðra Evrópubúa. Og stjórn þess-
ara mála verður alls ekki í okkar
eigin höndum, heldur í Brussel.
Það er jú einmitt megintilgangur
þessa pakka, að færa stjórn orku-
mála í Evrópu undir einn hatt, s.s.
til Brussel. Innleiðing þriðja orku-
pakkans mun þess vegna valda því
að þegar afleiðingar þess fara að
bíta með stórauknum rekstrar-
kostnaði íslenskra heimila, þá mun
verða mun háværari, krafan um að
rifta EES-samningnum. Það mun
lítið stoða að halda fram þjóðhags-
legri hagkvæmni þessa samnings,
þegar almenningur finnur fyrir
þveröfugum áhrifum á eigin skinni.
Sama gildir um meinta þjóðhags-
lega hagkvæmni þess að geta selt
umframorku um þennan sæstreng.
Þjóðhagsleg hagkvæmni mælist
nefnilega ekki í óskhyggju pólitík-
usa. Hún mælist heldur ekki í
buddum eigenda orkuvera, dreifi-
kerfa eða sæstrengja. Hún finnst
hins vegar vel í rekstri heimila.
Ef það á með réttu að halda því
fram að EES-samningurinn sé
okkur svo hagkvæmur að mikil-
vægt sé að halda honum í gildi, þá
stafar einmitt mun meiri hætta af
innleiðingu þriðja orkupakkans en
því að hafna honum. Nú þegar er
orðin mikil andstaða gegn þessum
samningi vegna ásælni ESB-
valdsins í fullveldi okkar, gegnum
þennan samning. Innleiðing laga-
bálks frá Brussel sem hirðir af
okkur mjólkurkúna (Landsvirkjun)
og íþyngir verulega búsetuskil-
yrðum okkar hér mun verða bana-
biti EES-samningsins.
Önnur fyrirsjáanleg afleiðing
þessarar innleiðingar er stórdýpk-
uð gjá milli forystu og þingliðs
stjórnarflokkanna annars vegar og
grasrótahreyfinga þeirra hins veg-
ar. T.a.m. mættu ráðherrar og
þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
sem nú fara fyrir þessari innleið-
ingu orkupakka 3, rifja upp sam-
þykktir síðasta landsfundar eigin
flokks um einmitt þetta.
Eftir Þorkel Á.
Jóhannsson » Það mun lítið stoða
að halda fram þjóð-
hagslegri hagkvæmni
EES-samningsins, þeg-
ar almenningur finnur
fyrir þveröfugum áhrif-
um á eigin skinni.
Þorkell Á.
Jóhannsson
Höfundur er flugmaður og
rekstraraðili heimilis í landinu.
Um þjóðhagslega
hagkvæmni, EES og þriðja
orkupakkann
Auðlindir landsins
eru Íslendinga og
um það eru nær allir
sammála. Það sást í
skoðanakönnun að
yfir 90 % kjósenda
Sjálfstæðisflokksins
telja það en sumir
flokkar voru ekki
með nema 60% fylgj-
andi því. Auðlind-
irnar þurfum við að
verja með lögum. Umræðan um
þriðja orkupakkann og vegferðin
sem utanríkisráðherra og atvinnu-
vegaráðherra eru nú á geta stuðlað
að því. Málalok ráðast á Alþingi.
Við undirritaðir höfum lengi var-
að við upptöku þriðja orkupakkans
og afsali Íslendinga yfir stjórn auð-
linda okkar. Málið er komið á það
stig vegna andvaraleysis fyrrver-
andi utanríkisráðherra, að það er
komið allt of langt í samþykktar-
ferlinu og lítill tími til stefnu, að
setja skýr lög um auðlindastýringu
vatns- og jarðvarmavirkjana þannig
að yfirráð okkar yfir auðlindunum
séu skýr og ótvíræð. Eftir heils árs
þétta umræðu um málið hefur nú
þætti sæstrengs og fullveldis verið
frestað um sinn, en lítið skýrst um
það hvernig málin standa að þeim
fresti liðnum. Hvað er hægt að
gera til að standa betur í næsta
áfanga baráttunnar um fullveldi
okkar varðandi okkar eigin auðlind-
ir?
Alþingi getur ekki án ítarlegrar
skoðunar ákveðið að fella þriðja
orkupakkann og vona svo það besta
hvernig fer með milliríkjasamninga
okkar. Utanríkisráðherra hefur
tekið mikilvægt skref í málinu með
sameiginlegri fréttatilkynningu
sinni og orkumálastjóra ESB, en
þar segir meðal annars: „Gildandi
ákvæði þriðja orkupakkans hafa
engin áhrif á fullveldi ríkisstjórnar
Íslands yfir orkuauðlindum Íslands
og ákvörðunarvald yfir nýtingu og
stjórnun þeirra.“ Í þessari setningu
er fjallað um mun meira vald en
það eitt að gefa út virkjanaleyfi.
