Morgunblaðið - 15.04.2019, Qupperneq 18
✝ GuðlaugurIngimundarson
fæddist í Hjarðar-
nesi á Kjalarnesi
24. október 1940.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 2. apr-
íl 2019.
Foreldrar hans
voru Ingimundur
Bjarnason, f. 27.
nóvember 1919, d.
25. ágúst 1989, og Guðrún
Guðlaugsdóttir, f. 3. september
1920, d. 17. desember 2005.
Þau eignuðust fjögur börn;
Báru, f. 1939, d. 1992, Guð-
laug, f. 1940, Ingu, f. 1945 og
Guðrún, f. 1966, gift Garðari
Helga Magnússyni og eru
þeirra börn Bjarki Dan, f.
1990, og Sindri Dan, f. 1993. 3)
Guðlaugur Ingi, f. 1977, sam-
býliskona hans er Manuela
Magnúsdóttir og þeirra börn
eru Kári, f. 2012, og Sóley, f.
2016.
Guðlaugur ólst upp í
Reykjavík, fyrst við Laugaveg,
síðan í Blesugróf. Guðlaugur
og fjölskylda bjuggu lengst af í
Birkigrund í Kópavogi en áður
í Geitlandi. Síðustu árin bjó
hann á Ásbraut í Kópavogi.
Guðlaugur starfaði í fjölda ára
hjá Kassagerð Reykjavíkur
sem umbúðahönnuður og síðar
hjá Söðlasmiðnum. Hann var í
áratugi virkur í starfi Odd-
fellowreglunnar.
Útför Guðlaugs verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag, 15.
apríl 2019, og hefst athöfnin
klukkan 11.
óskírða stúlku, f.
1945, d. sama ár.
Hinn 22. nóv-
ember 1963
kvæntist Guð-
laugur Sigríði Þ.
Sigurmundsdóttur,
f. 1941. Þau slitu
samvistum 1991.
Þau eignuðust
þrjú börn. Þau
eru: 1) Linda, f.
1964, hennar börn
eru Signý, f. 1987, hennar
maki er Ragnar Þór Risten og
þeirra dóttir er Friðdís Eir, f.
2017, Valgerður, f. 1993, og
Páll, f. 1996. Maki Lindu var
Gestur Pálsson, þau skildu. 2)
Elsku afi Laugi, skyndilega
ertu farinn. Ég bjóst ekki við því
þegar þú komst milli jóla og nýárs
til að hjálpa okkur í nýju íbúðinni
okkar að þú yrðir farinn svona
fljótt. Þú varst glettinn maður,
hafðir mjög gaman af að atast í
mér þegar ég var yngri. Þóttist
alltaf vera tilbúinn í slaginn. Sér-
staklega eru mér minnisstæðir
bolludagarnir þegar þú komst og
vildir endilega að við tækjum
tannstöngul fyrir hverja bollu, svo
hægt væri að telja stönglana í lok-
in, en mig grunar að þú hafir nú
komið með aukatannstöngla með
þér í vasanum fyrir allar keppnir
þannig að þú stæðir alltaf uppi
sem sigurvegarinn.
Léttur í fasi varstu afi minn, þú
sýndir mér væntumþykju þína í
verki frekar en í orðum. Útsjón-
arsamur, oft gafstu mér ráð löngu
síðar við einhverju sem við höfð-
um rætt saman um, þá varstu
sjálfur búinn að íhuga lausnina.
Ég gat alltaf farið til þín í létt
spjall og talað um allt og ekkert.
Ég gleymi aldrei seinustu stund
okkar saman heima hjá þér þegar
ég kom með rjómabollur og bol-
luátið endaði í jafntefli.
Þegar Karó kom í líf mitt
tengdist þú henni strax og varst
mjög ljúfur við hana. Ég man þeg-
ar þú gafst henni gamla Polaroid-
myndavél þegar þú fréttir að hún
væri í ljósmyndanámi. Hún mun
varðveita hana vel. Elsku afi, við
Karó vonum að þér líði vel þar
sem þú ert.
Hvíl í friði.
Bjarki og Karólína.
Elsku afi Laugi. Takk fyrir öll
yndislegu ævintýrin. Þær voru
ófáar útilegurnar og veiðiferðirn-
ar sem við fórum í með þér. Þú
munt ferðast með okkur í hjart-
anu héðan í frá. Hér fylgir sá úti-
Guðlaugur
Ingimundarson
legusöngur sem við tengjum svo
sterkt við þig.
