Ófeigur - 15.12.1950, Síða 43
ÖFEIGUR
43
um í senn. Fundust þá fjölmargir dulmálslyklar. Urðu
hinir seku þá að játa sekt sína. Voru þeir ýmist í þjón-
ustu íslenzkra útgerðarfélaga eða erlendra. Sumir
störfuðu bæði fyrir landa sína og útlendinga og þágu
fé fyrir. Þessi sviksemi gaf ástæðu til að fá enska
lögreglu í lið með sér. Barst þaðan allmikil vitneskja
í þessu glæpamáli frá ensku lögreglunni, þar á meðal
allmargir dulmálslyklar, sem tilheyrðu njósnum íslend-
inga fyrir þessa útlendu aðilja. Engin löggjöf var til
um þessa svikastarfsemi. Var ekki hægt að dæma af-
brotamennina nema í mjög lágar sektir. Hinsvegar
urðu þeir fyrir hörðum dómum almenningsálitsins i
landinu. Þeir landhelgisnjósnarar, sem höfðu nokkrar
félagslegar mannvirðingar, urðu að afsala sér trúnaði
fyrir það mannfélag, sem þeir höfðu svikið með svo
skemmilegum hætti.
XXI.
Varðbátar í stað varðskipa.
Meðan Magnús Gu^mundsson sat að völdum, 1932
—34 og neyddist til að láta tvö af þremur gæzluskip-
um liggja aðgerðalaus inni í höfnum til að spara kol og
olíu í nauðsynlegum ferðum, kom Pálmi Loftsson að
máli við ráðherrann og benti honum á, að þetta ófremd-
arástand í gæzlumálum gæti ekki staðið til langframa.
Þó að skipin tvö lægju í höfn, væri við þau mikill kostn-
aður, þar á meðal allt mannahald, en enginn stuðning-
ur fyrir landhelgisvarnir. Mætti heita, að gæzlan væri
að mestu leyti lögð niður, þó að eitt skip væri til eftir-
lits með allri strandlengjunni. Lagði Pálmi Loftsson
til, að tvö skipin yrðu seld, en í þeirra stað keyptir
og gerðir út vopnaðir bátar, sem gætu dreift sér á
ströndina eftir þörfum. Ráðherrann tók þessari bend-
ingu kurteislega, en gerði ekkert í málinu. Eftir stjórn-
arskiptin 1934 tók Pálmi Loftsson málið upp að nýju
við þingið. Ég var þá formaður fjárveitinganefndar.
Málið var þar til umræðu og fékk góðar undirtektir.
Meðal þeirra Sjálfstæðismanna í nefndinni, sem lögðu
gott til þessarar breytnigar, voru Magnús Guðmunds-
son og Pétur Ottesen. Stuðningsmönnum málsins þótti
henta, að fá liðveizlu utan þings frá fulltrúum útvegs-
ins. Var þriggja manna nefnd sett til að gera rök-
\