Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS 3. maí 2019
B
örn eru dásamlega eðlileg.
Þau dansa og syngja þegar
þeim líður þannig. Burt-
séð frá stað eða stund, þá
eru þau bara þau sjálf. Þegar við
vöxum úr grasi þá hættum við að
dansa og syngja í kringum ókunn-
uga. Við lærum að haga okkur á
ákveðinn hátt, í kringum ákveðið
fólk og ákveðnar aðstæður, eðli-
lega … eða hvað?“ segir Laufey
Haraldsdóttir markþjálfi og veltir
fyrir sér þeim mismunandi hlut-
verkum sem fullorðið fólk á til að
ganga inn í.
Mismunandi útgáfur af okkur
fara eftir stað og stund
„Við könnumst öll við það að haga
okkur á ólíkan hátt eftir því hvaða
fólk er í kringum okkur og þeim
aðstæðum sem við finnum okk-
ur í. Við högum okkur öðruvísi í
vinnunni heldur en heima, með
besta vini eða maka, í kringum
foreldra okkar eða börn. Ef bilið á
milli þessara persónuleika okkar
er mikið getur það verið hamlandi
fyrir okkar innri og ytri vöxt. Tök-
um dæmi. Segjum að þú hafir
lengi heillast af jóga og hugleiðslu.
Þú ert búinn að lesa þér til og
horfa á öll kennslumyndbönd sem
þú kemst yfir. Þú æfir þig heima
og finnur að þetta gerir þér gott.
Þú rekst á hugleiðsluhóp á Face-
book ákveður að skella þér. Þú ert
kominn í nýjan félagsskap sem
hefur góð áhrif á þig og þú leyfir
þessari hlið þinni að njóta sín með
þessum hóp. Þetta er orðin stærri
partur af þér og þér finnst frelsandi
að geta verið þú sjálf(ur) í kringum
nýju vinina þína. En í vinnunni ert
þú með allt aðra ímynd. Ef vinnu-
félagarnir sæju þessa hlið af þér
myndu þeir örugglega dæma þig.
Fjölskylda þín er líka með ákveðn-
ar skoðanir á því hver þú ert og þú
felur þessa hlið af þér fyrir henni
líka. Núna eru þrjár útgáfur að þér.
Hver útgáfan heldur hinni í skefj-
um.“
Höfum tvo valkosti
Laufey segir mikilvægt fyrir hvern
og einn að upplifa góðan stuðn-
ing í gegnum þau þroskaskeið
sem viðkomandi gengur í gegnum
á lífsleiðinni. Stundum sé þó
erfitt að finna stuðning í nærum-
hverfinu vegna þess hve viðhorf
annarra séu fastmótuð. Hún seg-
ir markþjálfa þá geta verið góðan
stuðning þar sem hlutverk þeirra
sé ekki að hafa skoðun á fólki eða
hvað það vilji gera heldur að draga
fram hæfni og möguleika sem búa
innra með hverjum og einum og
styðja viðkomandi í sínu ferli.
„Þegar þú fækkar útgáfun-
um af þér og leyfir þér að vera þú
sjálf(ur) þvert á aðstæður og fólk,
þá gætir þú fundið fyrir mótlæti.
Það er eðlilegt. Þú ert ekki bara að
breyta veruleikanum þínum. Þú
ert að hreyfa við veruleika allra í
kringum þig. Það verður til ójafn-
vægi milli þín og ytri aðstæðna.
Þegar á þennan stað er kom-
ið átt þú tvo valkosti. Viltu hörfa
til baka og þykjast vera sú mann-
eskja sem þú varst til þess að fólk
dæmi þig ekki og hneykslist á
breytingunum? Eða leyfa þér að
vera nýja og bætta útgáfan af þér
sem þú varst að kynnast og kannt
svo vel við?“
Auðveldara að hörfa
Laufey segir fólk upplifa fyrri val-
kostinn mun auðveldari og því sé
mjög algengt að fólk hörfi til baka
í sitt vanahorf þótt því fylgi gjarn-
an órói og jafnvel vanlíðan vegna
þess að fólk sé þá farið að lifa fyrir
aðra. Hún veltir því fyrir sér hvers
vegna fólk ætti að velja þann kost.
„Hvað vantaði upp á til þess
að þessi vöxtur fengi að eiga sér
stað? Fólkið í kringum þig og ytri
veruleiki þinn mun ekki fylgja í
fyrstu. Það tekur tíma að ná þér og
ná jafnvægi, en ég get sagt þér að
ef þú heldur þínu striki og stend-
ur með sjálfum þér þá gerist það á
endanum og það verður ekki bara
ánægjulegt fyrir þig. Það skapar
rými fyrir aðra í kringum þig til
þess að gera slíkt hið sama. Vakna
til vitundar, vera víðsýnni og nær
sjálfum sér. Þegar það gerist, þá
getur þú verið stuðningsmaður í
þeirra vegferð. Ekki leyfa hugan-
um að reyna að réttlæta að þú get-
ir þetta ekki, eða halda því fram að
fólk sé að dæma þig. Það er oftast
byggt á ranghugmyndum hvort
sem er. Það er einungis hugmynd
þín um fólkið í kringum þig. Ef þú
vilt ekki láta dæma þig, þá er ágæt-
is æfing að dæma ekki aðra. Hlust-
aðu frekar á hjartað, ástríðuna og
innsæið.“
Hver ert þú í raun?
Laufey segir mikilvægt fyrir fólk
að hafa hugrekki til þess að takast
á við áskoranir og þrautseigju til
þess að hörfa ekki til baka.
„Þú býrð yfir öllum þessum
kröftum, stundum þarft þú bara
að dusta rykið af þeim, hætta að
svíkja sjálfan þig og gera hluti gegn
þínum vilja.
Að gera hluti gegn vilja þínum
veldur ónotatilfinningu hjá þér
sem á endanum fer að naga sjálfs-
virðinguna sem hefur áhrif á styrk
þinn og sjálfstraust. Þú átt það ekki
skilið. Leyfðu þér að vera nákvæm-
lega sú eða sá sem þú ert, alltaf og
alls staðar. Hræðsla við viðbrögð
annarra og ótti við að verða ekki
samþykktur eða standast ekki þær
kröfur sem viðkomandi heldur að
séu gerðar til hans í hópnum er
það sem heldur aftur okkur. Þetta
er mjög óþægileg staða að vera í og
fólk kemur sér í hana alveg ómeð-
vitað og þetta er algengara en við
höldum. Hver er rétta útgáfan af
þér? Hver ert þú í raun?“
Laufey segir að þeir sem standi
fast á sínu uppskeri gleði og vellíð-
an þegar þeir fá loksins að vera
þeir sjálfir.
„Skyndilega fer fólk að sjá þig
blómstra í raunútgáfunni af þér.
Útgeislun þín breytist. Þetta getur
verið algjör rússíbani. Þú leggur
á stað í óvissuna, ferð í nokkra
hringi, hátt upp og lengst niður
en það er samt gott að vita og hafa
að leiðarljósi að það koma allir
heilir og helmingi glaðari til baka
eftir ferðina. Mundu að njóta,
þetta verður mjög skemmtilegt og
gefandi.“ n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
„Ef þú vilt ekki láta dæma þig, þá er
ágætis æfing að dæma ekki aðra“
Laufey segir fólk eiga auðveldara með að hörfa heldur en að standa með sjálfu sér
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
„Þú ert að hreyfa
við veruleika
allra í kringum þig
Laufey Haraldsdóttir Markþjálfi.