Ófeigur - 15.12.1950, Side 53
ÖPEIGUrí.
53
gengið allt að 25 mílur á klukkustund. Hver bátur
kostaði um 300 þúsund krónur íslenzkar. Það var miklu
lægri fjárhæð en ríkisstjórnin gaf á sínum tíma fyrir
miklu minni og óvandaðri báta frá Svíþjóð og innlend-
um smíðastöðvum.
XXXIV.
OlíusMpið „Þyrill“.
Ríkið á nú olíuskip, sem heitir ,,Þyrill“. Er það ná-
lega 1000 smálestir að stærð. Um ,,Þyril“ má segja, að
hann sé einskonar happagjöf af himnum send. Með-
an Bandaríkin höfðu flotastöð og olíubirgðir í Hval-
firði, var „Þyrill“ önnum kafinn við olíuflutninga milli
þafna hér á landi og frá birgðastöðinni í Hvalfirði
til Keflavíkur og flugvallarins þar. Þegar Bandaríkin
fluttu lið sitt burt, var ,,Þyrill“ eftir í Hvalfirði og
talinn fylgja setuliðseignum, sem ríkisstjómin keypti
og seldi einstökum mönnum. Sölunefndin vissi varla,
hvað gera skyldi við þetta skip, sem lá í vanhirðu með
mikið skemmda vél í Hvalfirði. Enginn Islendingur
vildi gera boð í skipið, en sölunefndn hafði von um
kaupanda í Noregi, ef íslenzka ríkið léti gera það hæft
til starfs og siglinga. Ríkisstjórnin bað þá Pálma Lofts-
son að athuga skipið. Hann gerði það og komst að
þeirri niðurstöðu, að með nokkurri viðgerð mætti gera
,,Þyril“ mjög nothæfan hér við land. Sýndi forstjór-
inn stjórninni fram á, að mestur búhnykkur væri fyr-
ir landið að gera við skipið og nota það til olíuflutn-
inga með ströndum landsins. Nú vom sendir kunnáttu-
menn til að skoða ,,Þyril“, en þeir höfðu allt aðra sögu
að segja stjórninni en Pálmi Loftsson. Ráðlögðu þeir
að losna við „Þyril“ til útlanda, ef þess væri nokkur
kostur. Forstjóri Skipaútgerðarinnar véfengdi þennan
úrskurð, og að hans ráðum vom enn sendir nýir skipa-
fræðingar til að dæma um „Þyril“. Þeir fylgdu ná-
kvæmlega í slóð fyrirrennara sinna, töldu skipið óhæft
til afnota fyrir Islendinga. Þegar hér var komið, bjarg-
aði Emil Jónsson málinu. Studdi hann Pálma Loftsson
til að gera við „Þyril“ til að hagnýta skipið í þágu
almennings. Voru nú fengnir í vél skipsins frá Ame-
ríku þeir hlutir, sem með þurfti. Kostaði endurnýjun
skipsins 300 þúsund krónur. Ekki stóð á viðfangsefn-