Morgunblaðið - 15.04.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
HANDBOLTI
Þýskaland
Oldenburg – Neckarsulmer ............... 26:28
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 1
mark fyrir Neckarsulmer.
Danmörk
Ajax – Randers .................................... 19:26
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 3 mörk
fyrir Ajax.
Frakkland
Saint Amand – Dijon ........................... 21:24
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði ekki
fyrir Dijon.
Svíþjóð
Umspil um sæti í úrvalsdeild, 3. leikur:
Boden – Eskilstuna.............................. 29:25
Hafdís Renötudóttir varði ekki skot í
marki Boden.
Boden er komið áfram og mætir Skövde í
úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild.
EHF-bikar kvenna
Undanúrslit, seinni leikur:
Esbjerg – Herning-Ikast .................... 53:36
Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Es-
bjerg.
Esbjerg í úrslit, 53:36 samanlagt.
Áskorendabikar kvenna
Undanúrslit, seinni leikur:
Kristianstad – Gran Canaria ............. 20:31
Andrea Jacobsen skoraði 1 mark fyrir
Kristianstad.
Gran Canaria í úrslit, 53:37 samanlagt.
EHF-Evrópubikar karla
Svíþjóð – Noregur ............................... 27:33
Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð.
Undankeppni EM karla 2020
1. riðill:
Þýskaland – Pólland............................. 29:24
Ísrael – Kósóvó ..................................... 30:24
2. riðill:
Sviss – Belgía ........................................ 36:22
Króatía – Serbía ................................... 27:23
3. riðill:
Norður-Makedónía – Ísland................ 24:24
Tyrkland – Grikkland .......................... 26:23
Staðan:
N-Makedónía 3 2 0 1 115:112 5
Ísland 3 2 0 1 125:101 5
Tyrkland 3 1 0 2 101:109 4
Grikkland 3 1 0 2 94:113 2
4. riðill:
Slóvenía – Holland .............................. 30:23
Erlingur Richardsson þjálfar Holland.
Lettland – Eistland .............................. 30:24
5. riðill:
Bosnía – Finnland ................................ 31:19
Hvíta-Rússland – Tékkland ................ 24:26
6. riðill:
Litháen – Rúmenía............................... 24:23
Frakkland – Portúgal .......................... 33:24
7. riðill:
Ungverjaland – Rússland.................... 23:23
Slóvakía – Ítalía .................................... 23:26
8. riðill:
Færeyjar – Úkraína............................. 26:27
Danmörk – Svartfjallaland.................. 37:26
ENGLAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Liverpool og Manchester City slá
hvergi af í kapphlaupinu um Eng-
landsmeistarartitil karla í knatt-
spyrnu. Bæði unnu þau leiki sína í
gær og Liverpool heldur því topp-
sætinu en City á leik til góða. Liv-
erpool er með 85 stig og á fjóra
leiki eftir en City er með 83 stig
og á fimm leiki eftir.
Leikur Crystal Palace og Man-
chester City á Selhurst Park var á
undan í gær og þar sigruðu meist-
ararnir 3:1. Raheem Sterling skor-
aði tvívegis og Gabriel Jesus eitt
en Luka Milivojevic skoraði mark
Palace. Á Anfield hafði Liverpool
betur gegn Chelsea 2:0 með mörk-
um Sadio Mane og Mohamed Sa-
lah í síðari hálfleik.
„Þetta var afar vel gert og nú
undirbúum við okkur fyrir Porto,
Cardiff og það sem verður næst á
dagskránni,“ sagði þýski knatt-
spyrnustjórinn hjá Liverpool,
Jürgen Klopp, þegar hann ræddi
við BBC. Spurður út í kapp-
hlaupið við City sagði hann ekki
hægt að komast hjá því að velta
fyrir sér gangi mála hjá keppi-
nautunum. „Fyrsta spurningin
þegar við hittumst á fundi fyrir
leikinn í dag var hvernig staðan
væri í leiknum hjá City. Maður
kemst ekki hjá því að heyra af
því. En það er ekki eitthvað sem
við veltum of mikið fyrir okkur
vegna þess að við reiknum með
því að þeir vinni alla sína leiki.
Við getum bara stefnt að því að
safna saman eins mörgum stigum
og mögulegt er. Ef við verðum
meistarar þá yrði það stórkost-
legt en ef það gerist ekki þá erum
við engu að síður virkilega gott
knattspyrnulið.“
Katalóninn Pep Guardiola,
knattspyrnustjóri City, var afar
ánægður með sigurinn í London.
„Frammistaðan var mjög góð. Eft-
ir að hafa átt svolítið erfitt upp-
dráttar síðasta þriðjudag þá var
þetta ótrúleg frammistaða. Fimm
leikir eru eftir. Bikarinn er í okk-
ar höndum en um leið og við töp-
um stigum þá missum við af hon-
um. Við þurfum því að vinna þá
leiki sem við eigum eftir,“ sagði
Guardiola við BBC.
Eftir að hafa rétt nokkuð úr
kútnum síðustu vikurnar tapaði
Everton fyrir næstneðsta liðinu
Fulham. Þegar Everton gengur
illa þá getur liðið dottið niður á
lágt plan og tapaði til að mynda
fyrir Millwall í bikarnum fyrr í
vetur. Gylfi var á sínum stað í liði
Everton og lék í 74 mínútur. Aron
Einar Gunnarsson lék með Cardiff
sem tapaði fyrir Burnley 2:0 en
hjá Burnley var Jóhann Berg
Guðmundsson varamaður.
Kapphlaupið heldur áfram
Liverpool og Man. City slá hvergi af í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar
AFP
Skoraði Gabriel Jesus virðist þurfa að hringja áríðandi símtal miðað við
þetta látbragð andartaki eftir að hann skoraði þriðja mark City.
AFP
Skoraði Mohamed Salah fer með bænirnar að því er virðist eftir að hafa
komið Liverpool í 2:0 á móti Chelsea með hnitmiðuðu skoti.
HK er enn á lífi í baráttunni um
Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki
eftir 3:1-sigur á KA á útivelli í
þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíg-
inu í gær. Staðan í einvíginu er nú
2:1, KA í vil, en KA hefði orðið Ís-
landsmeistari með sigri.
KA hefur átt draumatímabil til
þessa og unnið bæði deildar- og
bikarmeistaratitilinn, eftir harða
keppni við HK. Kópavogsliðið var
hins vegar sterkari aðilinn í gær.
Elísabet Einarsdóttir var at-
kvæðamikil fyrir HK, eins og oft
áður, og skoraði 20 stig. Paula Go-
mez skoraði 15 stig fyrir KA.
Fjórði leikur liðanna fer fram í
Fagralundi á miðvikudaginn kem-
ur og fær KA þá annað tækifæri
til að bæta þriðja bikar tímabilsins
í safnið.
HK vann eftir oddahrinu
HK er í góðri stöðu í karlaflokki
þar sem sömu lið eigast við í bar-
áttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
HK er nú með 2:1-forskot í einvíg-
inu eftir sigur á KA á Akureyri á
laugardag og nægir sigur á
heimavelli annað kvöld til að
tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
HK komst í 1:0 og 2:1 en í bæði
skiptin náði KA að jafna. Að lok-
um vann HK hins vegar í odda-
hrinu, 15:12. Theódór Óskar Þor-
valdsson skoraði 26 stig fyrir HK
og Miguel Castrillo skoraði 27 stig
fyrir KA.
HK-helgi á Akureyri
í úrslitunum í blaki
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Kvennalið HK getur enn tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á KA.