Morgunblaðið - 15.04.2019, Blaðsíða 24
AFP
Snjall Albert Guðmundsson kom
inn á og lífgaði upp á leik AZ.
Albert Guðmundsson skoraði tví-
vegis fyrir AZ í skrautlegum leik í
hollensku knattspyrnunni á laugar-
dagskvöldið. Albert byrjaði á vara-
mannabekknum þegar AZ Alkmaar
fékk Den Haag í heimsókn. Erik
Falkenburg kom gestunum í 2:0
Den Haag í vil en Albert kom inn á á
66. mínútu. Minnkaði hann muninn
fyrir AZ á 85. mínútu og var aftur á
ferðinni á 90. mínútu og jafnaði 2:2
fyrir framan sína nánustu sem voru
mættir til Hollands og sóttu leikinn.
Sheraldo Becker skoraði sigur-
mark Den Haag í leiknum í uppbót-
artíma og Den Haag fagnaði 3:2
sigri. AZ Alkmaar er í fjórða sæti
deildarinnar með 52 stig.
Skoraði tvö
fyrir AZ
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
ÍSLANDSMÓTIÐ
íPepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu
sumarið 2019
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir miðvikudaginn 17. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569 1105
–– Meira fyrir lesendur
26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
SÉRBLAÐ
Lengjubikar kvenna
Undanúrslit:
Valur – Stjarnan ...................................... 4:0
Fanndís Friðriksdóttir 28., 51, Margrét
Lára Viðarsdóttir 47., Hlín Eiríksdóttir 58.
Valur mætir Þór/KA eða Breiðabliki í úr-
slitaleik á fimmtudaginn.
Mjólkurbikar karla
Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð:
Höttur/Huginn – Einherji ....................... 3:1
Kórdrengir – KM ..................................... 7:0
Vestri – Víðir............................................. 1:0
Nökkvi – KF ............................................. 2:4
Dalvík/Reynir – Samherjar..................... 6:0
Tindastóll – Æskan .................................. 5:0
Haukar – KFS .......................................... 5:2
Augnablik – Árborg ................................. 8:1
Hvíti riddarinn – Kormákur/Hvöt.......... 5:1
Hörður Í. – Berserkir .............................. 1:5
KFR – KH................................................. 1:0
Skallagrímur – KV ................................... 1:4
Selfoss – Þróttur V. .................................. 3:0
Úlfarnir – Vatnaliljur............................... 6:1
2. umferð:
Sindri – Leiknir F .................................... 5:1
Þýskaland
Eintracht Frankfurt – Augsburg .......... 1:3
Alfreð Finnbogason spilaði fyrstu 83
mínúturnar fyrir Augsburg.
Leverkusen – Wolfsburg ........................ 0:5
Sandra María Jessen spilaði fyrstu 73
mínúturnar með Leverkusen.
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik
með Wolfsburg og skoraði annað markið.
Rússland
Rostov – Spartak Moskva ....................... 2:1
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með
Rostov og Björn Bergmann Sigurðarson
síðustu 12 mínúturnar.
CSKA Moskva – Orenburg ..................... 2:3
Arnór Sigurðsson lék allan leikinn með
CSKA og Hörður Björgvin Magnússon síð-
ustu 6 mínúturnar.
Holland
AZ Alkmaar – Den Haag ........................ 2:3
Albert Guðmundsson kom inn á á 66.
mínútu og skoraði tvö mörk fyrir AZ.
Ajax – Excelsior....................................... 6:2
Mikael Anderson kom inn á sem vara-
maður á 63. mínútu en Elías Már Ómarsson
var allan tímann á bekknum hjá Excelsior.
Pólland
Lech Poznan – Jagiellonia ..................... 0:2
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Jagiellonia.
Úkraína
Chornomorets – Olimpik Donetsk ........ 1:1
Árni Vilhjálmsson lék allan leikinn með
Chornomorets.
