Morgunblaðið - 15.04.2019, Síða 32
Stuttmyndin Kanarí í leikstjórn
Erlends Sveinssonar vann til Vim-
eo Staff pick-verðlaunanna á
stuttmyndahátíðinni í Aspen í
Colorado. Í fyrra hlaut Atelier eftir
Elsu Maríu Jakobsdóttur sömu
verðlaun. Streymisveitan sem veit-
ir verðlaunin er með 1,1 milljón
fylgjenda og hafa 50 þúsund
manns þegar séð Kanarí hjá veit-
unni. Kanarí er útskriftarverkefni
Erlends úr Columbia University
þar sem hann lauk nýverið MFA-
gráðu í leikstjórn.
Kanarí verðlaunuð
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 105. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
KR hafði betur gegn Þór Þ. í undan-
úrslitum Íslandsmóts karla í körfu-
bolta á laugardaginn var, 98:89.
Staðan í einvíginu er nú 2:1, KR í vil.
Fimmfaldir meistarar KR tryggja
sér sæti í lokaúrslitum með sigri í
Þorlákshöfn í fjórða leiknum kl.
18:30 í kvöld. Fjórði leikur ÍR og
Stjörnunnar hefst kl. 20:15 í kvöld,
en þar er staðan 2:1, ÍR í vil. » 27
KR í bílstjórasætinu
gegn Þór Þorlákshöfn
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Varnarleikur íslenska
liðsins var frábær í
leiknum þar sem Ýmir
Örn Gíslason og Daníel
Þór Ingason fóru á
kostum,“ segir með-
al annars í umfjöll-
un Morgunblaðsins
um landsleik Norð-
ur-Makedóníu og Ís-
lands í undankeppni
EM sem fram fór í
Skopje í gærkvöld.
Guðmundur lands-
liðsþjálfari kom
mörgum á óvart
þegar hann lét hinn
18 ára gamla Viktor
Gísla Hallgrímsson
byrja leikinn í mark-
inu. »25
Frábær varnarleikur
í Norður-Makedóníu
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Sjö leikkonur munu flytja Passíu-
sálma Hallgríms Péturssonar í Hall-
grímskirkju á föstudaginn langa.
Lesturinn hefst kl. 13:30 og mun
ljúka upp úr kl. 18.
Umsjónarmaður verkefnisins er-
Steinunn Jóhannesdóttir en með
henni lesa þær Edda Þórarinsdóttir,
Halla Guðmundsdóttir, Helga E.
Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Mar-
grét Guðmundsdóttir og Ragnheiður
Steindórsdóttir. Sannkallað einvala-
lið leikkvenna, eða „grand old la-
dies,“ eins og Steinunn orðar það í
samtali við Morgunblaðið.
„Við erum allar gamlar samstarfs-
konur úr leikhúsinu og þykir vænt
hverri um aðra og verkefnið fram-
undan,“ segir Steinunn.
Yfirskrift flutningsins að þessu
sinni er „Svoddan ljós mætti fleirum
lýsa“. Er það tilvitnun í samnefnda
ritgerð Steinunnar um þær konur
sem fengu send handrit að sálmunum
frá Hallgrími vorið 1660. Hafði hann
þá fengið hvatningu frá skáldbróður
sínum til þess að hefja útbreiðslu á
verki sínu. Treysti hann konunum til
að kynna sálmana fyrir öðrum, verja
þá fyrir gagnrýni og sjá til þess að
þeim yrði ekki „undir bekk varpað“
eins og hann orðaði það sjálfur.
Gegndu lykilhlutverki
Konurnar voru Ragnhildur Árna-
dóttir í Kaldaðarnesi, Kristín Jóns-
dóttir í Einarsnesi og Helga Árna-
dóttir í Hítardal, allar innbyrðis
tengdar og í áhrifastöðu á sínum
tíma. Vorið 1661 fékk Ragnheiður
Brynjólfsdóttir í Skálholti fjórða
handritið ritað eigin hendi skáldsins,
sem er það eina sem varðveist hefur
til okkar daga, segir Steinunn.
„Handritin sem þessar samtíma-
konur Hallgríms fengu frá höfund-
inum gegndu lykilhlutverki fyrstu ár-
in og aldirnar sem Passíusálmarnir
voru að vinna sér sinn einstæða sess í
sál þjóðarinnar. Það er til þess að
heiðra minningu kvennanna í innsta
hring skáldsins sem leikkonurnar sjö
sameinast um flutning á verkinu nú,“
segir Steinunn ennfremur.
Hún hefur tvisvar áður staðið fyrir
verkefni af þessum toga en í bæði
skiptin í Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Fyrra skiptið var 2014, þegar 400 ár
voru liðin frá fæðingu Hallgríms.
Seinna skiptið var í fyrra. Þá tóku
fimm leikkonur þátt í flutningnum.
Aðsóknin var það mikil að kirkjan
troðfylltist. Í ár var svo ákveðið að
flytja sálmana í Hallgrímskirkju á
Skólavörðuholtinu og safna saman
hópi sjö leikkvenna. Steinunn segir
undirbúninginn hafa gengið mjög
vel.
Tónlistin á föstudaginn langa verð-
ur í höndum Björns Steinars Sól-
bergssonar, organista Hallgríms-
kirkju.
Ljósmynd/Hilmar Þorsteinn
Hallgrímskirkja Leikkonurnar sjö, frá vinstri Halla Guðmundsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Stein-
unn Jóhannesdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Edda Þórarinsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir.
Sjö leikkonur lesa upp
Passíusálma Hallgríms
„Svoddan ljós mætti fleirum lýsa“ flutt föstudaginn langa
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar
sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa
notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar
hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er
þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Flex skrifstofuhúsgögn
Hönnuðir: Guðrún Margrét Ólafsdóttir
og Oddgeir Þórðarson
Dímon
Hönnuður:
Erla Sólveig Óskarsdóttir
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is