Morgunblaðið - 15.04.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
England
Fulham – Everton.................................... 2:0
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði fyrstu 74
mínúturnar með Everton.
Burnley – Cardiff .................................... 2:0
Jóhann Berg Guðmundsson var ónotað-
ur varamaður hjá Burnley.
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Cardiff.
Tottenham – Huddersfield ...................... 4:0
Brighton – Bournemouth ........................ 0:5
Southampton – Wolves ............................ 3:1
Manchester United – West Ham............ 2:1
Crystal Palace – Manch. City.................. 1:3
Liverpool – Chelsea ................................. 2:0
Staðan:
Liverpool 34 26 7 1 77:20 85
Manch.City 33 27 2 4 86:22 83
Tottenham 33 22 1 10 64:34 67
Chelsea 34 20 6 8 57:36 66
Manch.Utd 33 19 7 7 63:44 64
Arsenal 32 19 6 7 65:40 63
Leicester 34 14 5 15 46:45 47
Wolves 33 13 8 12 41:42 47
Everton 34 13 7 14 46:44 46
Watford 32 13 7 12 47:47 46
West Ham 34 12 6 16 42:52 42
Bournemouth 34 12 5 17 49:61 41
Cr. Palace 34 11 6 17 40:46 39
Burnley 34 11 6 17 42:60 39
Newcastle 34 10 8 16 32:43 38
Southampton 33 9 9 15 39:54 36
Brighton 32 9 6 17 32:51 33
Cardiff 33 8 4 21 28:63 28
Fulham 34 5 5 24 32:76 20
Huddersfield 34 3 5 26 19:67 14
Bikarkeppni kvenna, undanúrslit:
Reading – West Ham...................... (víti) 4:5
Rakel Hönnudóttir kom inná á 67. mín-
útu og brenndi af í vítakeppninni.
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Dinamo Brest.............. 0:1
Willum Þór Willumsson kom inná hjá
BATE á 78. mínútu.
Danmörk
Bröndby – FC Köbenhavn ...................... 1:2
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
Svíþjóð
Malmö – Östersund.................................. 2:0
Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 85
mínúturnar með Malmö.
Kalmar – Norrköping ............................. 2:2
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn með Norrköping.
Eskilstuna – Rosengård.......................... 0:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Kristianstad – Limhamn Bunkeflo........ 5:1
Svava Rós Guðmundsdóttir lék í 83 mín-
útur og skoraði fyrsta markið fyrir Kristi-
anstad, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék
seinni hálfleik og skoraði fjórða markið og
Sif Atladóttir lék fyrstu 61 mínútuna.
Piteå – Djurgården ................................. 1:0
Ingibjörg Sigurðardóttir og Guðrún
Arnardóttir léku allan leikinn með Djur-
gården en Guðbjörg Gunnarsdóttir var
varamarkvörður.
KNATTSPYRNA
EM 2020
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Íslenska landsliðið í handknattleik
vann sér inn gott stig í heimsókn
sinni til Skopje í Norður-Makedóníu
í gær. Elvar Örn Jónsson jafnaði
metin, 24:24, þegar nokkrar sek-
úndur voru til leiksloka og þar við
sat. Viktor Gísli Hallgrímsson kór-
ónaði vasklega framgöngu sína í
fyrsta mótsleik sínum með íslenska
landsliðinu þegar hann varði lang-
skot frá Filip Kuzmanovski á næst-
síðustu sekúndu. Markvarslan end-
anlega innsiglaði stig íslenska liðsins
fyrir framan 6.963 áhorfendur í Bor-
is Trajkovski-íþróttahöllinni.
Staðan að loknum fyrri hálfleik
var 11:10, Íslandi í vil.
Athygli vakti þegar Guðmundur
Þórður Guðmundsson landsliðsþjálf-
ari setti markverðina Aron Rafn Eð-
varðsson og Björgvin Pál Gústavs-
son út í kuldann áður en haldið var
til Skopje. Guðmundur kom aftur á
óvart í upphafi leiksins í gær þegar
hann ákvað að láta hinn 18 ára
gamla Viktor Gísla Hallgrímsson
byrja í markinu. Hann stóð nær all-
an leikinn í markinu og þakkaði
traustið með góðum leik.
Íslenska liðið var með yfirhöndina
lengst af fyrri hálfleiks en tapaði að-
eins þræðinum um skeið eftir að
hafa orðið manni fátækara í tvígang
með stuttu millibili.
Framan af síðari hálfleik lék ís-
lenska liðið afbragðsvel og var hvað
eftir annað með þriggja marka for-
skot, síðast 18:15 þegar hálfleikur-
inn var nær hálfnaður. Breyttur
varnarleikur Norður-Makedóníu-
manna í kjölfarið riðlaði sóknarleik
Íslands. Heimamenn skoruðu fimm
mörk í röð á sjö mínútna kafla. Með
baráttu náði íslenska liðið í dýrmætt
stig þegar upp var staðið.