Þegar vorsólin leikur um vangann á
mér,
þegar veröldin fyllist af söng.
Þegar gróandi um sveitirnar fagnandi
fer,
finnst mér gatan í bænum of þröng.
Þá held ég til fjalla, og glatt er mitt
geð.
Gríptu stafinn þinn og malinn þinn
og svefnpokann og prímusinn
og tjaldið þitt og komdu bara með.
(Tryggvi Þorsteinsson)
Guð geymi þig.
Ástarkveðja,
Signý, Valgerður
og Páll.
HINSTA KVEÐJA
Að lokum eftir langan, þungan
dag,
er leið þín öll. Þú sest á stein við
veginn,
og horfir skyggnum augum yfir
sviðið,
eitt andartak.
Og þú munt minnast þess,
að eitt sinn, eitt sinn, endur fyrir
löngu
lagðir þú upp frá þessum sama
stað.
(Steinn Steinarr)
Kæri afi Laugi, takk
kærlega fyrir allar góðu
stundirnar. Minning þín
mun lifa áfram í hjörtum
okkar.
Sindri.
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
✝ Guðrún JúlíaValgeirsdóttir
fæddist í Reykjavík
17. desember, 1933.
Hún lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 5. apríl 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Valgeir
Jónsson trésmíða-
meistari, f. 10.8.
1890, d. 12.7. 1950,
og Dagmar Jóns-
dóttir, húsfreyja og verkakona,
f. 12.8. 1895, d. 7.5. 1986. Systk-
ini Guðrúnar voru: Sigríður
Þóra Valgeirsdóttir, f. 15.11.
1919, d. 3.9. 2011, Ingibjörg Val-
geirsdóttir Ferrentino, f. 29.6.
1925, d. 16.6. 2011, og Geir Val-
geirsson, f. 4.12. 1935, d. 11.8.
2010. Hún giftist Jósafat Arn-
grímssyni athafnamanni, f. 12.5.
1933, d. 13.7. 2007, þann 26.12.
1953, þau voru gift í 25 ár. Börn
þeirra eru: 1) Arnhildur Ásta,
starfsmaður LSH og fyrrv. flug-
freyja, f. 10.12. 1954, býr í
Reykjavík. Fyrrv. eiginmaður
hennar er Wichert Jan van Aal-
derink viðskiptafræðingur, f. í
Hollandi 26.4. 1963. Tvíburar
Reykjavík. 4) Ómar Örn skrúð-
garðyrkjumeistari, f. 22.11.
1960, kvæntur Hörpu Guð-
mundsdóttur viðskiptafræðingi,
f. 29.5. 1963. Sonur hennar er
Andri Hjartarson, f. 29.4. 1986.
Dóttir þeirra er Dagmar, f. 25.2.
1995. Þau búa í Kaupmannahöfn.
Dúdú var hún kölluð frá unga
aldri. Hún ólst upp hjá for-
eldrum sínum í Reykjavík, gekk í
Kvennaskólann og var nýbyrjuð
í Menntaskólanum í Reykjavík
þegar faðir hennar féll frá, þá
var hún 17 ára og neyddist til að
hætta í MR. 20 ára giftist hún og
bjó í Stapakoti, Innri-Njarðvík.
Þaðan var flutt á Holtsgötu 27,
síðan 37, Ytri-Njarðvík. Frá 1978
til 2011 bjó hún í Keflavík, síð-
ustu árin bjó hún í Reykjavík.
Um 1962 hófu þau hjón versl-
unarrekstur í Keflavík undir
nafninu Kyndill. Hún vann aðal-
lega við blómaskreytingar, 1979
stofnaði hún verslunina Blóma-
stofa Guðrúnar og rak hana til
ársins 2000, þegar hún fór á eft-
irlaun. Dúdú var lengi í Kven-
félagi Njarðvíkur, stjórn Sorop-
timista í Keflavík og sóknar-
nefnd Njarðvíkurkirkju. Hún var
ein af hvatamönnum þess að
kirkja var byggð í Ytri-Njarðvík.
Einnig tók hún virkan þátt í fé-
lagsstörfum Jósafats.
Útför hennar fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 15.
apríl 2019, klukkan 13.
þeirra eru Eline
Júlía og Joël Rík-
harður, f. 3.12.
1996. Búa í Hol-
landi. 2) Valgeir Vé-
steinn listamaður, f.