Grikkland
Larissa – PAOK ....................................... 1:1
Ögmundur Kristinsson lék allan leikinn
með Larissa.
Sverrir Ingi Ingason var ónotaður vara-
maður hjá PAOK.
KNATTSPYRNA
Í GARÐABÆ/VESTURBÆ
Bjarni Helgason
Jóhann Ingi Hafþórsson
Brittanny Dinkins átti stórleik fyrir
Keflavík þegar liðið tryggði sér odda-
leik gegn Stjörnunni í Garðabænum í
gær í fjórða leik liðanna í undan-
úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfu-
knattleik. Leiknum lauk með tíu stiga
sigri Keflavíkur, 83:73, en Dinkins
skoraði 39 stig, tók ellefu fráköst og
gaf sex stoðsendingar en staðan í ein-
víginu er nú jöfn, 2:2.
Stjarnan byrjaði leikinn betur en
Keflavík leiddi með átta stigum í hálf-
leik, 42:34. Keflavík átti frábæran
þriðja leikhluta og var munurinn á
liðunum átján stig að honum loknum
og þann mun tókst Garðbæingum
ekki að brúa.
Brittanny Dinkins fór fyrir liði
Keflavíkur í gær og setti niður körfur
í öllum regnbogans litum. Emilía Ósk
Gunnarsdóttir spilaði frábæra vörn á
Danielle Rodriguez framan af og
tókst að halda henni í skefjum. Þá
fékk Keflavík framlag frá mörgum
leikmönnum af bekknum sem settu
niður stórar körfur á ögurstundu í
leiknum.
Stjörnustúlkur hittu ekki vel úr
skotunum sínum í gær og erlendu
leikmenn liðsins, þær Danielle Rod-
riguez og Veronika Dzhikova, sáu al-
farið um stigaskor liðsins framan af
leik. Stjarnan fékk lítið af stigum frá
bekknum í gær og þar skildi á milli.
Þá munaði mikið um fjarveru Bríetar
Sifjar Hinriksdóttir sem hefur verið
dugleg að setja niður þrista í vetur
fyrir Stjörnuna.
Það er allt undir í oddaleik liðanna
sem fram fer í Keflavík á miðvikudag-
inn. Breiddin er meiri hjá Keflavík
eins og staðan er í dag og of margir
leikmenn Stjörnunnar virkuðu ein-
faldlega þreyttir í gær. Hvort
Garðbæingar finni orku hjá sér til að
koma sér í úrslit Íslandsmótsins skal
látið ósagt en meðbyrinn er með
Keflavík í einvíginu.
Valskonur aftur í úrslit
Valur leikur til úrslita annað árið í
röð eftir 84:81-sigur á KR á útivelli.
Valur vann einvígið 3:1. Leikir lið-
anna í úrslitakeppninni voru jafnari
en margir áttu von á. Það gekk lítið
sem ekki neitt hjá KR síðasta hluta
deildarkeppninnar, á meðan Valur
vann alla deildarleiki sína árið 2019
og síðustu þrjá árið 2018. Að lokum
reyndust gæði Vals of mikil fyrir KR-
lið sem gaf allt sem það átti í úrslita-
keppnina. Heather Butler og Helena
Sverrisdóttir fóru á kostum og þá er
erfitt að stoppa Val.
KR sem félag getur verið stolt af
framgöngu liðsins í ár. Að komast í
úrslitakeppni sem nýliði og gefa besta
liði landsins alvöru seríu í undan-
úrslitum verður að teljast góður ár-
angur.
Valsliðið ætlar sér að bæta þriðja
bikarnum í safnið á tímabilinu eftir
sigra í deildarkeppninni og bikarnum.
