Morgunblaðið - 15.04.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Í VESTURBÆNUM
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
KR er komið í góða stöðu í einvígi
sínu gegn Þór Þorlákshöfn í undan-
úrslitum Íslandsmóts karla í körfu-
bolta eftir 98:89-sigur á heimavelli í
þriðja leik á laugardagskvöldið. KR
er nú með 2:1-forystu og tryggir sér
sæti í lokaúrslitum gegn Stjörnunni
eða ÍR með sigri í Þorlákshöfn í
kvöld.
Liðin skiptast á höggum
Serían til þessa er búin að vera afar
skemmtileg. Liðin skiptast á að ná
höggum hvort á annað og var leikur-
inn á laugardag mjög ólíkur öðrum
leiknum í Þorlákshöfn. Þar réðu KR-
ingar lítið sem ekki neitt við Kinu
Rochford, en þeir gerðu mjög vel í að
stöðva Bandaríkjamanninn stóra á
heimavelli. Hvort sem það var Pavel
Ermolinskij, Julian Boyd eða Krist-
ófer Acox sem vörðust Rochford, þá
gerðu þeir það mjög vel. Það var al-
veg ljóst að KR ætlaði ekki að láta
Rochford komast upp með sama leik
og í Þorlákshöfn, þar sem héldu hon-
um engin bönd.
Þess í stað þurfti Þór að treysta á
þriggja stiga skytturnar sínar. Það
gekk vel framan af og var nýtingin
mjög góð í fyrri hálfleik. Það er hins
vegar erfitt að treysta á slíkt vopn yf-
ir heilan leik og endar það sjaldan vel.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR,
átti ekki góðan leik á hliðarlínunni í
Þorlákshöfn. Hann bætti fyrir það
með leiknum í gær. Hann var búinn
að kortleggja lið Þórs og var sigur
KR-inga ekki í mikilli hættu í seinni
hálfleik. Kristófer Acox átti glimrandi
góðan leik fyrir KR. Ásamt því að
verjast Rochford vel, skoraði hann 26
stig og tók 11 fráköst. Hann skoraði
með nokkrum glæsilegum troðslum
sem kveiktu í troðfullri DHL-höll.
Julian Boyd spilaði vel sömuleiðis og
Helgi Már Magnússon kom með
virkilega góða innkomu af bekknum.
Michele Di Nunno spilaði mun meira
sem liðsmaður en í síðasta leik og þá
virkar KR best.
Hjá Þór var Nikolas Tomsick best-
ur, enda fékk hann meira frelsi þar
sem KR lagði mikla áherslu á að
stoppa Rochford. Jaka Brodnik var
líka sterkur, en Þórsarar verða að fá
meira frá Kinu Rochford, ef þeir ætla
sér eitthvað annað en sumarfrí í
kvöld.
KR þarf einn sigur í viðbót
KR-ingar fundu lausnir gegn Þór og
Rochford Fjórði leikurinn í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Mikilvægur Kristófer Acox spilaði vel í vörn og sókn gegn Þór Þorlákshöfn.
Tiger Woods kom sér enn betur fyrir í sögu-
bókum golfíþróttarinnar í gær þegar hann
sigraði á Masters-mótinu á Augusta National.
Sigurinn var hans fimmtándi á risamóti í golfi
og er hann sá næstsigursælasti í sögunni á eftir
Jack Nicklaus sem sigraði átján sinnum.
Fyrir sigurinn fær Tiger Woods um 2 millj-
ónir dollara og græna jakkann. Á Augusta ættu
menn að þekkja hvaða stærð Tiger notar því
hann sigraði nú á Masters í fimmta sinn. Er
hann næstsigursælastur allra í sögu mótsins.
En eins og í fleiri þáttum þá slær Nicklaus hon-
um við með sex sigra. Tiger er 43 ára gamall
og á þessari öld er líklega enginn íþróttamaður
jafn frægur um víða veröld.
Tiger Woods hefur sigrað á Masters á
þremur mismunandi áratugum. Fyrsti sigur-
inn kom 1997 en næstu þrír komu 2001,
2002, 2005 og nú 2019. „Segja má að hring-
rás hafi orðið því þegar ég sigraði hér árið
1997 var faðir minn á staðnum en nú er ég
sjálfur faðir með tvö börn á staðnum,“ sagði
Tiger þegar sigurinn var í höfn. „Þessi sigur
mun alltaf verða einn sá erfiðasti á mínum
ferli vegna þess sem gerst hefur síðustu tvö
árin,“ sagði Tiger einnig og vísar þar til
þess að ferill hans var í fullkomnu uppnámi
vegna bakmeiðsla. Þurfti hann að gangast
undir fjórar aðgerðir til að fá bót meina
sinna. kris@mbl.is
Sigraði síðast á Masters 2005
AFP
Áfangi Tiger Woods fagnar sigrinum ásamt kylfuber-
anum Joe LaCava. Í bakgrunni má sjá Condoleezzu
Rice fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
DHL-höllin, undanúrslit karla, 3.
leikur, laugardag 13. apríl 2019.
