Fréttablaðið - 29.06.2019, Side 60
EF VIÐ MÆTTUM BJÓÐA MEÐ OKKUR
GESTI VÆRI ÉG TIL Í AÐ FÁ BJARNA BEN
TIL AÐ TAKA VESTFIRÐINA MEÐ OKKUR –
HANN MYNDI SJÁ UM BAKSTURINN
ENGIR ALDURSKOMPLEXAR
MEÐ MUMMA
Rakel Garðarsdóttir, hjá Vakandi
Rakel segir nokkra stjórnmálamenn
koma til greina. „Enda eru þau ófá
sem starfa í þágu okkar, sem mér finnst
afar spennandi týpur, sem ég væri til í að kynnast
betur og fá að upplifa töfra Íslands með. En ef ég ætti
velja einn þá held ég að Guðmundur Ingi Guðbrands
son umhverfisráðherra yrði fyrir valinu,“ segir Rakel.
„Guðmundur Ingi eða Mummi eins og hann er ætíð
kallaður er jafnaldri minn og því kæmu ekki upp nein
ir aldurskomplexar á ferð okkar um landið. Mummi
er fæddur og alinn upp á Mýrunum, sonur bónda og
með próf upp á líffræði þannig að ég myndi treysta
honum vel til að kynna mér vel valdar perlur og
furðudýr á ferðalagi okkar. Þar sem hann er einn
ig útskrifaður frá Hússtjórnarskóla Íslands treysti
ég því að hann myndi prjóna á mig peysu og sjá um
allt nesti sem borið yrði fram, undir berum himni
auðvitað á nýstraujuðum dúk. Og til að toppa hvað
þetta yrði mikil glamúrferð þá höfum við Mummi
um margt sameiginlegt að spjalla og því frábært að
fá svona langan tíma ein með honum. Ef við mættum
bjóða með okkur gesti væri ég til í að fá Bjarna Ben til
að taka Vestfirðina með okkur – hann myndi sjá um
baksturinn og ég fengið tækifæri til að spyrja hann
um eitt og annað.“
VILL HÓPFERÐ
Kjartan Atli Kjartansson
sjónvarpsmaður
Kjartan segir þingmönnum úr
öllum flokkum boðið í hring
ferð. „Í þeim tilgangi að reyna að
skapa breiða sátt um að bæta
úr öryggismálum á þjóðvegum
landsins. Einhvern tímann í fram
tíðinni munum við horfa til baka
og hrista hausinn; rifja upp þegar
bílar keyrðu í sitthvora áttina á
sama veginum á tæplega 100
kílómetra hraða. Margra tonna
flykki sem mætast með örlitlu
bili á milli. Ég myndi reyna að fá
þingmennina til að auka öryggið.
Draumurinn er auðvitað að tvö
falda þjóðveginn því þar er hver
og einn með sitt aksturslag; sumir
keyra hægt, aðrir eru að flýta sér,
einhverjir eru á flutningabílum,
þar eru ferðamenn sem eru óvanir
íslenskum aðstæðum, fjölskyldur
með hjólhýsi í eftirdragi, reið
hjólafólk, einhverjir
á mótorhjólum
og svona mætti
lengi telja. Við
þurfum meira
en eina akrein í
hvora átt til að
rúma alla sem
þurfa að nota
þjóðveg
inn.“
BÍLTÚR MEÐ KATRÍNU
Einar Bárðarson umboðsmaður
Einar vill fara með forsætisráð
herra í bíltúr. „Til að heyra frá henni
hvernig hún sér Samkomulag um
samstarfsvettvang stjórnvalda og
atvinnulífs um loftslagsmál og grænar
lausnir ganga eftir og hvaða aðgerða eigi að grípa til
og hvernig þeim verður fylgt eftir með mælanlegum
hætti,“ segir Einar.
„Málaflokkurinn fékk í lok maí til ráðstöfunar marga
milljarða undir merkjum þessa samkomulags en
myndatökunni og fréttatilkynningunni fylgdu ekki
skýrar og mælanlegar aðgerðir. Þetta er mest áríð
andi málaflokkur í heiminum burt séð frá allri hægri
og vinstri pólitík. Ég myndi vilja setja mig inn í það
hvernig við ætlum að leggja okkar af mörkum sem
þjóð og reyna þannig að hjálpa til með þetta. Svo er
Katrín bara skemmtileg, fróð og lífsglöð manneskja
og tíma sem varið er með þannig fólki er vel varið.“
ÞORGERÐUR ER RATVÍS
Natalie G. Gunnarsdóttir
plötusnúður
Natalie segir að Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, formaður Við
reisnar, yrði fyrir valinu. „Hún virkar
hress og skemmtileg þannig að það
yrði aldrei lognmolla á leiðinni og
þó það yrði væri það bara allt í lagi.
