Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 2
2 17. maí 2019FRÉTTIR
hlutir til þess að gera í stað þess að horfa á Eurovision
Á morgun, laugardag, sest meiri
hluti þjóðarinnar niður fyrir framan
sjónvarpið, hámar í sig snakk og
líklega margir sem fá sér aðeins í
tána. Í ár hafa skapast miklar deilur
um Eurovision og margir hverjir eru
reiðir vegna þeirrar ákvörðunar að
halda keppnina í Tel Aviv í Ísrael.
Íslendingar eru þar ekki undan-
skildir og voru ansi háværar raddir
um að við ættum að sleppa því að
taka þátt í ár og mótmæla þannig
þeim aðgerðum sem stjórnvöld
Ísrael hafa tekið og aðför þeirra að
Palestínu. Það verða því líklega
einhverjir sem ekki ætla sér
að fylgjast með keppninni í ár,
þrátt fyrir að Íslandi sé spáð
góðu gengi. DV fann því fimm
hluti sem hægt er að gera
í staðinn fyrir að horfa á
Eurovision.
Fara út að
skokka:
Ef þú hafðir hugsað
þér að nýta tímann í
líkamsrækt er líklega
best fyrir þig að fara út
að skokka. Ef þú ferð í
ræktina verður líklega
kveikt á Eurovision
í öllum sjónvörpum
þar og þú kemst ekki
hjá því að sjá hvað
fer fram. Eurovision
er nokkuð langt sjón-
varpsefni svo þú ættir
að komast í ágætis-
form.
Læsa þig inni á
klósetti og hlusta
á hljóðbók:
Ef það er sjónvarp á
heimili þínu er líklegt
að einhver heimil-
ismaður muni vilja
horfa á keppnina. Þá
getur þú læst þig inni
á klósetti og hlustað á
hljóðbók. Með því úti-
lokar þú bæði hljóð og
myndefni. Passaðu
þig bara að sitja
ekki of lengi
á klósettinu
ef þér verður
mál, þá færðu
gyllinæð.
Kaupa í matinn:
Það verða líklega ansi
fáir í búðinni. Það er þó
tvennt sem þú þarft
að hafa í huga. Ekki
gleyma heyrnartólum
þar sem líklegt er að
keppnin verði spiluð
í beinni í útvarpinu í
búðinni. Mundu svo að
vera almennileg/ur við
starfsfólkið því það
neyðist til þess að
afgreiða þig á meðan
það reynir að fylgj-
ast með keppninni í
símanum sínum.
Hámhorfa á
Game of Thrones:
Ef þú býrð ein/nn
og getur því ráðið
sjónvarpsefninu þá er
þetta tilvalinn tími til
þess að rifja upp allar
seríurnar af Game of
Thrones. Hafir þú ekki
séð þær nú þegar, er
kominn tími til, enda
lokaþátturinn sýndur í
næstu viku og honum
má enginn missa af.
Halda húsfund:
Sértu formaður hús-
félags og almennt illa
innrætt manneskja,
þá er þetta einmitt
tíminn til þess að boða
alla íbúa á húsfund.
Þar getið þið farið yfir
sorphirðu, endur-
vinnslu og fyrirhug-
aðar framkvæmdir.
Þá getið þið rætt
bílastæðavandamál
og rýnt ítarlega í árs-
reikninginn. Þú skalt
þó ekki gera ráð fyrir
því að verða kosinn í
stjórn félagsins aftur á
næsta ári.
Á þessum degi,
17. maí
1536 – Hjónaband Hinriks VIII. Eng-
landskonungs og Önnu Boleyn er ógilt.
1863 – Rosalía de Castro gefur út
Cantares Gallegos, fyrstu bókina sem
skrifuð var á galisísku.
1933 – Vidkun Quisling og Johan
Bernhard Hjort Nasjonal Samling,
Þjóðarhreyfinguna, flokk að fyrirmynd
þýska Nasistaflokksins.
1974 – Þrír óbreyttir borgarar eru myrt-
ir og um 300 særast þegar UVF, hreyfing
róttækra sambandssinna á Írlandi,
sprengir fjórar bílsprengjur í Dublin og
Monaghan í Írska lýðveldinu.
