Fréttablaðið - 29.06.2019, Page 4
68%
landsmanna hafa miklar áhyggjur
af hlýnun jarðar. Konur hafa meiri
áhyggjur en karlar og elsta og
yngsta kynslóðin meiri áhyggjur
en þær á milli.
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
GOÐSÖGNIN NÝR JEEP® WRANGLER
jeep.is
JEEP® WRANGLER RUBICON
Rock-Track® fjórhjóladrif, Select-Trac® millikassi, Tru-Lock® 100%
driflæsingar að framan og aftan, aftengjanleg jafnvægisstöng að
framan, Heavy Duty fram- og afturhásing, 17” álfelgur, 32” BF
Goodrich Mudtrack hjólbarðar, bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð,
bakkskynjarar, aðgerðarstýri, hraðastillir, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, rafdrifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir hliðarspeglar
og fjarstýrðar samlæsingar.
WRANGLER RUBICON BENSÍN 273 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
WRANLGER RUBICON DÍSEL 200 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
d
35
” d
ek
k
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST
HEILBRIGÐISMÁL „Sykur veldur ekki
krabbameini beint, en það eru mjög
margar rannsóknir sem sýna að ef
þú drekkur mjög mikið af sykr
uðum gosdrykkjum ýti það undir
þyngdaraukningu. Og of mikil
þyngd, of mikil söfnun líkamsfitu,
eykur áhættuna á krabbameini.
Þetta er ákveðin keðjuverkun,“
segir Jóhanna Eyrún Torfadóttir,
næringarfræðingur hjá Krabba
meinsfélaginu. Segir hún fjölda
rannsókna sýna fram á tengsl milli
offitu og krabbameina, og að aukin
líkamsþyngd sé staðfestur áhættu
þáttur 12 tegunda krabbameina,
þar á meðal í brjóstum, ristli og
blöðruhálskirtli.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis
ráðherra kynnti aðgerðaáætlun
Landlæknis til að draga úr sykur
neyslu fyrir ríkisstjórninni fyrir
skömmu. Í áætluninni, sem unnin
var að beiðni ráðherra, er lagt til
að skattar á gosdrykki og sælgæti
hækki um allt að 20 prósent. Á sama
tíma á að lækka álögur á ávexti og
grænmeti. Sitt sýnist hverjum um
málið, en Krabbameinsfélagið
styður sykurskattinn heilshugar.
„Félagið fagnar öllum aðgerðum
sem draga úr fjölda krabbameina.
Alþjóðastofnanir mæla með sykur
skatti, neyslusköttum og stjórn
valdsaðgerðum, af því að þær
virka,“ segir Halla Þorvaldsdóttir,
framkvæmdastjóri Krabbameinsfé
lagsins. Segir hún að þær forvarnar
aðgerðir sem Íslendingar hafi ráðist
í með góðum árangri, þá sérstaklega
í reykingum, hafi falið í sér hækk
anir og að draga úr sýnileika.
Jóhanna segir brýnt að draga úr
sykurneyslu Íslendinga, sérstaklega
í gegnum gosdrykkju.
„Að drekka sykur er allt annað
en að borða sykur. Það er eins og
líkaminn verði ekki saddur við að
drekka hitaeiningar. Sama hvernig
á þetta er horft þá eru sykruðu
gosdrykkirnir efstir á blaði þegar
kemur að því að ýta undir þyngdar
aukningu.“
Krabbamein er nú algengasta
ótímabæra dánarorsök Íslendinga
og má þriðji hver Íslendingur vænta
þess að fá krabbamein á ævinni.
„Vitað er að koma mætti í veg
fyrir fjögur af hverjum 10 krabba
meinum með forvörnum. Það mætti
koma í veg fyrir að rúmlega þúsund
manns fái krabbamein á næstu 30
árum með því að helminga þann
fjölda Íslendinga sem eru of þungir,“
segir Jóhanna.
„Það getur tekið tugi ára fyrir
þetta að hafa áhrif á fækkun
krabbameina.“ Nefnir Jóhanna sem
dæmi að það á enn eftir að koma
niðursveifla í lungnakrabbamein
um, sérstaklega hjá konum, í kjölfar
fækkunar einstaklinga sem reykja.
„Þeir sem reyktu mikið á síðustu öld
eru núna að fá lungnakrabbamein.
Varðandi aðgerðaáætlunina segir
Jóhanna það gleymast í umræðunni
að það eigi að lækka verð á ávöxt
um og grænmeti. „Það að borða
ávexti og grænmeti minnkar líkur
á krabbameinum, það er eitthvað
sem er mjög jákvætt við sykurskatt
inn. Bæði er það gott fyrir jörðina og
það er sérstök vernd gegn krabba
meinum,“ segir Jóhanna.
„Rannsóknir sýna að skattlagn
ing á sykraðar vörur virkar ef hún
er áþreifanleg og með lýðheilsu
sjónarmið að leiðarljósi.“
arib@frettabladid.is
Sykurskatturinn hjálpar til að
draga úr líkum á krabbameini
Krabbameinsfélagið styður hugmyndir ráðherra um sérstakan sykurskatt á gosdrykki og sælgæti. Segir
næringarfræðingur að það megi koma í veg fyrir að þúsund manns fái krabbamein á næstu 30 árum. Of-
þyngd og fitusöfnun eykur áhættu á minnst tólf tegundum krabbameins. Verra að drekka sykur en borða.
Aðgerðaáætlun Landlæknis gerir ráð fyrir 20 prósenta hækkun á sætum gosdrykkjum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
14
milljarðar króna er fjárhags-
legur ávinningur ríkissjóðs af
sölu eigna á Ásbrú. Síðustu
eignirnar heyrðu áður undir
gamla varnarliðssvæðið.
Óli Björn Kárason
þingmaður Sjálf-
stæðisf lokksins
segir verulegar
efasemdir um
fjölmiðla
frumvarp Lilju
Alfreðsdóttur
innan þingflokks
Sjálfstæðis
manna. Ef henni sé alvara verði
að taka á þátttöku RÚV á sam
keppnismarkaði.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
formaður
Viðreisnar
telur fyrirhug
aðan sykurskatt
í þágu sérhags
muna og finnst
sérstakt að
mismuna milli
vörutegunda.
Harpa Þorsteinsdóttir
knattspyrnukona
þurfti að fara aftur undir hnífinn
vegna rifu í liðþófa og kemur því
ekkert við sögu á þessu tímabili.
Harpa er samn
ingslaus og veit að
endurhæfingin
mun taka tíma
en stefnir á að
komast aftur út á
völl á næsta ári.
TÖLUR VIKUNNAR 23.06.2019 TIL 29.06.2019
Þrjú í fréttum
RÚV,
syndaskattur
og rifinn liðþófi
53
klukkustundir er nýtt met í hjól-
reiðakeppninni WOW Cyclothon.
Bandaríski ljósmyndarinn Chris
Burkard
setti metið
og svaf
ekkert alla
keppnina.
10
þúsund er fjöldi
atvinnulausra í maí
samkvæmt Hag-
stofu Íslands eða
um 4,7%. Atvinnu-
leysi eykst um 1½
prósentustig frá
því í apríl miðað við
rannsóknir Hag-
stofu Íslands.
129
mörk hafa verið skoruð á Heims-
meistaramóti kvenna í knatt-
spyrnu sem
haldið er í
Frakklandi. Alls
hafa verið spil-
aðir 45 leikir og
er meðalmarka-
fjöldi 2,87 í leik.
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
4
-A
B
B
0
2
3
5
4
-A
A
7
4
2
3
5
4
-A
9
3
8
2
3
5
4
-A
7
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K