Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 10
10 3. maí 2019FRÉTTIR
B
jörn Hjálmarsson læknir
hefur flutt fyrirlestra fyrir
foreldrafélög um snjall
tækjavæðinguna og skjá
tíma barna. Dregur hann þar
fram mjög marga neikvæða þætti
sem fylgi notkuninni. Kennarar
eru ekki á eitt sáttir við þennan
málflutning og segja Björn beita
hræðsluáróðri, hann geri ekki
greinarmun á virkum og óvirkum
skjátíma. Snjalltækin séu veruleiki
barnanna og góð kennslutæki
sömuleiðis. DV ræddi við Má
Ingólf Másson kennara og Björn
Hjálmarsson.
Opnar nýjar víddir
Már Ingólfur Másson er grunn
skólakennari á Selfossi og hefur
mikla reynslu af kennslu með
skjátækjum. Fyrir nokkrum árum
hófst snjalltækjavæðing skólanna
en þeir beita mismunandi aðferð
um. Sumir skólar láta alla nem
endur í ákveðnum bekkjum hafa
skjátæki en í öðrum er heimilt að
koma með tæki að heiman.
Í samtali við DV segir Már að
reynslan af kennslu með skjá
tækjum sé mjög góð og opni nýjar
víddir í kennslunni. Hann segir:
„Skjátækin bjóða upp á hluti
sem hafa hingað til ekki verið
í boði. Mjög fjölbreytt verkefni
fyrir nemendur. Þessi umræða
um skjátíma og snjallsímabönn
er í öngstræti. Ef við berum þetta
saman við smíðakennslu þá væri
slíkt bann eins og að láta nem
endur nota gamlan handbor í stað
nútímaverkfæra. Skjátækin eru
það sem krakkarnir nota í dag
legu lífi og það sem þau kunna á.
Hér í skólanum kennum við þeim
að nota tækin á skynsaman hátt,
hvort sem þau eru sex eða sextán
ára.“
Einsleit sýn á tækjanotkun
Már segir að kennarar séu hugsi
yfir þeim málflutningi sem Björn
Hjálmarsson, barnalæknir á
BUGL, fari með, til dæmis í fyrir
lestrum og glærusýningum fyrir
foreldrafélög. Í slíkri glærusýn
ingu sem sýnd var í Smáraskóla
í Kópavogi er dregin upp dökk
mynd af skjátækjanotkun barna
og takmörkun skjátíma boðuð.
Í glærusýningunni eru útlistuð
tengsl skjánotkunar við seinkaða
máltöku, verri námsárangur,
hegðanavandamál, geðtruflanir,
offitu, svefntruflanir, stoðkerfa
vandamál, krabbamein og dauðs
föll í umferðinni, svo eitthvað sé
nefnt.
Hvað er það sem er ámælis
verðast í málflutningi Björns
Hjálmarssonar?
„Þetta er mjög einsleit sýn á
tækjanotkun og úrelt hugmynd
um skjátíma. Það er ekki hægt að
setja allt undir sama hatt. Í skólun
um erum við að vinna með virkan
skjátíma. Þá eru nemendur ekki að
meðtaka efni heldur að skapa sjálf
og vinna með tækjunum. Eins og
Björn talar þá eru börnin viljalaus
ir þrælar fyrir framan skjáinn frá
morgni til kvölds,“ segir Már.
Einnig segir hann að margt í
glærusýningunni eigi sér ekki stoð
í raunveruleikanum og heimildir
séu handvaldar.
„Björn vísar jú í heimildir. En
þegar þær eru skoðaðar eins og
til dæmis grein Victoriu Dunckley
sem mikið er vísað til, þá kemur
í ljós að þetta er aðeins skoðana
grein í Psychology Today. Þetta er
ekki ritrýnd heimild. Maður fær
það á tilfinninguna að þetta sé
hræðsluáróður og mjög ósann
gjarn.“
Þá segir Már að sumt sem Björn
dragi fram, til dæmis tengsl eftir
tektarleysis í umferðinni og skjá
tíma barna, sé loðið og illskiljan
legt.
