Fréttablaðið - 29.06.2019, Síða 20
Þann 1. júní síðastliðinn var Jóna Elísabet Ottesen, ung móðir úr borginni, á leið úr sumarbústað norður í landi ásamt fimm ára dóttur
sinni þegar bíll þeirra mæðgna valt.
Dóttir Jónu, Ugla, slapp ómeidd en
Jóna ekki. Hún hlaut mænuskaða
við slysið.
Maður Jónu heitir Steingrímur
Ingi Stefánsson, kallaður Ingi. „En
það eru mjög jákvæð teikn á lofti,
svo það sé sagt strax í upphafi. Hún
er byrjuð að geta hreyft hendur, en
þarf vitaskuld að vinna í því og að
því. Hún þarf að safna kröftum.
En læknarnir er vongóðir með efri
hluta líkamans og að hún geti lifað
sjálfstæðu lífi. Bjargað sér. Það er
fyrsta markmiðið,“ útskýrir Ingi.
Daginn örlagaríka var Ingi við
vinnu norður í landi. Hann átti
fertugsafmæli og frídag við gerð
bíómyndar sem hann vann að og
Jóna var á leiðinni til hans að fagna
tímamótunum. „Við fórum saman
í sumarbústað þarna og svo gerist
þetta á leiðinni þaðan. Þær velta.“
Fyrir einskæra lukku voru þau
sem fyrst komu að slysinu læknir,
hjúkrunarfræðingur og sjúkra
liðar. „Þannig að þegar lögreglan
kemur á staðinn er þegar starfandi
bráðateymi, sem hefur sennilega
bara bjargað lífi hennar. Þetta hefði
getað farið verr. Ég get ekki þakkað
því fólki nóg,“ segir Ingi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom
svo og sótti þær mæðgur, en Ugla
hafði setið í aftursætinu öfugu
megin við móður sína. Jóna fór
strax í aðgerð, liðhlaupið lagað og
síðan upp á gjörgæslu þar sem hún
hefur dvalið síðan. „Hún hefur verið
í og úr öndunarvél en er alveg ótrú
lega brött. Þannig er hún bara.“
Jóna og Ingi kynntust árið 2012
og hafa verið saman allar götur
síðan. Ugla fæddist tveimur árum
síðar. Þau eiga þéttan vinahóp og
fjölskyldu sem hefur einsett sér að
safna fyrir áframhaldandi meðferð
og endurhæfingu fyrir Jónu, meðal
annars með því að hlaupa í Reykja
víkurmaraþoninu.
Meðal þeirra sem ætla sér að
hlaupa í maraþoninu fyrir Jónu eru
systir hennar, Ása Ottesen, og vin
konurnar Hólmfríður Helga Sig
urðardóttir blaðamaður, Kolfinna
Mjöll Ásgeirsdóttir kennari og Sóley
Kristjánsdóttir vörumerkjastjóri.
Afslöppuð týpa sem tekur ekki
verðmiðann af neinu
Hólmfríður, Ása og Kolla eru æsku
vinkonur úr Árbænum, en Jóna
hefur alltaf verið hluti hópsins.
Hólmfríður: Fyrst sem sagt, var
hún litla systir hennar Ásu en síðar
varð hún vinkona okkar. Það er ekki
annað hægt þegar maður kynnist
Jónu en að verða vinkona hennar.
Hún hefur alltaf verið ein af hópn
um, þó hún sé tveimur árum yngri.
Sóley kom síðar inn í hópinn, en
þær Ása kynntust fyrir tveimur ára
tugum.
Sóley: Ég kynntist Jónu reyndar
líka í gegnum Ásu, en við vorum
alltaf saman. Eiginlega allar götur
síðan 1998,“ segir hún og allir hlæja.
Ása: Jóna er svona manneskja
sem er alltaf með eitthvað á prjón
unum, einhverjar skemmtilegar
hugmyndir. Hún er sjálfstæð og fer
eigin leiðir og er alltaf að pæla í hvað
hún vill gera næst. Hún er skapandi.
Það fer kannski ekki mikið fyrir
henni, hún er ekki hávær en það
er alltaf ótrúlega mikið í gangi í
hausnum á henni.
