Morgunblaðið - 15.04.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
40 ára
Sjöfn er
Hafnfirð-
ingur en býr
í Reykjavík.
Hún er við-
skiptafr. og er verkefna-
stjóri mannauðsmála hjá
Nordic Visitor.
Maki: Einar Egill Halldórs-
son, f. 1979, verkfræð-
ingur og framkvæmda-
stjóri Kambstáls.
Börn: Eva Sóllilja, f. 2005,
Herdís Eik, f. 2008, og
Þórarinn Sjafnar, f. 2017.
Foreldrar: Yngvi Eiríks-
son, f. 1948, og Herdís
Guðmundsdóttir, f. 1947.
Sjöfn
Yngvadóttir
Krossgáta
Lárétt:
1)
7)
8)
9)
11)
14)
15)
18)
19)
20)
Stunu
Tætir
Nál
Þveng
Glæ
Rispa
Karta
Gróf
Bölva
Brandarar
Getur
Starf
Efa
Reitt
Klökk
Afls
Sukki
Ræðan
Akks
Pár
2)
3)
4)
5)
6)
10)
12)
13)
16)
17)
Lóðrétt:
Lárétt: 1) Sambland 7) Ofnar 8) Konu 9) Kusk 11) Smá 14) Töf 15) Illa 18) Árás 19) Rétta
20) Ávinning Lóðrétt: 2) Annast 3) Borg 4) Afkimi 5) Dóni 6) Fokka 10) Kölski 12) Álitin
13) Talað 16) Hrjá 17) Brún
Lausn síðustu gátu 371
8 2 3 4
1
6 3 9 2
8 2
3 7
6 4
4 3 9 1
7 1 8
8 7
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni.
9 1 7 8 2 6 5 3 4
3 2 8 5 9 4 7 1 6
5 4 6 3 7 1 9 8 2
1 8 4 2 6 9 3 5 7
6 9 3 4 5 7 8 2 1
2 7 5 1 3 8 6 4 9
4 3 9 7 8 2 1 6 5
7 5 1 6 4 3 2 9 8
8 6 2 9 1 5 4 7 3
Ólyfjan er eitur, eða „göróttur, hættu-
legur drykkur“ (ÍO). Orðið er til í hvor-
ugkyni en nú er kvenkynið miklu al-
gengara. Eins í þrem föllum en svo: (til)
ólyfjanar. Með greini ólyfjanin, um
-ina, frá -inni, til ólyfjanarinnar. (Eng-
in fleirtala.) Megi hvorugkynið hvíla í
friði, nógur ruglingur er á hinu.
Málið
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú ert tíminn til
að viðra vandamál sem
þú hefur lengi falið.
Sýndu börnum skilning.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér hlýnar um
hjartarætur í samtölum
þínum við aðra í dag.
Láttu fortölur annarra
ekki draga úr þér kjark-
inn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar allt kem-
ur til alls er það vináttan
ssem skiptir mestu máli.
Þú færð góðar fréttir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ferskar hug-
myndir og ný nálgun mun
koma þér að gagni í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Farðu í búð sem
selur eitthvað notað því
þú finnur eitthvað dýr-
mætt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir ekki að
þurfa að borga fyrir ann-
arra manna mistök. Ekki
bera ljúgvitni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er margt sem
fyrir liggur hjá þér þessa
dagana. Reyndu að sjá
hlutina úr fjarlægð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er lag til
að söðla um og taka upp
nýja siði. Vertu þolinmóð/
ur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur þurft
að sætta þig við þreng-
ingar á undanförnum ár-
um. Nú verður breyting á.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skjótt skipast
veður í lofti og gott að
vera við öllu búinn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu óhrædd/
ur við að fylgja eigin til-
finningum. Farðu varlega í
umferðinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Tíminn bíður ekki
eftir neinu eða neinum.
Heilsan ekki heldur.
púða sem hún skreytti með kuðung-
um og skeljum. Hugmyndarík er
María með eindæmum og hefur fram-
kvæmt það sem kemur upp í hugann
og sér fegurðina í ólíklegustu hlutum.
Upp frá þessum hugmyndum hélt
hún listsýningar víða um land. Hún
lærði að skera út í tré, bjó til listmuni
úr leir, prjónaði og saumaði föt á
barnahópinn sinn og fleiri í sveitinni,
ásamt því að hugsa um 12 manna
heimili. „Í dag er ég aðallega að hekla
og klippa út myndir úr pappír,“ segir
M
aría Jónsdóttir fædd-
ist 15. apríl 1918 á
Blönduósi. Hún
flutti ung að Litlu-
Giljá, þaðan að Ref-
steinsstöðum í Víðidal og síðan níu
ára að Hlíð á Vatnsnesi. Þar ólst hún
upp á stóru sveitaheimili við almenn
sveitastörf. Í Hlíð var farskóli og var
því skólaganga hennar á eigin heimili.
Hún ólst upp við rímnakveðskap, fað-
ir hennar, Jón Lárusson kvæðamað-
ur, kenndi börnum sínum þá list.
María fór ung að heiman til vinnu,
m.a. vann hún á klæðskeraverkstæði
í Reykjavík.
