Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Síða 48
48 3. maí 2019
E
nglendingurinn William
Burkitt fæddist árið 1887
í Hull á Englandi. Móðir
hans hét Mary Ann og faðir
hans William. William, yngri vel
að merkja, var unglingur að aldri
þegar faðir hans lést og hafið heill-
aði unga manninn. Hann gerðist
sjómaður og ól manninn á hinum
ýmsu togurum í Hull þess tíma.
Ekkert gaf ástæðu til að ætla að
William sveigði af braut vinnu-
semi og heiðarleika.
Fyrri heimsstyrjöldin skall á
og William gekk í herinn. Honum
varð fljótlega ljóst að ljómi her-
mennskunnar reyndist byggð-
ur á ranghugmyndum og William
sveikst undan merkjum og gerðist
liðhlaupi. Hann var síðar ákærður
vegna þess, en það er önnur saga.
Heima í Hull á ný
Árið 1915 var William kominn á
heimaslóðir og búinn að munstra
sig á togara. Hann átti í sam-
bandi við 32 ára, fráskilda konu,
Mary Jane „Polly“ Tyler. Sagt er að
mýsnar leiki sér þegar kötturinn
er ekki heima og varla var búið að
leysa landfestar þegar Mary Jane
kastaði sér í fangið á manni að
nafni Harding.
Hvort William var Mary Jane
trúr skal ekki fullyrt, en vitað er
að þann 28. ágúst, 1915, rifust þau
heiftarlega á heimili sínu við West-
bourne-stræti. Rifrildið snerist um
ljósmynd sem sýndi William með
handlegginn um mitti annarrar
konu.
Rifist vegna ljósmyndar
Óhætt er að segja að rifrildið hafi
undið upp á sig því William greip
hníf og stakk Mary Jane til ólífis.
Segir sagan að þegar William yfir-
gaf heimilið hafi hann gengið
beint í flasið á tveimur börnum
Mary Jane, sem voru að koma úr
kvikmyndahúsi. „Hérna er húslyk-
illinn,“ sagði hann þegar hann rétti
þeim húslykilinn. William bætti
svo við: „Farið með fyrsta lög-
regluþjóninn sem þið sjáið heim
til ykkar, þar er móðir ykkar dáin.“
Nú, þann 23. nóvember, sama
ár, hófust réttarhöld yfir William
Burkitt. Hann var sakfelldur, fyrir
manndráp en ekki morð, og fékk
tólf ára dóm.
Önnur kona, annað dráp
Víkur nú sögunni fram til ársins
1924. Þann 23. nóvember var
William sleppt úr fangelsi og fljót-
lega flutti hann inn til 44 ára, giftr-
ar konu, Ellen Spencer. Ellen og
eiginmaður hennar voru reyndar
skilin að skiptum, svo því sé haldið
til haga.
Nánast sléttu ári síðar, 3. nóv-
ember 1925, ákvað dóttir Ellen
að heimsækja hana. Hún hringdi
dyrabjöllunni og barði allt að utan,
en allt kom fyrir ekki; enginn kom
til dyra.
Dóttirin fékk nágranna til að
brjóta upp dyrnar og þau fundu
Ellen dána. Hafði hún verið
stungin í hálsinn.
Mislukkuð sjálfsvígstilraun
Á efri hæðinni fannst William, sof-
andi eða meðvitundarlítill. Talið
var að hann hefði skrúfað frá gas-
inu í tilraun til að svipta sig lífi.
Þann 20. nóvember, 1925, stóð
William frammi fyrir dómara,
ákærður fyrir morð. William kom
með þá skýringu að Ellen hefði
vakið hann óvænt og honum hefði
brugðið svo að hann sló til henn-
ar. Af hverju William svaf, að því
er virðist, með hníf fylgdi ekki
sögunni.
Aftur var William sakfelldur
fyrir manndráp, en ekki morð, og
dæmdur til tíu ára fangelsisvistar
sem hann afplánaði í Dartmoor-
fangelsinu.
13 konur, á aldrinum 18 til 25 ára, lentu í klónum á suðurafríska raðmorðingjanum Thoza-
mile Taki árið 2007. Taki losaði sig við
lík 10 fórnarlamba sinna með því að
fleygja þeim á sykurreyrakra í grennd
við bæinn Umzinto, fyrir vikið fékk hann
viðurnefnið Sykurreyrsmorðinginn.
Taki losaði sig við lík þriggja kvenna á
teræktar svæði skammt frá Port St. John.
Um ránmorð ku hafa verið að ræða
SAKAMÁL
Hádegis tilboð
alla virka daga frá 11.30 - 14.00
Geirsgötu 8 • 553 1500
2.850 kr
Humarsúpa &
grillað fiskspjót
JÁRNMAÐURINN FRÁ DARTMOOR
n William Burkitt gerði það ekki endasleppt n Engin þriggja sambýliskvenna hans kembdi hærurnar n Var kallaður Konungur raðmorðingjaklúbbsins í fangelsi„Farið með
fyrsta lögreglu-
þjóninn sem þið sjáið
heim til ykkar, þar er
móðir ykkar dáin.
William Burkitt
Hafið heillaði
William, en
sjómennskan varð
endaslepp.