Ófeigur - 15.04.1948, Qupperneq 31
ÓFEIGUR
31
Gylfi ætlar að bola Kjartani Ólafssyni úr bankaráðinu,
eins og hann hefur ýtt Haraldi af þingi. Jónas Haralz
er í ráðinu frá kommúnistum. Þrír sííkir menn hefðu
myndað einkennilegan ,,vinstri.“ meirihluta. í þeim
félagsskap gat Eysteinn haft allgóð skilyrði til verzl-
unar um bankastjórasæti, en hann telur sér hæfa slíkt
embætti, þegar landið nýtur hans ekki í ríkisstjórn-
inni. Samvinnumönnum þótti þessi ráðstöfun ekki tryggi-
leg. Þeir höfðu um Ianga stund haft okkur Jón Árna-
son í bankaráðinu og unað vinnubrögðum okkar. Nú
var ekki nema um eitt sæti að ræða. Samvinnumenn
heimtuðu í það Vilhjálm Þór, og náði hann kosningu.
Kom Hermann mjög sómasamlega fram í því máli, af
skilningi á því, að baggar Eysteins væru að verða hon-
um ofurefli, fremur en af umhyggju fyrir velferð kaup-
félaganna. En Landsbankinn, kaupfélögin og þjóðin öll
mega una vel við þessa ráðstöfun. Gylfi og Jónas Har-
alz geta nú, án áhættu fyrir landið, sezt hlið við hlið
í stjórn Landsbankans.
* * #
Ekki hefir orðið sýnilegur árangur af ferðum ís-
lenzkra leiðtoga á fundi sameinuðu þjóðanna. Þeir hafa
látið undir höfuð leggjast, að verða við óskum lögfræði-
nemans, Jóns Hjaltasonar frá Hólum í Hornafirði, sem
vill að fulltrúar Iandsins heimti að stórveldin taki Is-
land til fyrirmyndar um algert vopnleysi. Getur Jón
gert rússneskum almúga gott með þessum tiltektum,
því að Stalin mun hafa 3 l/2 milljón manna undir vopn-
um. Eru slíkar uppástungur vottur um einkennilegt
sálarástand. Eina handbæra vitneskja sem borizt hef-
ur með íslenzku fulltrúunum frá alþjóðaþinginu er frá-
sögn Hermanns, framborin yfir Framsóknarvist, eftir
heimkomuna í haust — að á hæstu stöðum vestra
sé þeim „sem einhverju ráða“ borinn veizlukostur á
gulldiskum.
* * #
Þegar Sigurður búnaðarmálastjóri hafði starfað fyr-
ir bændastétt landsins í aldarf jórðung og lokið stærsta
dagsverki einstaks manns á þeim vettvangi, gerðu tveir
öfundarmenn hans samsæri gegn honum. Stóðu að því
verki bóndi og braskari. Komu þeir svo sinni rógmælgi,