Síðustu orðin
„Hví grátið þið. Hélduð þið
að ég væri ódauðlegur?“
– Louis XIV. Frakklandskonungur
(1638–1715)
Stebbi Hilmars kannar
listamannalaun
H
áskólastúdentar sem stefna á útskrift í sumar keppast við það
í maí að skila inn lokaritgerðum, og er ávallt við hæfi að fagna
þegar þeim stóra áfanga er náð.
Tónlistarmaðurinn Stefán Hilmarsson, sem lengst hefur
verið kenndur við hljómsveitina Sálina hans Jóns míns, hefur skilað
inn BA-ritgerð sinni í stjórnmálafræði. Ritgerðin ber heitið „Listin að
styrkja: Hugleiðingar um listamannalaun.“
Í viðtali við Vísi í ágúst í fyrra sagði Stefán: „Mig langaði bara að
gaumgæfa þennan málaflokk með hliðsjón af pólitískum sjónarmið-
um sem og í sögulegu ljósi, verandi listamaður og áhugamaður um
pólitík og sögu.“ Í ritgerðinni eru birtar niðurstöður skoðanakönnun-
ar sem Stefán stóð fyrir og endurspegla þessar hugleiðingar hans og
afhjúpa hug almennings til listamannalauna.
Höpp og glöpp
Óla í bók
L
eiðsögumaðurinn Ólafur B.
Schram hyggst gefa út sína
fyrstu bók, þar sem hann
mun segja frá höppum og
glöppum á ferðalögum sínum
um landið, af reiðmennsku og
æskuminningum.
„Undanfarin ár hef ég birt
smásögur á Facebook-síðu
minni og ekki hlotið tjón af,“ seg-
ir Ólafur, en um 70 sögur verður
að finna í bókinni.
Fjallafari – Highlander, fyrir-
tæki Ólafs, fagnar 25 ára afmæli
í ár, en Ólafur hefur varið um
5.000 dögum síðastliðin 25 ár eða
nær 14 árum samanlagt á ferðum
um byggðir og óbyggðir Íslands.
„Á þessum tíma hef ég gist í tjöld-
um, á hótelum, í bændagistingu
og í allt að 117 fjallaskálum,
ekið Sprengisand ótal sinnum
á hverju ári, Gæsavatnaleið að
jafnaði tvisvar á hverju sumri og
farið alla merkta vegarslóða á
korti og komið á þorra allra gisti-
staða landsins, nær oftast með
erlenda ferðamenn með mér,“
segir Ólafur. „Ég hef komið víða
við, bæði gangandi, hjólandi,
ríðandi og akandi.“
Ólafur safnar fyrir útgáfu bók-
arinnar á Karolina Fund: Höpp
og glöpp Óla. Hægt er að styrkja
útgáfuna og fá í staðinn allt frá
eintaki af bókinni upp í tveggja
daga ferðalag um hálendið með
höfundi, auk eintaks af bókinni
og boði í útgáfuhóf.
„Sögurnar mínar með höpp-
um og glöppum hafa verið lesnar
af fjölda fólks. Hver þeirra er ör-
saga, tvær til þrjár blaðsíður. En
þær virðast vera vinsælar,“ seg-
ir Ólafur. „Og eftir fimm ára skrif
örlar enn á ábendingum um að
safna þessu saman og binda inn.
Næsta skref er því að láta reyna
á þessar hvatningar og nýta sér
vinskapinn við ykkur. Ég hef
rætt við útgefanda. Hann vissi
ekki hvaðan á hann stóð veðrið
þegar ég birtist á skrifstofunni
hjá honum, hefur þekkt mig fyrir
aðra hluti en innivinnu og skrift-
ir. Hann las tvær til þrjár grein-
ar, sannfærðist og gerði mér til-
boð. Þar er ég staddur í dag. Nú
er komið að ykkur að styðja mig
í raun.“
E
ydís Blöndal, varaþingkona
VG, útskrifast úr heimspeki
við Háskóla Íslands í sum-
ar, en hún skilaði BA-rit-
gerði sinni í heimspeki þann 10.
maí. Ritgerðin ber heitið „Hin
hliðin á peningnum: Kynbund-
inn launamunur í ljósi kenninga
Nietzsches og sjónarhóls kenninga
femínískrar þekkingarfræði.“
Eydís er fædd 1994 og er dótt-
ir Péturs H. Blöndals heitins, sem
sat lengi á þingi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Eydís fagnar skilunum
á Twitter með orðunum „Loksins
fáanleg, öll 19 þúsund tweetin
mín innbundin í bók.“
Varaþingmaður útskrifast