Þarna er líka verið að tala um
stjórnun lóna og vatnsbúskapar. Þá
hefur ríkisstjórnin ekki síður full-
veldi til að tryggja, að jarðvarma-
svæði séu ekki ofnýtt eða blóð-
mjólkuð þannig að til skaða sé fyrir
framtíðina og vægi rammaáætlunar
í skipulagi á nýtingu auðlindanna
er ekki veigaminnsti þáttur þessa
fullveldis. Í þessari fréttatilkynn-
ingu er skýrt það fullveldi sem
hefði þurft að tryggja með lögum
áður en þriðja orkupakkanum var
hleypt inn í sameiginlegu EES
nefndina, en nú er málið komið
þaðan út og enn liggur ekki fyrir
hvort eða hvernig Alþingi getur
bætt úr þeim mistökum sem gerð
voru.
Fyrsti og annar orkupakki ESB
gekk út á að löndin skyldu tengja
raforkukerfi sín eins og best hent-
aði hverju og einu og mynda þann-
ig sameiginlegan markað. Í ljós
kom að mörg ríki ESB voru ekkert
áfram um þessa stefnu og viðbrögð
ESB voru þá þau að yfirtaka vald
ríkjanna yfir orkukerfum þeirra.
Fyrsti áfangi þeirrar yfirtöku er
þriðji orkupakkinn sem nú er til
meðferðar á Alþingi og mælir fyrir
um, að stofna til sjálfstæðs lands-
reglara í hverju ríki. Næsti áfangi
er að leggja valdið til að ákveða
millilandatengingar (sæstreng)
undir framkvæmdastjórn ESB.
Þriðji áfanginn næst svo með fjórða
orkupakkanum, en þá skal stjórna
raforkukerfum ríkjanna frá svæð-
isbundnum stjórnstöðvum innan
ESB. Þar með er lokið tæknilegri
yfirtöku ESB á raforkukerfum
ríkja ESB, líka EFTA-landanna.
Hér fylgja auðlindirnar með í
kaupunum vegna þess að hér vant-
ar sérstök lög um stjórnun auðlinda
og því falla þær á eðlilegan hátt
undir stjórn landsreglarans sem
hluti raforkumála og þar með
ACER þrátt fyrir viðurkennt full-
veldi okkar í þeim málum. Að láta
þetta ganga fram er að glutra niður
fullveldinu og segja sumir lögfræð-
ingar að stjórnarskráin banni það
ekki.
Í Evrópu eru raforkukerfi að
stærstum hluta byggð upp á elds-
neytiskerfum í eigu einstaklinga og
fyrirtækja en hér er það landið og
auðlindir þess sem gefa okkur
orkuna og eeru nn að stærstum
hluta í eigu opinberra aðila. Með
markaðsstýringu á raforkunni verð-
ur auðlindinni stýrt án tillits til
heildarhagsmuna þjóðarinnar. Þá
má benda á að fjárfestar ESB/
EES-svæðisins og þar með íslensk
orkufyrirtæki geta átt kost á fjár-
hagslegum stuðningi frá ESB
vegna orkuframkvæmda sem eru í
samræmi við stefnu ESB og hverj-
um sem er innan ESB er heimilt að
kaupa og ráðstafa sínu landi í sína
þágu. Það að hér séu ekki neinar
teljandi takmarkanir á ráðstöfun
lands og landsréttinda er áhyggju-
efni sem þörf er á að skoða.
Það ár sem liðið er af umræðunni
um þriðja orkupakkann hefur verið
notað til að skýra möguleg stjórn-
skipuleg vandkvæði vegna sam-
þykktar hans. En það fullveldi sem
um er rætt hér að framan hefur
enn ekki verið skilgreint stjórn-
skipulega og lögfræðingum því
ókleift að meta áhrif þriðja orku-
pakkans á þann hluta fullveldis
okkar út frá stjórnskipulegum sjón-
armiðum. Það er nú verkefni Al-
þingis, að koma á þeirri stjórn-
skipan sem þarf til að tryggja fullt
og óskorað fullveldi yfir orkuauð-
lindum okkar.
Við höfum enn tíma. Skorum við
á að ríkisstjórn og Alþingi að nýta
sér þær upplýsingar sem komið
hafa fram í þeirri umræðu sem
áunnist hefur. Tryggjum forræði
Íslands yfir auðlindum okkar og
vinnum að skynsamlegri orkustefnu
fyrir land og þjóð til framtíðar.
Tryggjum þjóðinni
íslenskar auðlindir
Eftir Elías
Elíasson og Svan
Guðmundsson
» Allt of langt er komið
í samþykktarferlinu
og lítill tími til stefnu að
setja skýr lög um auð-
lindastýringu vatns- og
jarðvarmavirkjana
þannig að yfirráð okkar
yfir auðlindunum séu
skýr og ótvíræð.
Elías er sérfræðingur í orkumálum.
Svanur er sjávarútvegsfræðingur.
Svanur
Guðmundsson
Elías
Elíasson
Allt um
sjávarútveg