Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 9
17. maí 2019 FRÉTTIR 9
SKRÁNING OPNAR KL. 13:00 Á LAUGARDAG
31. ÁGÚST 2019
KIA
BRONS
48 KM
KIA
GULL
106 KM
KIA
SILFUR
65 KM
Kiagullhringurinn Kiagullhringurinn #kiagull www.kiagullhringurinn.is
KIA Í SAMVINNU VIÐ FONTANA KYNNIR:
SKEMMTILEGASTA HJÓLREIÐAKEPPNI ÁRSINS
KIA GULL
2019
ÞIÐ VERÐIÐ AÐ TAKA EFTIR OKKUR!
n Langveikum heyrnarlausum mismunað n Fastar í fátæktargildru á meðan aðrir njóta lífsins
Mér finnst þetta ekki réttlátt og
mér finnst að þetta sé málefni sem
ríkisstjórnin þurfi að vakna upp af
værum blundi vegna, og láta sig
varða.“
Staðan er sú að heyrnarlausir
fá það sama greitt, hvort sem þeir
glíma við kostnaðarsama lífs-
hættulega sjúkdóma eða ekki.
„Það verður að aðskilja þessa
hópa. Þeir sem eru heyrnarlausir
en heilbrigðir að öðru leyti geta
farið og unnið og svoleiðis, en þeir
sem ekki geta það, þá verður að
aðskilja.“
Vilja vitundarvakningu
„Ríkisstjórnin verður að laga þetta,
heilbrigðir, heyrnarlausir eiga
ekki að sitja við sama borð og við
hin sem erum líka með einhverja
auka fötlun. En svo getur náttúr-
lega komið upp að heyrnarlaus fái
einhvern hamlandi sjúkdóm. Þá
ætti hann að fara fram fyrir þrjá
lækna og láta meta það, læknarnir
myndu þá votta og staðfesta grein-
inguna og senda svo til Trygginga-
stofnunar. Þá gæti viðkomandi
fengið hærri bætur.“
Skilaboðin sem þær vilja koma
á framfæri eru eftirfarandi:
„Halló, þið í ríkisstjórninni!
Vaknið til lífsins, þið verðið að taka
eftir okkur! Við viljum að þessu ári
2019 þá verði þetta óréttlæti leið-
rétt. Að staða heyrnarlausra verði
ekki sú sama, annars vegar þeirra
sem eru heyrnarlausir en að öllu
öðru leyti heilbrigðir og hins vegar
þeirra sem glíma við einhvern
annan sjúkdóm. Við viljum vekja
fólk til vitundar og að það verði
meðvitað um þessa stöðu sem fólk
eins og við er í.“ n
„Ríkisstjórn! Þið
verðið að vakna.