Ófeigur - 15.12.1950, Síða 15
ÖFEIGUR
15
Odda líkt og í Reykholti, Reykhólum eða Staðarfelli.
1 Odda hygg ég henta bezt að rækta trjágarð í mest-
öllum hvamminum, líkt og unnið er að í Reykholti,
endurbyggja kirkju og prestsetur á smekklegan hátt,
en bæta svo við listaverkum og minningartöflum víða
í garðinum. I París hafa hinir listrænu Frakkar látið
gera tvær steintöflur framanvert við hið fagra ráðhús
borgarinnar. Er á annarri töflunni brot úr ræðu sem
Clemenceau hélt, þegar sigur var unninn í fyrra stríð-
inu, en við hlið hennar stendur ræðukafli de Gaulle
þegar París var frelsuð 1945. Á sama hátt færi vel á
að hafa í slíkum garði minningartöflu, þar sem dómur
hins mikla bónda, Jóns Loftssonar um yfirburði forfeðra
hans í samanburði við páfann væri tilfærður, orð-
rétt. Með þessum hætti mætti á táknmáli segja sögu
Oddastaðar og gera Odda að nýju frægan og eftir-
minnilegan í hugum landsmanns. Má vel vera, að svip-
aðar aðgerðir ættu víðar við á helgum sögustöðum.
*
Þess var áður getið í Ófeigi, að Kjartan Ólafsson í
Hafnarfirði hefði komizt með einskonar kraftaverki
gegnum hreinsunareld flokksmennskunnar, líkt og þeg-
ar Guðmundur Bergþórsson heimspekingur féll út um
lokaðar járngrindur efst í hinu rammgerða Bláturns-
fangelsi í Kaupmannahöfn og kom ljóslifandi niður
á stræti borgarinnar. Gekk hann þaðan yfir lög og sekt-
ardóm kúgarans út í frelsið. Á sama hátt komst
Kjartan Ólafsson bráðheill út úr hinum háskalegustu
mannraunum í trúnaðarmannakosningum á Alþingi. En
til að skilja það kraftaverk þarf að rifja upp aðra
og engu ómerkari kosningasögu úr annálum þingsins.
Þegar Jón Árnason var kosinn bankastjóri í Lands-
bankanum voru í bankaráðinu tveir Mbl. menn, tveir
Framsóknarmenn og einn krati. Það var Jónas Guð-
mundsson. Jón Árnason hafði þá verið 18 ár formað-
ur í bankaráðinu og átt meginþátt í hinni miklu end-
ursköpun þjóðbankans með Magnúsi Sigurðssyni. Auk
þess hafði Jón Árnason verið einn áhrifamesti maður
sinnar samtíðar um þróunarmálefni atvinnuvega hér á
landi undangengin 30. ár. Það varð að samkomulagi
að Sjálfstæðismennirnir, varamaður Jóns Árnasonar,
sá sem þetta ritar og Jónas Guðmundsson kusu Jón
Árnason vegna augljósra verðleika hans í einu hljóði