16.11. 1956. Hann á
Guðrúnu Yeatzin, f.
4.4. 1994, og Gunn-
ar, f. 20.1. 1996,
með fyrri konu
sinni, Citlali B. Med-
ina Sanson, f. 22.7.
1965. Þau eru búsett í Mexíkó.
Eiginkona hans er Yolanda Lóp-
ez Corona, grafískur hönnuður,
f. 21.8. 1976, börn þeirra eru:
Davíð Gabriel, f. 11.3. 2000, Dag-
mar Maria, f. 27.9. 2004, og Katr-
ín Ísey, f. 14.2. 2014, búa í
Reykjavík. 3) Ríkharður Mar
nálastungulæknir, f. 23.7. 1959.
Með fyrri konu sinni, Söndru J.
Svavarsdóttur, f. 7.6. 1961, á
hann Rúnar Bjarka, f. 16.8. 1978,
sem á langömmubarn Guðrúnar,
Max, f. 19.9. 2010, og Svavar
Inga, f. 27.6. 1982. Ríkharður er
kvæntur Judith Penrod hjúkr-
unarfræðingi, f. í Bandaríkj-
unum 26.6. 1966, og eiga þau
Adam Emil, f. 9.8. 2002, búa í
Eiginlega vildi mamma ekki að
við börnin skrifuðum minningar-
grein um hana. Hún kærði sig
aldrei um lofsöng eða upphafn-
ingu. En ég ætla að vera óþekk við
hana í seinasta sinn.
Ég hef verið svo lánsöm að
njóta samveru hennar í 64 ár.
Margt hefur á daga okkar drifið,
en mamma stóð alltaf eins og
klettur, bjartsýn, ráðagóð og var
ötull talsmaður fyrirgefningarinn-
ar. Anda og halda áfram hefði get-
að verið hennar mottó.
Fyrir tveimur árum flutti ég
aftur til Íslands eftir 22 ára búsetu
í Hollandi. Þá var aldeilis notalegt
að geta búið aftur hjá mömmu, en
ég var 15 ára þegar ég flutti til að
fara í skóla. Við notuðum tímann
vel, gátum gert upp gömul mál og
horft til bjartrar framtíðar.
Þau ár sem ég bjó úti komum
við fjölskyldan oft í heimsókn til
Íslands. Það var aldrei neitt mál
að hýsa okkur og gefa okkur
ömmu Dúdú-mat. Eline Júlía og
Joël Rikharður nutu frásagnar-
hæfileika hennar og hún var dug-
leg að leiðrétta íslenskuna þeirra.
En bæði eru þau sammála um að
hún hafi alltaf verið svo bjartsýn.
Það var alveg sama hvort við
kæmum til hennar í fimm mínútur
eða fimm daga, hún var alltaf
þakklát.
Ég læt hér staðar numið.
Hjarta mitt og hugur eru full af
þakklæti og góðum minningum
um mína einstöku móður.
Arnhildur Á. Jósafatsdóttir.
Mig langar að segja nokkur orð
um tengdamóður mína Dúdú. Ég
sat í húsinu þínu í dag og það var
svo rólegt. Venjulega var útvarpið
í gangi inni í svefnherberginu á
Rás 1 og sjónvarpið í hinu her-
berginu.
Ég bjóst hálfpartinn við því að
þú kíktir út úr næsta herbergi og
segðir: Viltu ekki kaffi?
Ég veit að þér hefur ekki liðið
vel í langan tíma en þú vildir aldrei
kvarta eða trufla neinn. Ég veit að
þú vissir að tíminn væri naumur
og þú hefur verið að undirbúa að
setja allt í röð og reglu sl. ár.
Ég mun sakna þín. Ég mun
sakna karakters þíns, sagnanna
þinna og vináttu þinnar. Þakka
þér fyrir að hafa fært Rikka skóna
sína á sínum tíma og að hafa hvatt
hann til að vera kyrr, fyrir það er
ég að eilífu þakklát. Þakka þér
fyrir allt kaffið og vináttu þína.
Þú varst einstök manneskja og
snertir svo marga og gleymist
aldrei. Fjölskylda þín var þitt stolt
og þú varst ávallt reiðubúin að
gera allt fyrir okkur án þess að
hugsa þig tvisvar um.
