Morgunblaðið - 15.04.2019, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2019
Kínverski listamaðurinn Ai Wei-
wei afhjúpaði nýverið listaverk í
Háskólalistasafninu í samtímalist
(MUAC) í Mexíkó. Listaverkið
samanstendur af 43 portrett-
myndum af mexíkóskum kennara-
nemum við kennaraháskólann í
Ayotzinapa sem hurfu sporlaust
árið 2014, en talið er að lögreglan
í Iguala hafi numið nemana á
brott og myrt þá. Listamaðurinn
notaði milljón legókubba til að
vinna verkið.
Samkvæmt frétt BBC um málið
er listaverkinu ætlað að minna á
örlög nemanna, en þrátt fyrir að
fimm ár séu liðin frá hvarfi þeirra
telst málið enn óupplýst. Mynd-
unum fylgja upplýsingar þar sem
fréttir af hvarfinu eru raktar í
réttri tímaröð og birt opinber
skýring stjórnvalda á því sem
gerðist. Í samtali við Reuters seg-
ist listamaðurinn við gerð verksins
hafa verið drifinn áfram af glæp-
um „sem eitra samfélag okkar“.
Sýningin stendur til 6. október.
Ai Weiwei er einn þekktasti
samtímalistamaður heims og
þekktur fyrir að vera óhræddur
við að gagnrýna kínversk stjórn-
völd fyrir mannréttindabrot sín.
Hann segir legókubba vera „lýð-
ræðislegan“ miðil fyrir verk sín.
Stutt er síðan Ai Weiwei sakaði
stjórnendur Legó um tilraun til
þöggunar þegar fyrirtækið neitaði
að selja honum legókubba milli-
liðalaust. Talsmenn fyrirtækisins
svöruðu því til að þeir vildu ekki
selja neinum vörur sínar sem
hygðist nota þá í pólitískum til-
gangi, en sáu að sér þegar ákvörð-
un þeirra var harðlega gagnrýnd
af almenningi.
Ai Weiwei afhjúpar nýtt verk í Mexíkó
AFP
Týndir Ai Weiwei fyrir framan listaverk sem samanstendur af myndum af
týndum stúdentum. Hann notaði milljón legókubba til að búa til myndirnar.
»Barnamenningarhátíð í
Reykjavík þetta árið lauk
með tónleikahaldi og dansi í
Gerðubergi. Breiðhylting-
urinn og tónlistarmaðurinn
góðkunni Emmsjé Gauti
söng fyrir gesti og í fram-
haldinu sáu Dj Pythons og
krakkar frá Dansi Brynju
Péturs um að halda uppi
stuðinu. Gestum bauðst að
taka þátt í dansinum.
Barnamenningarhátíð í Reykjavík kvödd með stæl
Kraftur Emmsjé Gauti dró ekkert af sér þegar hann söng fyrir unga fólkið sem mændi upp til stjörnunnar.
Upprennandi söngstjarna Þessi unga dama tók sig til og stal senunni um stund, hún laumaðist til að syngja aðeins.
Gaman Þessar sungu fullum hálsi með og skemmtu sér vel.
Morgunblaðið/Eggert
Raumgestalt bretti
Verð frá 2.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
Vantar þig
pípara?
FINNA.is