Valskonur hafa alla burði til að gera
nákvæmlega það. Stemningin er
öðruvísi en í fyrra, þegar fáir áttu von
á því að Valur gæti unnið Hauka í úr-
slitum. Núna búast flestir við Vals-
sigri, hvort sem liðið mætir Keflavík
eða Stjörnunni. Valur ætlar sér að
verða Íslandsmeistari í fyrsta skipti.
Það verður áhugavert að sjá hvað
tekur við hjá KR. Benedikt Guð-
mundsson tók nýverið við kvenna-
landsliðinu og er ólíklegt að hann
haldi áfram þjálfun meistaraflokks
KR. Þrír sterkustu leikmenn KR eru
svo erlendir. Liðið þarf álíka sterka
leikmenn fyrir næsta tímabil, takist
liðinu ekki að halda þeim sem eru þar
fyrir. KR hefur vaxið mikið í íslensk-
um kvennakörfubolta síðustu ár og
næsta skref verður spennandi.
Keflavík knúði
fram oddaleik
í Garðabæ
Gæði Valskvenna of mikil fyrir KR
Stjörnustúlkur virkuðu þreyttar
Morgunblaðið/Eggert
Jafnt Sara Rún Hinriksdóttir sækir að körfu Stjörnunnar í gær.
Mathús Garðabæjar-höllin, undan-
úrslit kvenna, 4. leikur, sunnudag 14.
apríl 2019.
Gangur leiksins:: 4:3, 6:8, 11:14,
21:17, 21:23, 23:32, 27:34, 34:42,
39:46, 44:50, 46:58, 46:64, 54:67,
63:74, 63:76, 73:83.
Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez
37/8 fráköst/6 stoðsendingar, Vero-
nika Dzhikova 16/10 fráköst, Ragn-
heiður Benónísdóttir 10/8 fráköst, Jó-
hanna Björk Sveinsdóttir 7/7 fráköst,
Auður Íris Ólafsdóttir 3/6 fráköst.
Fráköst: 26 í vörn, 13 í sókn.
Stjarnan - Keflavík 73:83
Keflavík: Brittanny Dinkins 39/11 frá-
köst/6 stoðsendingar, Sara Rún Hin-
riksdóttir 14/7 fráköst, Bryndís Guð-
mundsdóttir 10/6 fráköst, Erna
Hákonardóttir 5, Salbjörg Ragna Sæv-
arsdóttir 4/8 fráköst, Emelía Ósk
Gunnarsdóttir 4, Birna Valgerður Ben-
ónýsdóttir 4, Katla Rún Garðarsdóttir
3.
Fráköst: 27 í vörn, 12 í sókn.
Dómarar: Davíð Tómas Tómasson,
Jóhannes Páll Friðriksson, Rögnvaldur
Hreiðarsson.
Áhorfendur: 348.
DHL-höllin, undanúrslit kvenna, 4.
leikur, sunnudag 14. apríl 2019.
Gangur leiksins:: 5:8, 7:17, 16:22,
21:24, 27:31, 29:37, 34:41, 36:43,
42:51, 48:53, 52:59, 55:67, 66:68,
68:72, 76:77, 81:84.
KR: Vilma Kesanen 24/5 fráköst,
Orla O’Reilly 22/9 fráköst, Kiana
Johnson 21/13 fráköst/11 stoðsend-
ingar, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir
9, Ástrós Lena Ægisdóttir 3, Unnur
Tara Jónsdóttir 2.
Fráköst: 24 í vörn, 8 í sókn.
KR - Valur 81:84
Valur: Heather Butler 28/6 stoð-
sendingar, Helena Sverrisdóttir 22/
11 fráköst/8 stoðsendingar/3 varin
skot, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 8,
Guðbjörg Sverrisdóttir 8/4 fráköst,
Hallveig Jónsdóttir 7, Ásta Júlía
Grímsdóttir 6/4 fráköst, Simona Po-
desvova 5/6 fráköst.
Fráköst: 21 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Davíð Kristján Hreiðarsson,
Gunnlaugur Briem.
Áhorfendur: 125.