Eina sem við þurftum að gera
var að hringja og þú varst lögð af
stað, þú varst aldrei upptekin. Ég
er svo glöð að þú bjóst svo nærri
okkur að þú gast fylgst með okk-
ur. Ég er svo þakklát fyrir allar
minningarnar, tímann og ástina
sem þú gafst okkur öllum. Góða
ferð, hagaðu þér skikkanlega
þarna uppi og njóttu verðskuld-
aðrar hvíldar.
Ég elska þig,
Judith Ann Penrod.
Guðrún Júlía Valgeirsdóttir var
bjartsýn. Hún lést 5. apríl 2019.
Viku áður höfðum við þrjú spjallað
símleiðis við hana. Í lok samtalsins
bað hún mig: „Sendu nú smá sól til
Íslands, við þurfum á henni að
halda.“
Þegar við fyrst hittumst, vetur-
inn 1995, þá rak hún Blómastof-
una í Keflavík og seldi þar m.a.
blóm frá Hollandi. Hún gaf sér
alltaf tíma í gott spjall við þá sem
þurftu þess með.
Átti Dúdú margar hamingju-
stundir í lífinu, en einnig mörg
áföll.
Hún talaði um liðna tíð, en var
fyrst og fremst upptekin af dags-
daglegum hlutum og var alltaf for-
vitin og spennt fyrir framtíðinni.
Fjölskyldan var henni mjög
mikilvæg. Amma Dúdú dáði
barnabörnin. Eline Júlía og Joel
Ríkharður nutu góðra stunda með
henni. Hún sagði þeim af reynsu
sinni og hugmyndum til að gefa
þeim gott veganesti. Guðrún hélt
mikið upp á bókmenntir og heim-
speki.
Í dag, viku eftir að hún hóf ferð
sína til himins, er ég í Reykjavík í
miklu roki. Ég heyrði djasslag í
útvarpinu: How deep is the
Ocean? með Bill Evans-tríói,
svona lag sem ég hefði getað heyrt
heima hjá henni. Hún var alltaf
með kveikt á útvarpinu, þannig að
mismunandi tónlist barst okkur til
eyrna. Ég sá mig fyrir mér sitj-
andi með henni að hlusta á þetta
lag og síðan að velta spurningunni
fyrir okkur, vitandi að hennar svar
yrði alltaf það jákvæðasta sem
nokkur gæti fundið.
Takk Dúdú.
Wichert Jan van Aalderink,
Hollandi.
Móðursystir mín Guðrún Júlía
Valgeirsdóttir (Dúdú) varð bráð-
kvödd hinn 5 apríl sl. Hún var
seinust sinna systkina að kveðja
okkur sem eftir ganga, en allt frá
mínum fyrstu minningum hefur
Dúdú verið einn af hornsteinum
stórfjölskyldunnar og mikil eft-
irsjá að henni. Til huggunar er að
ég átti við hana hlýlegt og gott
samtal fyrir nokkrum vikum en
það var alltaf ánægjulegt að eiga
með henni samræður um heimsins
málefni. Hún bjó yfir mikilli lífs-
reynslu eftir langt ævistarf frá
búðarrekstri og hafsjó af visku
sem hún deildi og gat leitt yfir í
langar samræðustundir.
Seinustu árin bjó Dúdú við
Flétturima í Grafarvogi og var þar
miðsvæðis þriggja barna sinna,
sem ásamt fjölskyldum sínum
voru ötul við að aðstoða hana sein-
ustu árin þegar svo bar undir.
Annars var Dúdú jafn viðkunnan-
leg og skörp í hugsun alla sína tíð.
Hún hélt fallegt heimili og var op-
in fyrir heimsóknum, nokkuð sem
ég reyndi að nýta mér en það var
alltaf jafn ánægjulegt að koma til
hennar.
Þær systurnar Dúdú og Sigríð-
ur áttu ásamt móður sinni það
sameiginlegt að vera afburða and-
lega sterkar konur, sem erfiðleik-
ar lífsins virtust ekki bíta mikið á.
Þessar þrjár konur ásamt Geir
bróður þeirra systra mótuðu
grunnstoðir stórfjölskyldunnar á
mínum uppeldisárum.
Ég kveð því Dúdú með söknuði
og hlýjum hugsunum frá þeim ár-
um sem ég fékk að njóta í hennar
samvist.