Ég held að hún sé ratvís og kunnug
staðháttum þannig að hún myndi
luma á skemmtilegum staðreynd
um um hina ýmsu staði og leyndar
náttúruperlur sem vert væri að
skoða,“ segir Natalie. „Ég er líka
viss um að ef það myndi springa á
dekkinu þá værum við samt í topp
málum því ég held að felgulykillinn
sé ekkert að flækjast fyrir henni.“
Þá heldur Natalie að Þorgerður sé
jeppakona.
„Það hentar mér mjög vel þar sem
ekkert annað kæmi til greina í
hringferð. #aðförin.“
ÞÓRDÍS SÉR UM LAGALISTANN
Eva Laufey Hermannsdóttir kokkur
Eva Laufey á ekki í erfiðleikum
með að velja sér ferðafélaga. „Ég
myndi án efa bjóða góðvinkonu
minni henni Þórdísi Kolbrúnu með
mér í hringferð, aðallega vegna þess að
hún hefur svo góðan tónlistarsmekk og ég veit að
það yrði mjög gaman hjá okkur. Það væri svo gaman
að fara í hringferð með henni með það markmið að
skoða alla nýsköpunina í matargerð sem á sér stað
úti um allt land, það eru svo margir að gera frábæra
hluti í matargerð, til dæmis að heimsækja þá sem eru
að rækta bygg, búa til framandi sósur, brugga bjór
og rækta wasabi svo dæmi séu tekin. Ungt fólk er að
flytja á landsbyggðina og búa sér til tækifæri og ég
væri svo sannarlega til í að keyra hringinn með Þór
dísi minni og skoða þetta betur.“
ENGIN SJÁLFSRITSKOÐUN
Frosti Logason útvarpsmaður
Frosti vill leggja í hringferð með
Brynjari Níelssyni. „Við Brynjar
erum nú ekki sammála um allt en
hann er maður sem þorir að segja
meiningu sína og það kann ég að
meta. Ég er svona gaur sem þarf að fá að heyra
hlutina umbúðalaust og þoli ekki að eiga samskipti
við manneskjur sem eru í stöðugri sjálfsritskoðun
og laumast með allt eins og kettir í kringum heitan
graut,“ segir Frosti og bætir við: „Og ef Brynjar væri
upptekinn þá væri Sigríður Andersen augljóslega
næst á óskalistanum.“
ÁSI ERKIBÍLSTJÓRI
Margrét Erla Maack listakona
Margrét Erla er einmitt á ferða
lagi um landið um þessar mundir
með fullorðins fjölbragðasýningu.
„Svo sú fyrsta sem mér datt í hug
var Katrín Jakobs. Ekki bara af því
að hún hefur farið á töfrabragða
námskeið og af því að erlendir
listamenn hafa verið impóneraðir
af því að ung kona sé forsætisráð
herra – heldur myndi það aldeilis
ganga fram af þeim að segja: „Já,
og svo er hún er með okkur í sjóv
inu!“
En svo fór ég að hugsa um
lógík og bílamál og þá bömpaði ég
Kötu strax úr ferðalaginu og setti
erkibílstjórann Ásmund Friðriks
um borð. Hann fer svo
hratt yfir og virðist
geta ekið tveimur
bílum í einu. Svo
var ég að heyra að
við séum gift inn í
sömu ætt. Svo: Ská
frændi minn
Ásmundur
Friðriks.“
Förum í fríið
Fréttablaðið fór á stúfana og spurði nokkra
vel valda einstaklinga hvaða stjórnmála-
manni þau gætu helst hugsað sér að leggja
í hringferð með um landið. Ýmis nöfn
komu upp úr krafsinu. Ásmundur Friðriks-
son var nefndur vegna alkunnrar aksturs-
hæfni sinnar og Þorgerður Katrín vegna
þess að hún myndi ekki láta felgulykilinn
flækjast fyrir sér ef ske kynni að springi á
dekki á leiðinni.
ÉG HELD AÐ
FELGULYK-
ILLINN SÉ
EKKERT AÐ
FLÆKJAST
FYRIR
HENNI.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
4
-B
5
9
0
2
3
5
4
-B
4
5
4
2
3
5
4
-B
3
1
8
2
3
5
4
-B
1
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K