Ófeigur - 15.04.1948, Síða 29
ÓFEIGUR
29
í öllum menningarlöndum verja þroskaðir menn sam-
vinnufélögin frá þeim rangindum, að félagsmannavið-
skipti séu skattstofn. Hér hefur núverandi formaður
Sis, Eysteinn Jónsson, lagt samvinnufélögin undir fall-
öxi andstæðinganna, að því er snertir skattaálögur.
# # #
Eysteinn Jónsson hefir flutt vinnulag kommúnista
inn í samvinnufélögin. Það er hinn skipulagði undir-
róður til persónulegs framdráttar. Brynjólfur hrakti
Eystein með þeirri aðferð úr Kron. En Eysteinn. komst
í sambandsstjórn 1944, með því að skipuleggja undir-
róður móti Jóni Ivarssyni, og varð varaformaður Sis
tveim árum síðar, með því að beita sömu aðferð móti
Jakob Frímannssyni. Áður var óþekkt fyrirbrigði að
smala atkvæðum í kaupfélögunum. Menn kusu þar í
trúnaðarstöður reynda og dugandi starfsmenn félag-
anna, án þess að liði væri safnað. Hingað til hefir Ey-
steinn haft sitt fram með tækni kommúnista. Senni-
lega fer í samvinnufélögunum líkt og fyrir Bretum í
stríði. Þeir eru ætíð óviðbúnir, tapa ætíð fyrstu orust-
unum en sigra að lokum. Ef allt fer að líkum, á Eysteinn
að geta, með hjálp kommúnista og manna, sem eru
minna hugsandi um samvinnumál heldur en undir-
róður, náð álitlegum hluta sambandsstjórnar á sitt vald,
úr því að honum hefir lánazt að ryðja frá sér tveim
merkstu kaupfélagsstjórum, þó að hann hafi orðið
samvinnuhreyfingunni óþarfari heldur en nokkur einn
andstæðingur. Hitt er annað mál, að þegar á reynir,
munu kaupfélagsmenn taka sín mál í eigin hendur.
En það gera íslenzkir samvinnumenn og Bretar ekki
fyrr en búið er lengi að beita þá yfirgangi.
* * *
Það var sagt um grískt borgríki í fornöld, þar sem
vaskir menn höfðu lengi varið garðinn, að þjóðin hefði
í áratugi ekki séð reyki úr f jandmannaherbúðum. Sama
geta íslenzku samvinnufélögin sagt. 1 60 ár var mál-
staður þeirra varinn með harðfengi og baráttunni
venjulega snúið í sókn. Jón í Múla, Benedikt á Auðn-
um, Sigurður á Yztafelli, Tr. Þórhallsson, Páll Jónsson
frá Reykhúsum og við Jónas Þorbergsson, höfum hrund-
ið árásum andstæðinga með áhuga, og viðunandi tækni.