Af sínum fjögurra systkina hópi
var þó eitt sem Dúdú virtist eiga
mikið af en það var ræktun vinátt-
unnar og tengslabönd við sína
ættingja og vini. Öll árin sem hún
bjó í Innri- og Ytri-Njarðvík og
seinna í Keflavík var hún ötul við
að heimsækja og taka á móti vin-
um og ættingjum svo ekki sé
minnst á öll símtölin. Það var engu
líkara en hún byggi yfir æðri
skilningi á merkingu orðsins
„traust“ og þegar kom að fjöl-
skyldu og ættingjum voru kær-
leiksböndin traustlega bundinn og
órjúfanleg. Nokkuð sem við kyn-
slóðirnar, sem á eftir koma, getum
tekið til fyrirmyndar. Þegar ég
hugsa aftur til þess tíma þegar
Dúdú og hennar fjölskylda bjó í
Ytri-Njarðvík kemur upp hafsjór
af ánægjulegum minningum og
þakklæti fyrir að fá að kynnast
börnum hennar en við áttum oft
ánægjulegar stundir saman á
þessum árum. Einnig eru mér
minnisstæðar skemmtilegar
stundir ásamt Jósafat föður þeirra
en hann var alltaf tilbúinn að gera
heimsóknir okkar krakkanna
ánægjulegar og var örlátur þann-
ig að við gátum stytt okkur stund-
ir í leik og gleði.
Ég sendi börnum Dúdúar, þeim
Ástu, Valgeiri, Ríkharði og Ómari,
innilegar samúðarkveðjur.
Ingólfur Hjörleifsson.
Sérhver ævi rennur sitt skeið.
Við leiðarlok er ljúft að minnast
Guðrúnar vinkonu foreldra okkar
og okkar systra.
Dúdú var falleg kona, fjörleg í
fasi, hreinskiptin og harðdugleg.
Hún hafði næmt fegurðarskyn og
heillandi verkvit. Allar fengum við
systur notið leiðsagnar hennar til
vinnu í verslunum hennar.
Dúdú hafði eðlislæga sam-
kennd með samferðafólki sínu.
Virðingu sýndi hún viðskiptavin-
um sínum og velferð fjölskyldunn-
ar, vina og vandamanna vó þyngst
á hennar vogarskál.
Hún stóð keik í stafni og tók
lífsins storma í fangið af reisn sem
alla tíð vakti aðdáun okkar systra.
Heillandi brosið, þétta faðmlag-
ið, asaganginn og allar ljúfu minn-
ingarnar geymum við með okkur.
Síðustu
geislar sólar
í vestur horfnir
Fyrstu
geislar í austri
endurbornir
(Gunnar Dal)
Með virðingu og væntumþykju
vottum við Ástu, Valgeiri, Rík-
harði, Ómari og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð.
Auður, Hildur,
Björg og Rósa.
Guðrún Júlía
Valgeirsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Hún Dúdú var ein af
merkilegustu manneskjun-
um í lífi mínu. Hún var allt-
af til staðar og hún reyndi
alltaf að hjálpa ef hún gat.
Hún var búin að hjálpa mér
mjög mikið í gegnum líf
mitt og hennar verður sárt
saknað.
Adam Emil Ríkharðsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
HALLDÓR AÐALSTEINSSON,
Depluhólum 3,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 7. apríl á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Að ósk hins látna mun útförin fara fram í kyrrþey.
Sveinn Ingi Halldórsson Gunnur Gunnarsdóttir
Friðrik A. Halldórsson Hjálmfríður Bjarnadóttir
Guðmundur J. Halldórsson
Helga Sóley Halldórsdóttir Ólafur Ólafsson
Guðrún Fjóla Halldórsdóttir Pétur Pálsson
Tómas Halldórsson Catherine Halldórsson
Ester Halldórsdóttir Magnús Örn Stefánsson
Kolbrún S. Halldórsdóttir Benjamín Friðriksson
Halldór Antonsson
afabörn, langafabörn og langalangafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
ÓFEIGUR GESTSSON,
Smáraflöt 16, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn
2. apríl.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 15. apríl
klukkan 13.
Svanborg Þórdís Frostadóttir
Björn Ófeigsson Mjöll Jónsdóttir
Jón Gestur Ófeigsson Lilja G. Guðmundsdóttir
Gunnar Þór Ófeigsson Kelly O´Donnell
Vala Kristín Ófeigsdóttir Helgi H. Traustason
Katla Kristín Ófeigsdóttir
Sigrún Hannesdóttir Snorri Snorrason
Valdís B. Hálfdánardóttir Rúnar Þór Númason
Frosti Bjarnason Juliana Dos Santos
Aron Bjarnason
og barnabörn