Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Side 4
4 3. maí 2019FRÉTTIR
Hjúskaparstaða og börn?
Ég er í sambandi og á fjögur börn.
Hver er fallegasti staður á landinu?
Árbærinn í Reykjavík, hverfi 110 og Langanes.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
varst krakki?
Ég ætlaði að verða atvinnumaður í fótbolta, og þá
helst að spila með jaðarliði sem myndi ekki vinna
mikið.
Notar þú rakspíra?
Alltaf.
Trúir þú á karma?
Já.
Versta ráð sem þú hefur fengið?
Það var „Stattu alltaf fast á þínu.“ Maður á alls ekki
að standa fast á sínu ef maður hefur rangt fyrir sér.
Áttu leyndan hæfileika?
Já, ég get haldið á svakalegum fjölda af rauðvíns-
glösum í höndinni. Ég lærði það þegar ég vann sem
þjónn í Norður-Wales.
Hvernig gekk þér í samræmdu
prófunum?
Ég rétt slapp og náði. Einkunnirnar mínar
fara ekki í sögubækurnar.
Hvort heldur þú með
Tomma eða Jenna?
Tommi. Jenni var óþokki og það
kemur sífellt betur í ljós með
meiri umræðu um þá tvo.
Hverjir eru mann-
kostir þínir?
Að ég sé jákvæður.
En lestir?
Að ég sé of jákvæður.
Fyrsti stjórnmálaflokk-
urinn sem þú kaust?
Það var Alþýðuflokkurinn.
Ertu matvandur?
Nei, ég borða allt nema smokkfisk.
Hvaða dýr lýsir skapgerð þinni best?
Kóalabjörn.
Með hvaða íþróttaliði heldur þú á
Íslandi?
Fylki.
Uppáhaldshljómsveit?
The Smiths og Joy Division.
Fyrsta atvinnan?
Það var við bílaþvott.
Eitthvað að lokum?
„Ef enginn er eins þá er enginn
venjulegur.“ Munið þetta
gott fólk.
Íslenskar íþróttabullur
Í
vikunni fór fram mikill hitaleik-
ur í úrslitum körfuboltans.
Galvaskir Breiðhyltingar
slökktu sigurvonir Vesturbæ-
inga með þriggja stiga körfu á
lokaandartökum leiksins, og bolt-
inn sveif í fallegum boga beint í
netið. Við tóku alsæluorg í öðr-
um enda salarins en gnístandi
dauðaþögn í hinum. Svona geta
nú íþróttirnar verið magnaðar. Að
fólk geti sýnt slík viðbrögð við því
að sveittur karl í stuttbuxum kasti
leðurtuðru í gegnum járnhring.
Það sem gerðist líka á leiknum
var að Martina, dóttir Borche
Ilievski, þjálfara Breiðhyltinga,
sýndi Kristófer Acox, leikmanni
KR, tvær löngutangir þegar hann
féll eftir harða rimmu. Stundum
er þetta að kallað að sýna örninn,
flippa einhverjum eða einfaldlega
að gefa fokk-jú merki.
Íslenskur dólgsháttur á
íþróttaleikjum er alltaf fyndinn,
sérstaklega þegar það gerist í
körfubolta eða handbolta. Bráð-
fyndinn. Aðeins tveir mánuðir eru
síðan slagsmál áttu sér stað í bik-
arúrslitaleik á milli Garðbæinga
og Breiðhyltinga. Sauðdrukkinn
æskulýðsfulltrúi og stuðnings-
maður Garðarbæjarliðsins átti
þar upptökin og var rekinn út.
Svarthöfði man einnig eftir því
þegar Mosfellingar voru barðir í
stöppu af Kópavogsbúum í bik-
arleik í handbolta fyrir meira en
fimmtán árum. Svarthöfði flissar
enn þá við þá minningu.
Í stóra samhenginu eru bullu-
læti á íþróttaleikjum ekkert
gaman mál. Allir muna eftir stór-
slysum í Hillsborough og Heysel.
Það er ekkert grín að lenda í
knattspyrnubullum frá Bretlandi
og sennilega mun verra að lenda
í þeim rússnesku eða tyrknesku.
Sumar bullur hafa verið hífð-
ar upp á stall. Gerðar hafa verið
kvikmyndir, og bullufélög, tengd
ákveðnum fótboltaliðum, orðið
fræg.
Í þessum samanburði verða
íslensk bullulæti alltaf kjánaleg.
Við erum svo lítil og svolítið hall-
ærisleg líka. Það getur enginn
orðið töffari eða alræmdur af því
að vera íslensk körfuboltabulla. Í
besta falli er hlegið að þessu fólki,
sem veðrast svo upp við að horfa
á leikinn að það missir alla stjórn
á sjálfu sér og ræðst á náungann.
Ísland er líka svo lítið land að það
getur aldrei myndast þessi mikla
gjá milli stuðningsmanna eins og
úti í heimi. Undantekningin frá
því er vitaskuld glímufélögin við
Mývatn, Eilífur og Mýetningur.
Svarthöfði getur vel skilið að þar
geti soðið upp úr á milli stuðn-
ingsmanna. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Meira en 8.000 óvirkir gervihnettir svífa
umhverfis jörðina.
Við bæinn Krossa á Árskógsströnd er
hóll sem heitir Strumphóll.
Rhinotillexomania er röskun sem
lýsir sér í að bora ótæpilega í nefið.
Rotta getur lifað lengur án vatns en
kameldýr.
Víkingar báru ekki hyrnda hjálma.
Hver er
hann
n Fyrrverandi þing-
maður og ráðherra
n Barfluga á Klörubar
n Er mágur Vigdísar
Hauksdóttur
n Drap drauma Húsvíkinga um að
fá krókódíla í bæinn
n Margoft tekinn fyrir af Jóhannesi
eftirhermu
SVAR: GUÐNI ÁGÚSTSSON
YFIRHEYRSLAN
Hjálmar Örn Jóhannsson er 45 ára samfélagsmiðla
stjarna. Hann sló í gegn með með leikþáttum sínum á
Snapchat þar sem hann bregður sér í hin ýmsu gervi, til
dæmis sem Hvítvínskonan, Kagginn og gervifemínistinn Karl
Magnason Önnuson Sigrúnarson. Árið 2018 lék hann stórt
hlutverk í kvikmyndinni Fullir vasar. DV tók Hjálmar Örn í
Yfirheyrslu.
Hjálmar Örn
Jóhannsson
42948
„Það getur
enginn orðið
töffari eða alræmd-
ur af því að vera ís-
lensk körfubolta-
bulla