Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 33
Sumarið 3. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
GSG:
Málun á bílastæðum,
malbiksviðgerðir, vélsópun
og rafhleðslustöðvar
Við höfum verið að í ríflega 30 ár og erum með afar stóran og góðan kúnnahóp
sem hefur verið hjá okkur í mörg ár,“
segir Þorvarður Kristjánsson, fram
kvæmdastjóri hjá GSG sem sinnir
meðal annars bílastæðamálun,
vélsópun, malbiksviðgerðum og lóða
þjónustu.
GSG er treyst fyrir mikilvægum
verkefnum fyrir Vegagerðina,
Reykjavíkurborg og ýmis stórfyrirtæki
en GSG þjónar ekki síður smærri að
ilum, til dæmis húsfélögum. GSG býr
yfir fullkomnum tækjakosti sem auk
þekkingar og reynslu starfsmanna
stuðlar til dæmis að góðu viðhaldi
á bílaplönum og lóðum í kringum
fjölbýlishús.
Engin samskeyti eftir malbiks
viðgerðir
Í malbiksviðgerðum býður GSG upp
á samskeytalausar viðgerðir á holum
og sprungum sem myndast í malbiki.
Til þessara verkefna er notast við
gashlemm sem gerir starfsmönnum
kleift að hita upp malbik í kringum
skemmdir. Með þessu mætir heitt
malbik heitu malbiki og þannig
næst að hindra að samskeyti verði
sjáanleg.
Vélsópun og þvottur bílastæða
GSG býður upp á vélsópun á
bílaplönum og gangstígum. Einnig er
boðið upp á að þvo plön með vatni en
það er oft nauðsynlegt, sérstaklega
þegar plön hafa verið sandborin yfir
veturinn. Nokkrar gerðir af sópum
eru til staðar og notast er við þá sem
henta best hverju verkefni.
Bílastæðamálun
GSG býður fyrirtækjum, bæjar
félögum, húsfélögum og öðrum upp á
málun bílastæða og aðrar yfirborðs
merkingar, t.d. örvar, gangbrautir,
blá stæði fyrir fatlaða, biðskyldu
þríhyrninga, gula kanta, gula krossa,
miðlínur gatna, hraðatakmarkanir
og fleira. Eingöngu er notast við
fullkomnasta tækjakost sem völ er
á hverju sinni og sérstaka gatna
málningu sem samþykkt er af Vega
gerðinni.
Rafhleðslustöðvar til að mæta
rafbílavæðingunni
Uppsetning rafhleðslustöðva er
nýjasti þátturinn í starfsemi GSG.
„Þetta er vinsæl þjónusta sem við
bjóðum mikið upp á þessa dagana.
Eftirspurnin fer sívaxandi enda
líður vart sá dagur að ekki bætist
við rafbílseigandi á landinu,“ segir
Þorvarður, en fyrirtækið setur meðal
annars upp rafhleðslustöðvar við
fjölbýlishús og fyrirtæki. GSG útvegar
hleðslustöð sem hentar hverju sinni,
grefur fyrir undirstöðum og lögnum,
gengur frá á eftir og málar græn
stæði þar sem við á.
Nánari upplýsingar um þjónustu GSG
er að finna á vefsíðunni gsg.is. Einnig
er gott að hafa samband í síma
5884800 eða í gegnum netfangið
thorvardur@gsg.is.