Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Page 25
Sumarið 3. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Nýjungar og nudd í Kærleikssetrinu:
Kærleikurinn ræður ríkjum að Þverholti 5 í Mosfellsbæ, en þar er Kærleikssetrið til húsa.
Starfsemina stofnaði Friðbjörg
Óskarsdóttir árið 2005 og býð
ur hún þar upp á fjöldann allan af
meðferðum, námskeiðum, hugleiðslu
stundum og hópvinnu til þess að heila
líkama og sál.
„Í setrinu er fjallað um allt sem
lýtur að þroska manneskjunnar,
jafnt andlegum, sálrænum og
líkamlegum þroska, því það er ekki til
sú manneskja sem er bara líkamleg,“
segir Friðbjörg, sem er stundum
kölluð amman í andlega geiranum.
Þá bætir hún við að það sé hennar
ástríða að koma því til skila sem hún
hefur öðlast.
„Mér finnst fólk vera endalaust að
kvarta yfir því að það sé orkulaust.
En það er ekki eitthvað sem ég finn
fyrir. Við búum yfir þeim eiginleika
að líkaminn getur búið til endorfín
og það er ekkert annað en verkja
lyf,“ segir Friðbjörg. „Mín trú er sú að
hver og ein manneskja búi yfir öllum
svörum sem nauðsynleg eru í lífinu.
Það eina sem ég get gert er að leið
beina öðrum. Ég kenni fólki að hlusta
á innsæið. Það er svo mikilvægt að
gera það. Ég lít aldrei á neitt sem
erfiðleika, bara áskoranir og verkefni.
Við búum yfir svo mörgu og kærleik
urinn fellur aldrei úr gildi.“
Vinsælir gufuklefar
Spurð um komandi nýjungar í
Kærleikssetrinu segir Friðbjörg að
nú séu komnir fastir nuddtímar
ásamt innrauðum gufuklefa. Læknis
fræðilegar rannsóknir hafa sýnt að
innrauð geislun er sérstaklega góð
fyrir bæði vefi og líffæri. Þessir klefar
eru mjög vinsælir því þeir gera mikið
fyrir bæði heilsu og líkamann. Boðið
verður upp á staka tíma og tíu tíma
kort. Einnig tíma í nuddi og sána.
„Þetta er alveg meiriháttar fyrir
líkamann,“ segir Friðbjörg. „Það er
heilmikið sem
þetta gerir og styrkir meðal annars
hjarta og æðakerfi auk þess að auka
blóðflæði.“
Innrauð orka, ólíkt öðrum orku
formum, notar ekki loftið til að flytja
hitann. Mikill kostur innrauða hitans
er að hann fer dýpra inn í húð og
líkama heldur en hiti frá hefðbundnu
gufubaði og það við tiltölulega lágt
hitastig sem reynir þar af
leiðandi minna á líkamann.
Nánari upplýsingar má
nálgast með Kærleiks
setrið er að Þverholti 5,
Mosfellsbæ.
Sími 567-5088 og
862-0884
netfang: kaerleikssetur@
kaerleikssetur.is
Heimasíða:
kaerleikssetrid.is og
Facebook: Kaerleikssetrid.
Mosfellsbae.
„Kærleikurinn fellur
aldrei úr gildi“
Hjörtur Magni og Friðbjörg
„Heilunarmessa“ í Fríkirkjunni.
Salurinn í Kærleikssetrinu.