Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 34
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
Strax í upphafi var sérstök áhersla lögð á fagleg vinnubrögð og þrifalega umgengni,“
segir Halldór Kristjánsson, verkstjóri
fyrirtækisins Bortækni. Þar geng
ur starfsemin út á að leysa fag
mannlega af hendi öll verkefni, stór
sem smá, á fljótlegan og skilvirkan
máta. „Þetta hefur dafnað vel hjá
okkur undanfarin ár og hefur allt
gengið hispurslaust fyrir sig. Auk þess
erum við komnir í betra húsnæði sem
hentar starfseminni betur.“
Halldór segir að Bortækni ann
ist margvísleg verkefni, eins og til
dæmis kjarnaborun og steypusögun
auk þess sem fyrirtækið sérhæfir sig
í niðurrifi. „Bortækni hefur á hátt í
fjögurra áratuga ferli ávallt lagt mikla
áherslu á að veita viðskiptavinum
sínum góða og persónulega þjón
ustu. Með nýjustu og bestu fáanleg
um tækjum er okkur kleift að bjóða
hraða þjónustu á sanngjörnu verði,“
segir hann.
„Bortækni hefur verið leiðandi í
íslenskum verktakaiðnaði í gegnum
tíðina og ekkert verk er of stórt eða
of smátt fyrir okkur. Í dag erum við
með með 10–12 starfsmenn sem
eru allir búnir að vera lengi i faginu.
Okkur er mjög umhugað um vinnu
öryggi og heilsu okkar starfsmanna.
Bortækni vinnur mikið í heimahús
um við að saga glugga, hurðarop
og stiga. Fyrirtækið tekur einnig að
sér að saga fyrir hita í gólf og sér
um að rífa allt, eins og innréttingar,
veggi og gólfefni. Við komum á
staðinn og gerum verðtilboð þér að
kostnaðarlausu,“ segir Halldór.
Bortækni ehf., Miðhrauni 14, 210
Garðabær
Símar: 567-7570, 693-7700
Netfang: bortaekni@bortaekni.is
www.bortaekni.is
Leiðandi á íslenskum
verktakamarkaði