Gangur leiksins:: 6:5, 8:9, 14:13,
23:19, 27:29, 34:35, 43:42, 55:46,
59:48, 63:56, 65:60, 74:66, 81:71,
86:77, 92:82, 98:89.
KR: Kristófer Acox 26/11 fráköst,
Julian Boyd 19/9 fráköst, Helgi
Már Magnússon 15, Michele Chri-
stopher Di Nunno 13, Jón Arnór
Stefánsson 9, Pavel Ermolinskij
7/5 fráköst/6 stoðsendingar, Emil
Barja 5, Björn Kristjánsson 4.
Fráköst: 26 í vörn, 9 í sókn.
Þór Þ.: Nikolas Tomsick 22/5 frá-
KR - Þór Þ. 98:89
köst/7 stoðsendingar, Jaka Brod-
nik 18/4 fráköst, Kinu Rochford
14/4 fráköst, Halldór Garðar Her-
mannsson 13/6 fráköst/5 stoð-
sendingar, Emil Karel Einarsson
10/6 fráköst, Ragnar Örn Braga-
son 8, Davíð Arnar Ágústsson 4.
Fráköst: 24 í vörn, 6 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Dav-
íð Kristján Hreiðarsson, Eggert Þór
Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 1.150.
Staðan í einvíginu er 2:1 fyrir
KR. Liðin mætast í fjórða skipti í
kvöld.
Dominos-deild karla
Undanúrslit, þriðji leikur:
KR – Þór Þ ............................................ 98:89
Staðan er 2:1 fyrir KR og fjórði leikur í
Þorlákshöfn í kvöld.
Dominos-deild kvenna
Undanúrslit, fjórði leikur:
KR – Valur ............................................ 81:84
Valur vann 3:1.
Stjarnan – Keflavík .............................. 73:83
Staðan er 2:2
Spánn
Real Madrid – Obradoiro ................... 94:70
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 2 stig og
tók 3 fráköst á 16 mínútum með Obradoiro.
B-deild kvenna:
Celta Zorka – Mataró.......................... 66:62
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 4
stig og tók 1 frákast á 14 mínútum hjá
Celta.
Frakkland
Le Mans – Nanterre ........................... 75:84
Haukur Helgi Pálsson skoraði 11 stig,
tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar á 26
mínútum hjá Nanterre.
Austurríki
Traiskirchen Lions – Flyers Wels ..... 96:67
Dagur Kár Jónsson skoraði 9 stig, tók 1
frákast og gaf 1 stoðsendingu á 27 mínútum
hjá Flyers Wels.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, 8-liða úrslit, 1. leikur:
Philadelphia – Brooklyn .................. 102:111
Toronto – Orlando ............................ 101:104
Boston – Indiana .................................. 84:74
Vesturdeild, 8-liða úrslit, 1. leikur:
Portland – Oklahoma City................. 104:99
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, fjórði leikur:
IG-höllin: Þór Þ. – KR (1:2) ................. 18.30
Hertz-hellir: ÍR – Stjarnan (2:1) ......... 20.15
Umspil karla, fjórði úrslitaleikur:
Hveragerði: Hamar – Fjölnir (1:2) ..... 19.15
KNATTSPYRNA
Lengjubikar kvenna, undanúrslit:
Boginn: Þór/KA – Breiðablik .............. 18.15
Bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikarinn:
Leiknisvöllur: KB – Snæfell ..................... 20
Í KVÖLD!
Íþróttamaður ársins 2018, Sara
Björk Gunnarsdóttir, skoraði fyrir
Wolfsburg þegar liðið vann stór-
sigur gegn Söndru Maríu Jessen og
liðsfélögum hennar í Bayer Lever-
kusen á útivelli í þýsku 1. deildinni í
knattspyrnu í gær en leiknum lauk
með 5:0-sigri.
Sara lék allan leikinn á miðjunni
hjá Wolfsburg og skoraði annað
markið á 20. mínútu. Sandra lék
fyrstu 74. mínúturnar.
Wolfsburg er í efsta sæti þýsku
með 47 stig og hefur þriggja stiga
forskot á Bayern München sem er í
2. sæti en á leik til góða. Leverkus-
en er í 11. sæti sem er fallsæti með
14 stig og er stigi frá öruggu sæti.
Sara skoraði gegn Söndru
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Skoraði Sara og samherjar hennar
eru á toppnum í Þýskalandi.