Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 20
20 PRESSAN 17. maí 2019 F rakkar og Þjóðverjar eru nágranna- og vinaþjóðir og samskipti ríkjanna eru með miklum ágætum. Í landamærahéruðum ríkjanna ferðast fólk mikið yfir til nágranna sinna til að sækja sér eitt og ann- að sem kannski ekki er í boði í heimalandinu eða er hagstæðara að kaupa hjá nágrönnunum, nú eða bara til að njóta þess sem ná- grannarnir hafa upp á að bjóða í menningu af ýmsu tagi. Það er því ekki óalgengt að rekast á Þjóðverja á frönskum veitingastöðum nærri landamærum ríkjanna eða Frakka í þýsku landamærahéruðunum að sýsla eitt og annað. Almenn sam- skipti fólks eru góð og vinsamleg en á hinu pólitíska sviði eru rík- in ekki samstíga og hafa ólíka sýn á framtíð og stefnu Evrópusam- bandsins. Nú er útganga Breta úr ESB yfir- vofandi og þegar og ef þeir yfirgefa sambandið verða Þýskaland og Frakkland stærstu og áhrifamestu ríkin innan sambandsins. Margir hafa áhyggjur af því að útganga Breta muni hafa neikvæð áhrif á samskipti Frakka og Þjóðverja og samskiptavél þeirra fari að hiksta og hefur verið bent á að þegar rík- in tvö vinna ekki saman þá fari hlutirnir úrskeiðis í Evrópu. Sjóðandi heitt mál Margir sérfræðingar eru sam- mála um að í aðdraganda Brexit og þeirra vandræða sem hafa fylgt fyrirhugaðri útgöngu hafi evrópsk- ir leiðtogar dansað í kringum sjóð- andi heitt málið og verið mjög hik- andi. Þeir hafi forðast að segja eða gera nokkuð það sem getur ruggað bátnum. Þetta hefur orðið til þess að lítið er að gerast innan ESB og virðast flestir forðast alla ákvarð- anatöku. Emmanuel Macron Frakk- landsforseti reynir að fá Þjóð- verja í lið með sér við endurbætur á einu og öðru er varðar ESB, þar á meðal í varnarmálum og varð- andi evruna. Þjóðverjar hafa þó ekki viljað gera neitt að sinni og virðast bíða. Macron hefur reynt að koma hreyfingu á málin með því að leggja til víðtækar grund- vallarbreytingar á ESB. Með þeim á að þjappa ESB-ríkjunum, sem eftir verða eftir útgöngu Breta, betur saman til að sýna og sanna að evrópskt samstarf sé enn við hestaheilsu og bjartsýni sé ríkj- andi. Markmið Macron er að mynda andsvar við þeim flokkum sem efast um tilverurétt og gagn- semi ESB en þeir eiga miklu fylgi að fagna víða í álfunni. Macron leggur til að ESB-ríkin stofni sam- eiginlegan her til að ESB verði ekki eins háð Bandaríkjunum í varnar- málum. Auk þess berst hann fyrir því að evruríkin geri sameiginlega fjármálaáætlun, sameiginlegar reglur um atvinnuleysisbætur og að ESB krefji tæknirisa á borð við Facebook og Google um skatt. Miklar efasemdir Þessar tillögur Macron hafa ekki hlotið mikinn hljómgrunn og hef- ur raunar verið mætt með miklum efasemdum og hafa aðallega valdið pirringi. Ekki síst í Berlín þar sem Annegret Kramp-Karren- bauer, nýr formaður Kristilegra demókrata (flokks Angelu Merkel kanslara), gerði nánast út af við hugmyndir Macron þegar hún sagði að tillögur hans væru „röng leið“. Til að leggja áherslu á mál sitt, og kannski til að sýna að ekki sé hægt að líta á hana sem einhvern sérstakan vin Frakka í Evrópu, þá setti hún fram tillögu um að loka þeirri deild Evrópuþingsins sem er í Strassborg í Frakklandi. Með þessu sendi hún sterk skila- boð því um leið og einhver set- ur spurningarmerki við staðsetn- ingu Evrópuþingsins í Strassborg er ljóst að viðkomandi er enginn sérstakur vinur stjórnvalda í París. Starfsemi Evrópuþingsins í Strass- borg er eitthvað sem Frakkar hafa ekki verið fúsir til að ræða eða breyta en á undanförnum árum hefur verið mikill þrýstingur um að hætta að