Faðir hennar fór haustið 1928 með
þrjú elstu börnin sín, Sigríði, Pálma
og Maríu, sem var þá 10 ára, í 6 vikna
tónleikaferð um landið þar sem þau
kváðu stemmur fyrir fullu húsi marg-
sinnis í Gamla bíó og Hafnarfirði,
sigldu síðan með strandferðaskipinu
„Drottningin“ vestur á Ísafjörð og
Hnífsdal og fóru fótgangandi til Bol-
ungarvíkur til að skemmta. Að lokum
var haldið norður fyrir land, sjóleið-
ina til Sauðárkróks í afar vondu veðri
og enn var kveðið. Árið 1930 fóru
Pálmi og María með föður sínum til
Reykjavíkur að kveða inn á plötu
nokkrar tvísöngs-stemmur, börnin
rödduðu á móti föður sínum. Síðan
var ferðinni heitið á Alþingishátíðina
á Þingvöllum þar sem fjölskyldufað-
irinn var ráðinn til að skemmta og
kveða m.a. rímnalög fyrir kónginn.
María hefur haldið áfram að kveða,
m.a. kvað hún með tveimur börnum
sínum og nokkrum barnabörnum á
Íslendingahátið í Gimli í Kanada árið
2005. Hún hefur haldið röddinni og
kveður rímur enn í dag og tróð m.a.
upp á 100 ára afmælinu sínu í fyrra.
María hefur sérlega gott tóneyra
og er afar listhneigð. Kornung var
hún farin að teikna og klippa út
myndir úr pappír, mála myndir með
vatnslitum og olíu. „Að skapa eitt-
hvað fallegt kallaði alltaf á mig,“ segir
María. Hún tíndi steina úti í náttúr-
unni, muldi þá niður og bjó til nátt-
úrumyndir úr mulningnum. Hún sag-
aði út form sem hún breytti í nála-
María. Hún söng í Kirkjukór Fljóts-
hlíðar í áratugi, kenndi handmennt
við Barnaskóla Fljótshlíðar í nokkra
vetur. 1. janúar 2009 var hún sæmd
Riddarakrossi hinnar Íslensku fálka-
orðu fyrir framlag til varðveislu þjóð-
legrar kvæðamenninga.
Fjölskylda
Eiginmaður Maríu var Ólafur
Steinsson, f. 20.11. 1911, d. 19.10.
1993, þau náðu saman er hún réð sig
sem kaupakonu að Kirkjulæk í
Fljótshlíð árið 1947. Sama ár, 20.11.
giftu þau sig. Þau tóku við búi for-
eldra Ólafs og bjuggu til 1984, en þá
fluttu þau á Hvolsvöll. Foreldrar
Ólafs voru hjónin Steinn Þórðarson, f.
17.8. 1882, d. 24.12. 1979 og Sigur-
björg D. Gunnarsdóttir, f. 16.3. 1875,
d. 31.8. 1969.
Börn Maríu og Ólafs eru 1) Hall-
dóra Ólafsdóttir f. 21.1. 1949, fyrrver-
andi bóndi á Bólstað í A-Landeyjum,
bús. á Hvolsvelli. Maki: Svavar Ólafs-
son, f. 20.3. 1945, þau eiga 3 börn, 7
barnabörn og 4 barnabarnabörn; 2)
Steinn Ingi Ólafsson, f. 23.2. 1950,
húsasmíðameistari, bús. í Reykjavík,
hann á 4 börn og 6 barnabörn; 3) Sig-
urbjörg Á. Ólafsdóttir, f. 18.6. 1952,
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir,
bús. á Álftanesi. Maki: Grétar Mark-
María Jónsdóttir myndlistar- og kvæðakona og fv. bóndi – 101 árs
Fjölskyldan María og Ólafur ásamt börnunum sínum árið 1986.
Kvað stemmur fyrir
fullu húsi í Gamla bíói
Kvæðakonan María Jónsdóttir.
30 ára
Brynja er
Selfyss-
ingur en býr
í Kópavogi.
Hún er
hjúkrunarfræðingur og er
að læra ljósmóðurfræði.
Maki: Hallur Guðjónsson,
f. 1987, er í flugnámi.
Börn: Ólafur Orri, f. 2014,
og Leví Hrafn, f. 2016.
Foreldrar: Gestur Ólafur
Auðunsson, f. 1951, húsa-
smíðameistari, bús. í
Kópavogi, og Sigrún Ósk-
arsdóttir, f. 1953, vinnur
við aðhlynningu, bús. á
Selfossi.
Brynja
Gestsdóttir
Til hamingju með daginn
Torfastaðir í Jökulsár-
hlíð Eiríkur Elvar fædd-
ist 7. ágúst 2018 á
Akureyri. Hann vó 4.362
g og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Árni
Jón Þórðarson og Sig-
urlaug Jónína Ólöf Þor-
steinsdóttir.
Nýr borgari
Lausn sudokuFYRIR HUG
OG HEILA
Omega3 BRAIN er ætlað til að viðhalda
eðlilegri virkni heilans, minnka þreytu,
bæta orkustjórnun, styðja við taugakerfið
og almennt andlega heilsu.
www.lysilife.is
F
æ
st
í
a
p
ó
te
k
u
m
NÝ
TT FRÁ
LÝ
S
I
F
Y
R
IR
H
UG OG HE
IL
A
NÝTT