Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Síða 6
6 3. maí 2019FRÉTTIR Í búar fjölbýlishúss í Klukkubergi í Hafnarfirði eru úrræðalausir gagnvart ófremdarástandi í einni af íbúðum hússins. Viðmælendur DV segast engan frið fá fyrir stöðugum gesta- gangi og ónæði sem einkennist af partístandi, háværri tónlist og látum sem rekja má til fíkniefnaneyslu. Lögreglan hefur ekki sinnt málinu þrátt fyrir ítrekaðar tilkynningar. Ástandið hefur varað í rúmlega tvo mánuði. Skíthrædd við fólkið DV ræddi við hjón sem búsett eru í húsinu en þau vilja ekki koma fram undir nafni af ótta við afleiðingarnar. Konan segist vera „skíthrædd“ við fólkið sem dvelur í íbúðinni og þar angi allt af kanna- bis. „Á neðri hæðinni býr stúlka sem er alla daga, hvort sem það er helgi eða virkur dagur, með alls konar lýð hjá sér,“ segir konan en eiginmaður hennar segir ástandið hafa byrjað fljótlega eftir að unga konan flutti inn. Ónæðið segir hann einkennast af stöðugum látum og öskrum. „Þetta er nánast allan sólarhringinn, partíið dettur kannski niður í smástund og svo byrjar þetta aftur.“ Maðurinn segir íbúa hússins margsinnis hafa rætt málið sín á milli og sendi húsfélagið bréf á leigusala ungu konunnar þar sem kvartað var undan ástandinu. „Leigusalinn hefur greinilega talað við hana af því að eftir það róaðist þetta í nokkra daga. En síðan byrjaði þetta bara aftur og hefur ekki hætt.“ Börn í hættu Maðurinn segist einu sinni hafa bankað upp á hjá konunni til að kvarta en hrökklast í burtu. „Þarna inni var alls konar pakk og mér var hreinlega hótað lífláti. Ég flýtti mér í burtu og fór og hringdi á lögregluna. Sem kom síðan ekki.“ Hjónin taka fram að í húsinu sé mikið um fjölskyldufólk. Þau segja ungu konuna oftar en einu sinni hafa sést keyrandi um svæðið undir áhrifum vímuefna og verið nálægt því að keyra á börn sem búsett eru í húsinu. Ástandið hefur nú varað í rúmlega tvo mánuði að sögn hjónanna. Þau segja lögregluna hafa vitað af ástandinu síðastliðnar fimm vikur án þess að aðhafast nok kuð. „Það er eins og það sé alveg sama hvað maður segir við þá, við fáum svör eins og „það er nóg að gera“, „við förum í þetta“ og „þetta er í farvegi.“ Hjónin gagnrýna harðlega aðgerðaleysi lög reglunnar í málinu. „Lögreglan gerir ekkert í málunum þó svo að allir í blokkinni hafi kvartað, bæði til lögreglunnar og húsráðanda. Það hafa allir beðið um nafnleynd enda mikið af sprautuliði sem er þarna hangandi fyrir utan með alls kyns læti og ógeð sem maður vill ekki beint á tröppurnar hjá sér. Þetta þarf að stoppa áður en einhver hreinlega drepst hérna fyrir utan.“ n NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR KVÍSLARTUNGA, 270 MOSFELLSBÆR 86.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Parhús á 2 hæðum 286 M2 7 NAUSTABRYGGJA, 110 REYKJAVÍK 79.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 184 M2 6 KÖGURSEL, 109 REYKJAVÍK 75.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Einbýli á 2 hæðum 199 M2 6 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT Ófremdarástand í Klukkubergi Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Stöðugt partístand, dópneysla og hávaði „Þetta þarf að stoppa áður en einhver hreinlega drepst „Lögreglan gerir ekkert í málunum þó svo að allir í blokkinni hafi kvartað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.