Hugrún - 01.05.1924, Síða 23

Hugrún - 01.05.1924, Síða 23
]Hugrún] 53 Svo er það margt frá mínum fyrri dögum á minnisspjald sem skrifað les eg hér; en fyrst af öllu fögur blóm í högum, er fyrstu lífsins gleði veittu mér. Og fuglarnir sem fagurt sungu’ á vorin og færðu yl í mína bernsku sál, eg man þá löngum létt mér var um sporin og lítiö skeytti’ um almenn háttumál. Og enn eg man, þá upp á Þríhyrningi, með æskuvinum sat eg glaðan fund; er ársól brosti yfir Rangárþingi, um unaðsfagra og bjarta sumarstund, þá orkti eg þar eitt af fyrstu kvæðum, þó andans gáfa væri harla smá. En samt eg fann, að æskublóð í æðum, eg átti fult eins hlýtt og hinir þá. En þó að ei sé þessu nú að hrósa, mér þó er leyft að gleðjast enn í dag; við endurminning svásra sumarrósa cg söngfuglanna vinar hlýja lag; og útsýn fagra eiga hér sem forðum, sem enn svo björt og tignarleg og fríð en langt er frá eg lýsi því með orðum hve ljúf hún var mér oft á fyrri tíð. En þó að vísu þetta alt sé draumur og þannig horfin sælustund og vor, þá getur ennþá gleðidagur naumur, sem geisli skinið á mín hinstu spor.

x

Hugrún

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugrún
https://timarit.is/publication/1335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.