„Hann stekkur líka á rafsegul
bylgjuvagninn.“ Það er að raf
segulbylgjur valdi krabbameini.
„Sem er ekki búið að rannsaka
eða sanna. Það verða að teljast
mjög hæpin vísindi og hann dreg
ur fram mjög dökka mynd af því
sem sé að breytast samfara skjá
notkun. Vaxandi svefnlyfjanotkun
barna og unglinga, offitufaraldur,
lækkandi greindarvísitala, vax
andi álagsverkir, vaxandi nýgengi
krabbameina í börnum á heims
vísu! Ég held að það sé enginn
kennari á Íslandi, sem er að nota
þessi tæki, sem tengir við neitt af
því sem hann er að segja. Það er
enginn að halda því fram að tækin
séu töfralausn sem að bjarga öllu
skólastarfi. En þetta er hluti af nú
tímanum og þessi orðræða er til
þess að vekja óhug hjá fólki.“
Auschwitz í Minecraft
Er eitthvað til sem heitir heilbrigð
ur skjátími?
„Það fer eftir því hvernig skjá
tími það er. Ég á fjögurra ára gamla
dóttur og myndi aldrei leyfa henni
að horfa á Youtubemyndbönd
samfleytt í fimm klukkutíma,
óvirkan skjátíma. Annað gildir
um virkan skjátíma. Hér í skólan
um eru 210 krakkar á unglingastigi
með tæki frá átta um morgun til
tvö á daginn. Þau eru að lesa smá
sögur, svara spurningum, taka upp
myndbönd.“
Már segir að í allri þessari um
ræðu gleymist oft að ræða við
kennarana sem eru að vinna með
tækin á hverjum degi.
„Kennarar eru að gera ótrúleg
ustu hluti með nemendum sínum
og hægt að fylgjast með á myllu
merkinu Snjallirnemendur. Á
Sauðárkróki lásu nemendur bók
ina Drengurinn í röndóttu nátt
fötunum og nokkrir strákar byggðu
í kjölfarið sögusviðið Auschwitz
í tölvuleiknum Minecraft. Sögur
eins og þessar komast ekki að út
af neikvæðu orðræðunni um skjá
tækin.“
Stöðug freisting
„Þetta er mjög öflug og góð tækni
en við þurfum að gæta þess að
við séum við stjórnvölinn en ekki
tæknin. Við megum ekki láta
tæknina taka af okkur ráðin,“ seg
ir Björn Hjálmarsson í samtali við
DV. Segir hann að margt sé enn
órannsakað varðandi hina öru
þróun snjalltækja og áhrif þeirra
á börn og unglinga. Nefnir hann
að Kópavogur hafi riðið á vaðið í
snjalltækjanotkun og þá reynslu
verði að skoða.
„Það vantar allar rannsóknir
til að sýna að spjaldtölvuvæðing
skólanna taki hefðbundnu náms
aðferðunum fram. Ég er að kalla
eftir því að þetta tilraunaverkefni
Kópavogskaupstaðar verði tekið
út, kostirnir og ókostirnir mældir,
því nú eru komnir upp árgangar
í framhaldsskóla sem hafa tekið
þátt í þessari kennslutilraun. Það
væri dýrmætt að heyra frá fram
haldsskólum hvernig nemendur í
spjaldtölvuvæddum skólum koma
undirbúnir til framhaldsskóla
náms borið saman við nemend
ur sem hafa notið hefðbundinna
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Kennarar hugsi vegna fyrirlestrar Björns um skjátækjanotkun
n Gera verður greinarmun á virkum og óvirkum skjátíma n Vill meta árangurinn af tilraunaverkefni Kópavogs
Már Ingólfur Másson Segir reynslu af
skjátækjum við kennslu góða.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is