Hólmfríður: Hún er svona frjáls
andi. Hún elskar lífið og allt sem er
fallegt og gott. Mikill hippi í henni.
Kolla: Ég held að það sé óhætt að
segja að Jóna sé mikill hippi.
Sóley: Hún elskar náttúruna.
Hún er ótrúlega hlý og kærleiksrík
og segir svo fallega hluti. Hún er
eiginlega ljóðræn. Heimilið hennar
er líka svo fallegt og litríkt og mikið
hún. Maður sér þegar maður kemur
heim til hennar hvernig karakter
hún er.
Ása: Hún hendir náttúrulega
engu.
Ingi hlær. „Alls engu.“
Ása: Við erum svona svart og
hvítt með þetta. Heima hjá mér er
allt í skúffum og skápum í réttri röð.
Jóna er öllu frjálsari.
Ingi: Hún tekur ekki verðmiðann
af neinu. Það eru grænir verðmiðar
úr Góða hirðinum á öllu heima.
Þau hlæja öll innilega.
Ása: Hún er bara mjög afslöpp
uð týpa. Hún er ekkert að stressa
sig á því sem aðrir eru að gera eða
hvernig hlutirnir eiga að vera. Hún
er alveg hún sjálf. Hún klæðir sig í
vintage búðum og er algjörlega sinn
eigin herra.
Kolla: En samt með svo skýra sýn
á lífið og hvernig hún vill breyta og
gera. Eins og þessi barnahátíð sem
hún heldur á hverju ári, segir hún og
vísar þar í barnamenningarhátíð
ina Kátt á Klambra, sem Jóna hefur
haldið undanfarin ár við góðan orð
stír. Hún er alltaf eitthvað að spá og
spekúlera. Ekki í þessu hefðbundna.
Ingi: Við ætlum að halda hátíðina
í ár eins og önnur ár. Það breytist
ekkert þar. Kátt á Klambra verður
haldin með glæsibrag á Klambra
túni þann 28. júlí næstkomandi!
Það koma erfiðir dagar
Vinirnir hafa, líkt og áður segir, ein
sett sér að safna fyrir endurhæfingu
Jónu og hafa skoðað möguleikann á
því að fara til útlanda.
Ása: Ástæðan fyrir söfnuninni
er sú að þó að við vitum að það er
margt frábært að gerast heima og að
Grensás sé frábær staður þá erum
við spennt fyrir Jónu hönd að skoða
eitthvað í útlöndum líka.
Ingi: Félagslegi þátturinn er til
dæmis mjög mikilvægur. Úti eru
endurhæfingarstöðvar þar sem fólk
á svipuðum aldri, með svipaðan
skaða, kemur saman. Meira að segja
á sumum stöðvum er starfsfólkið
líka með skaða. Þá myndast önnur
stemning, þegar allir eru á sama báti
einhvern veginn.
Ása: Þar er meira fókuserað á
slíkt. Grensás er eins og ég segi frá
bær stofnun, en við viljum að Jóna
geti líka leitað út ef hún vill það. Það
er svo margt í gangi úti í heimi. En
söfnunin er samt bara fyrir Jónu,
Löng og ströng
meðferð fram
undan
Hún elskar lífið og allt sem er fallegt, segja vinir og aðstandendur
Jónu Ottesen sem leggja henni lið og hlaupa í Reykjavíkurmara-
þoninu. Jóna lenti í bílslysi í júnímánuði og hlaut mænuskaða.
Fyrir algjöra tilviljun voru læknir, hjúkrunarfræðingur og sjúkra-
liðar nærri slysstað og björguðu líklega lífi hennar.
HÚN ER ALGJÖRLEGA
GRJÓTHÖRÐ. BARA FRÁ
FYRSTA DEGI AÐ REYNA
AÐ HREYFA SIG OG GERA
ALLT SEM HÚN GETUR. ÞAÐ
KOMA AUÐVITAÐ ERFIÐIR
DAGAR EN HEILT YFIR ER
HÚN MJÖG HÖRÐ.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
4
-C
4
6
0
2
3
5
4
-C
3
2
4
2
3
5
4
-C
1
E
8
2
3
5
4
-C
0
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K