Ófeigur - 15.12.1950, Qupperneq 6

Ófeigur - 15.12.1950, Qupperneq 6
6 ÖFEIGUR Smiðirnir voru flestir úr Reykjavík. Varð að flytja þá og sækja í bifreiðum á ríkisins kostnað hvern dag og borga þeim kaup frá því þeir stigu fram úr rúmkiu á morgnana og þar til þeir fóru í inniskó á kvöldin. Kost- aði þessi flutningur 30 þús. kr. árlega. Tvær skýringar eru til á því fyrirbæri, hversvegna Bjarni Ásgeirsson lagði út í þessi fasteignakaup. Ríkið átti verkstæði í Reykjavík og hafði enga þörf fyrir stækkun. Seljand- inn Eyjólfur Jóhannsson frá Sveinatungu er bæði mikill vinur Bjarna og háttsettur liðsoddur í flokki Mbl.manna. Verður aldrei fullvíst, hvort Eyjólfur hefur í þessu efni fremur notið vinsælda og langvarandi gagnkvæmra fjármálaframkvæmda með atvinnumálaráðherra Fram- sóknar eða að ráðherra hefir litið á hina marghátt- uðu verðleika Eyjólfs við undirforingjastörf í samfylk- ingu allra stétta. Nálega engin verkefni biðu þessarar trésmíðaverksmiðju Bjarna og Eyjólfs nema helzt að smíða fyrir ríkisstofnanir, sem höfðu lítinn kaupeyri. Þegar leið að ráðherrakvöldi Bjarna Ásgeirssonar voru stofnskuldir Silfurtúns óbærilegar, flutningurinn á smiðunum á kostnað ríkisins eins dæmi og lítið um viðskiptavini nema þá sem ekki gátu borgað. Frum- kostnaður Silfurtúns og óhjákvæmilegur rekstrarhalli hvíldi með vaxandi þunga á ríkissjóði. Þegar Hermann Jónasson hafði eftir marháttaðar hörmungar erft stól Bjarna Ásgeirssonar, þótti honum bera vel í veiði að sanna á ómótmælanlegan hátt vanmátt þessa keppinautar og að losna við að útvega stórfé í hinn mikla tekjuhalla á smíðaverkstæði Eyjólfs og Bjarna. Lét hann brátt loka Silfurtúni og gera eins konar útboð á fyrirtækinu. En þó að leitað væri langt og víða vildi enginn kaupa eða leigja þetta Silfurtún. Að lokum kom Hermanni til hugar að losna við þennan sjúkling tveggja flokka með einhverskonar gjafabréfi til hinna athafnamiklu sjúklinga í Reykjalundi. Sú leið var líka lokuð. Þó að leitað væri með logandi ljósi um allt land var ekki til einn einasti maður eða stofnun sem treysti sér til að íklæðast hinni tvöföldu fjármálaljóns- húð tveggja nafnkendra manna úr Mýrasýslu. Silfurtún er harðlokað. Veggir verkstæðisins eru byrjaðir á eins- konar keppni við tuminn í Písa um mótþróa við þyngd- arlögmálið. Og þyngdarlögmál viðskiptanna vill ekki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.