Ómar Ingi Magnússon var besti
leikmaður íslenka landsliðsins í
leiknum. Hann tætti vörn Norður-
Makedóníumanna sundur hvað eftir
annað og skoraði átta mörk. Ómar
Ingi bætti svo sannarlega fyrir mis-
tök sín undir lok leiksins á miðviku-
dagskvöldið. Varnarleikur íslenska
liðsins var frábær í leiknum þar sem
Ýmir Örn Gíslason og Daníel Þór
Ingason fóru á kostum.
Í heildina góður leikur við erfiðar
aðstæður. Athygli vakti að íslenska
liðið fékk ekki vítakast. Dómarar
leiksins, Lettarnir Zigmars Sondors
og Renars Licis, drógu taum heima-
manna sem fengu að leika langar
sóknir, komast upp með ruðning
hvað eftir annað, olnbogaskot og að
verjast með fótum.
Sannkallað baráttustig
íslenska landsliðsins
Ómar Ingi Magnússon fór á kostum í Skopje Viktor Gísli þakkaði traustið
Ljósmynd/Robert Spasovski
Mark Ómar Ingi Magnússon átti stórleik í Skopje í gær. Hér er eitt átta marka hans í uppsiglingu.
Skopje, undankeppni EM,
sunnudaginn 14. apríl 2019.
Gangur leiksins: 2:3, 3:5, 5:7,
10:8, 10:10, 10:11, 12:13, 13:15,
17:18, 20:18, 22:21, 24:24.
Mörk N-Makedóníu: Kiril Laz-
arov 8/2, Filip Taleski 4, Dejan
Manaskov 4/1, Zharko Pes-
hevski 2, Filip Kuzmanovski 2,
Goce Georgievski 2, Velko Mar-
koski 1, Borko Ristovski 1.
Varin skot: Borko Ristovski 15.
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Íslands: Ómar Ingi Magn-
Makedónía – Ísland 24:24
ússon 8, Elvar Örn Jónsson 5,
Aron Pálmarsson 3, Arnór Þór
Gunnarsson 3, Ýmir Örn Gísla-
son 2, Ólafur Andrés Guð-
mundsson 2, Arnar Freyr Arn-
arsson 1.
Varin skot: Viktor Gísli Hall-
grímsson 12, Ágúst Elí Björg-
vinsson 3/1.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Zigmars Sondors og
Renars Licis frá Lettlandi, slak-
ir.
Áhorfendur: 6.963.
Handknattleiksþjálfarinn Hannes Jón Jónsson er hættur
við að stýra karlaliði Selfoss á næsta keppnistímabili.
Hannes hefur rift samningi sínum við handknattleiks-
deildina og mun ekki taka við þjálfun liðsins eins og til
stóð. Átti hann að taka við af Patreki Jóhannessyni sem
mun taka við danska liðinu Skjern í sumar en Hannes er
í dag þjálfari Bietigheim í þýsku 1. deildinni. Hannes var
ráðinn til Bietigheim í byrjun mars og átti að stýra liðinu
út tímabilið en Bietigheim er í næstneðsta sæti deildar-
innar með 8 stig eftir 26 umferðir.
„Ég þakka handknattleiksdeild Selfoss kærlega fyrir
skilninginn og að gera mér kleift að takast á við annað
verkefni erlendis. Ég vil taka fram að forsvarsmenn handknattleiksdeild-
arinnar hafa verið fagmannlegir með eindæmum í öllum okkar sam-
skiptum frá fyrsta degi. Árangur undanfarinna ára talar sínu máli og er
engin tilviljun. Í mínum augum er Selfoss frábær kostur fyrir metnaðar-
fulla leikmenn sem vilja ná langt,“ er haft eftir Hannesi í sameiginlegri til-
kynningu beggja aðila. sport@mbl.is
Hannes Jón hætti við
Hannes Jón
Jónsson
Valur leikur til úrslita í Lengjubikar kvenna í knatt-
spyrnu eftir öruggan 4:0-sigur gegn Stjörnunni í undan-
úrslitum keppninnar á Hlíðarenda í gær. Landsliðs-
konan Fanndís Friðriksdóttir skoraði eina mark fyrri
hálfleiks á 28. mínútu og staðan því 1:0 að loknum fyrri
hálfleik.
Margrét Lára Viðarsdóttir bætti við öðru marki Vals á
47. mínútu áður en Fanndís skoraði annað mark sitt í
leiknum á 51. mínútu. Hlín Eiríksdóttir bætti síðan við
fjórða marki Vals á 58. mínútu og þar með voru úrslitin
endanlega ráðin.
Úrslitaleikurinn fer fram 18. apríl næstkomandi og
mæta Valskonur annaðhvort Þór/KA eða Breiðabliki sem mætast í Bog-
anum á Akureyri í hinum undanúrslitaleiknum.
Leikmannahópur Vals tók umtalsverðum breytingum í vetur en liðið
virðist vera búið að stilla strengina fyrir Íslandsmótið.
Stórsigur Valskvenna
Fanndís
Friðriksdóttir