Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS 3. maí 2019
A
lexandra Kristjánsdóttir er
tuttugu og þriggja ára göm-
ul með háleit markmið og
stóra drauma. Þrátt fyrir
ungan aldur hefur Alexandra mikla
reynslu í farteskinu og eru náttúru-
og umhverfismálum henni afar
hugleikin. Eftir framhaldsskóla-
nám í Englandi fór Alexandra beint
út á vinnumarkaðinn og gegndi
hún meðal annars ábyrgðarstöðu
á fasteignasölu, seldi lausnir á
endurnýtanlegri orku og ferðaðist
um heiminn í heilt ár sem barn-
fóstra fyrir ameríska fjölskyldu.
Í dag er Alexandra nýkomin
heim frá Indlandi þar sem hún bjó
í afskekktu þorpi í þrjá mánuði. Þar
vann hún meðal annars að því að
skrifa bók um lífgas fyrir indverska
bændur en meðan hún dvaldi þar
komst hún að ýmsu um þorpsbúa
sem sló hana.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á Indlandi. Maður heyrir margar
sögur þaðan og ég vildi sjálf sjá og
upplifa landið með mínum eigin
augum, með opnu hugarfari. Ind-
land er næstfjölmennasta land í
heimi. Þar ríkir enn mikil fátækt og
fólk þar glímir við alls kyns vanda-
mál. Þar er unnið hörðum hönd-
um við að mennta komandi kyn-
slóðir og takast á við hluti eins og
mengun, rusl, þurrka og hreinlæti.
Mig langaði til þess að læra meira,
um menninguna, fólkið og landið
sjálft,“ segir Alexandra í viðtali við
DV.
Konur hætta að mæta í skóla
þegar þær byrja á blæðingum
Þorpið sem Alexandra bjó í á Ind-
landi er mjög afskekkt og lagði
hún sig fram við að kynnast þorps-
búum vel.
„Við bjuggum á mjög afskekktu
svæði. Eftir að hafa kynnst ind-
versku konunum nánar áttuðum
við okkur á því að blæðingar eru
virkilega tabú. Margar af konun-
um sem við töluðum við vissu ekki
ástæður tíðablæðinga. Enginn af
karlmönnunum sem við störfuð-
um með, vissu það heldur. Þeir
héldu því fram að konur yrðu
„veikburða“ einu sinni í mánuði
vegna synda sinna og þetta væri
bölvun frá guðunum. Ég kynnti
mér málið og komst að því að
meirihluti kvenna á Indlandi hef-
ur ekki aðgang að dömubindum.
Flestar konur nota gömul föt eða
efnisbúta og margar stelpur mæta
ekki í skólann, eða hreinlega hætta
þegar þær byrja á blæðingum. Mér
fannst alveg hrikalegt að komast
að þessu öllu saman. Þetta eru svo
mikil mannréttinda- og jafnréttis-
mál að mínu mati!“
Alexandra ákvað því að gera
það sem hún gæti til þess að að-
stoða konurnar í þorpinu og setti
af stað söfnun til að geta keypt
endurnýtanleg dömubindi.
„Fyrir afmælið mitt í ár lang-
aði mig til þess að gera eitthvað
sérstakt, sem tengdist þessu mál-
efni. Ég ákvað sem svona gjöf „frá
mér til mín“ að gefa stelpunum á
Indlandi sem við vorum að vinna
með, endurnýtanleg dömubindi.
Upp frá því þróaðist sú hugmynd
að biðja fjölskyldu og vini að gefa
mér pening fyrir endurnýtanleg-
um dömubindum í staðinn fyrir
afmælisgjafir í ár. Það tóku allir
svo vel í þetta að ég setti upp síðu
og áður en ég vissi af var fólk far-
ið að dreifa þessu um allt á Face-
book. Þegar upp var staðið höfð-
um við safnað fyrir meira en 1.200
endurnýtanlegum dömubindum,
sem nægði fyrir 210 konur. Hver
pakki inniheldur 6 dömubindi
og einn vatnsheldan poka. Ég var
svo snortin af gjafmildi og góðvild
allra að ég hreinlega táraðist af
gleði á afmælisdeginum mínum.“
Ógleymanleg upplifun að veita
konunum fræðslu
Þegar Alexandra dreifði dömu-
bindunum til kvennanna fræddi
hún þær einnig um blæðingar og
var vel tekið á móti henni hvar
sem hún kom.
„Það var svo yndislegt að gefa
stelpunum og konunum dömu-
bindin og veita þeim fræðslu um
blæðingar. Þær tóku allar svo vel í
þetta og voru svo þakklátar. Í síð-
asta hópnum stóð meira að segja
ein konan upp og byrjaði að dansa
af gleði. Hinar konurnar bættust
í hópinn og í lokin vorum við all-
ar syngjandi og dansandi saman.
Virkilega yndisleg stund og alveg
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Sérsmíðum eftir
óskum hvers og eins
Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is
„Margar stelpur mæta ekki í skólann, eða
hreinlega hætta þegar þær byrja á blæðingum“
Alexandra fræddi konur og karla um blæðingar og safnaði fyrir dömubindum
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
Endurnýjanleg
dömubindi
1.200 bindi fyrir
210 konur.
„Blæðingar eru
virkilega tabú