Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Page 21
Sumarið
3. apríl 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Innanhússklifur
er frábært sport fyrir
krakka og unglinga
KLIFURHÚSIÐ:
Yngsti hópurinn er 5 til 6 ára krakkar sem æfa hér einu sinni í viku en svo verðum við
með hópa alveg upp í 17 ára í ung-
lingastarfinu,“ segir Benjamín Mokry,
framkvæmdastjóri Klifurhússins.
Innanhússklifur er frábær íþrótt fyrir
börn og unglinga, bæði skemmtileg og
styrkjandi.
Benjamín segir að börn séu mjög
fljót að tileinka sé þá tækni sem til þarf
í innanhússklifur þó að þau hafi minni
líkamsstyrk en fullorðnir. Á heimsvísu
eru margir flinkustu iðkendur innan-
hússklifurs á unglingsaldri.
Í sumar, frá annarri viku júlí og inn
í miðjan ágúst, verða í boði vikulöng
námskeið fyrir 6 til 12 ára krakka,
frá kl. 8.oo til 16.00. Haustönnin
hefst í september og stendur fram í
desember. Svo er aftur boðið upp á
námskeið fram í maí.
Enginn munur á getu stráka og
stelpna
Að sögn Benjamins reynir klifrið bæði
á styrk og liðleika. „Það er enginn
munur á getu stráka og stelpna. Þótt
strákarnir fari langt á kraftinum þá
eru stelpurnar oftast með betri tækni.
Hugtakið tækniklifur er þekkt enda
eru tækni og liðleiki mikilvægir þættir í
þessu sporti.“ Klifrið eflir allt í senn, þol,
liðleika og styrk, og hentar fólki á öllum
aldri. „Til dæmis getur maður aldrei
orðið of sterkur í fingrunum en klifrið
eflir mjög fingrastyrk. Það er nokkuð
sem fólk er almennt ekki að þjálfa með
sér. Fyrsta skiptið er í raun alltaf erf-
iðast þó svo að sé óneitanlega alltaf
skemmtilegt að prófa klifur. En þegar
maður byrjar að mæta reglulega í klif-
ur, kannski 2–3 skipti í viku, er maður
fljótur að sjá árangurinn og er ótrúlegt
hvað sumir hafa náð langt á stuttum
tíma,“ segir Benjamín.
Frábært fjölskyldusport
Klifur er fyrir fólk á öllum aldri og
fjölmargir fullorðnir æfa og skemmta
sér reglulega í Klifurhúsinu. „Klifur er
líka gott sport fyrir alla fjölskylduna
þar sem allir klifra á sínu getustigi. Ég
klifra til dæmis oft með sex ára syni
mínum þar sem hann fer leið sem
hentar honum og ég fer mína leið við
hliðina á honum,“ segir Benjamín.
Nánari upplýsingar er að finna á
vefnum klifurhusid.is og á Facebook-
-síðu Klifurhússins. Skráning á nám-
skeið fer fram í gegnum Nora-kerfið,
sjá nánar á klifurhusid.felog.is.