flytja þinghaldið þang- að frá Brussel í eina viku í hverjum mánuði með tilheyrandi kostnaði og óþægindum fyrir marga. Hefur þetta fyrirkomulag oft verið nefnt ferðasirkusinn. Ekki er hægt að breyta þessu fyrirkomulagi nema öll aðildarríki ESB samþykki og því geta Frakkar komið í veg fyrir allar breytingar á þessu. Hvað varðar tengslin við Breta eru þessi tvö áhrifamestu ESB-ríki ósammála. Angela Merkel hefur rekið mjúka og þolinmóða stefnu í garð Breta en Macron hefur ver- ið harðari í horn að taka og setti fram harða kröfu um frest Breta til útgöngu úr sambandinu. Sjónar- mið Frakka var að Bretar eigi ekki að fá neina sérmeðferð og að ESB eigi að sýna festu. Leiðtogar ESB- -ríkjanna eigi því ekki að venja sig á að halda leiðtogafundi til að undirbúa næsta leiðtogafund þar sem engin ákvörðun verður tek- in frekar en á undirbúningsfund- inum. Þá er Macron ósáttur við að Bretar taki þátt í kosningum til Evrópuþingsins síðar í maí. Þjóðverjar vilja allra helst að ESB tryggi opið markaðshagkerfi og aðgang að innri markaði sam- bandsins. Þegar, og ef, af Brexit verður mun koma enn betur í ljós hversu andstæð sjónarmið Þjóð- verja og Frakka eru í þessum efn- um. Frakkar hafa lengi verið frekar á þeirri línu að láta ríkið hafa meiri áhrif á flestum sviðum þjóðfé- lagsins og vilja viðhafa ákveðna verndarstefnu en Bretar og Þjóð- verjar hafa viljað opið og frjálst markaðshagkerfi. Bretar og Frakk- ar hafa sinnt utanríkismálum af krafti en Þjóðverjar hafa ekki verið eins áhugasamir um þann mála- flokk. Frakkar og Þjóðverjar voru Evrópusinnaðir en Bretar frekar efasemdafullir. Allt hefur þetta skapað einhvers konar jafnvægi innan ESB, jafnvægi sem raskast og hrynur jafnvel til grunna ef og þegar Bretar yfirgefa sambandið. Það er ekki til að bæta ástandið að önnur aðildarríki ESB eru jafn ósammála og Þjóðverjar og Frakk- ar hvað varðar framtíðina. Hvað gerist eftir Brexit? Þegar rykið sest eftir útgöngu Breta mun myndast ákveðin þörf til að aðlaga sambandið að nýrri stöðu, jafnt innan sambands- ins og gagnvart heimsmyndinni í heild. Bandaríkin eru ekki leng- ur öruggur bandamaður, Rússar eru hugsanleg ógn, Kínverjar eru reiðubúnir til að gleypa evrópsk fyrirtæki með húð og hári og straumur flóttamanna frá Afríku til Evrópu gæti aukist mikið. Það er því ljóst að einhver ríki verða að vera í fararbroddi þrátt fyrir að ekki vilji allir vera með. Óháð nú- verandi efasemdum munu margar af hugmyndum Macron því aftur koma til umræðu og niðurstað- an gæti orðið að ESB haldi áfram för sinni á ólíkum hraða í hin- um ýmsu málaflokkum. Ef finna á lausn á loftslagsmálunum og nei- kvæðum hliðum hnattvæðingar- innar er ekki hægt að búa við kyrr- stöðu og sambandið neyðist til að taka af skarið. Utanríkisstefnan verður eflaust þung í skauti enda eru Frakkar og Þjóðverjar yfirleitt ekki samstíga í henni en verða að vera í farar- broddi ESB enda valdamestu rík- in innan sambandsins. Þá má ekki gleyma evrunni sem mörg að- ildarríki ESB nota nú sem gjald- miðil. Spurning er hvort Þjóðverj- ar muni taka stóra skrefið í átt að sameiginlegum fjárlögum, sam- eiginlegum skattareglum innan ESB og öðrum hlutum sem þarf að samhæfa. n BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is Djúp gjá á milli Þýskalands og Frakklands hvað varðar framtíðarstefnu ESB Munu Þjóðverjar taka stóra stökkið? Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Macron Frakk- landsforseti Vill endurbætur í varnar- og gjald- eyrismálum. Angela Merkel Hefur sýnt Bretum þolinmæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.