Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 40
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
KH VINNUFÖT - VÖRUBÆKLINGUR
VINNUFÖT EHF:
Gríðarmikið úrval og
þjónusta á háu stigi
Vinnuföt ehf. er leiðandi fyrirtæki í sölu og þjónustu á vinnufatnaði til fyrirtækja.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á
gæði og veitir viðskiptavinum sínum
alhliða þjónustu á þessu sviði, enda
vöruúrvalið gríðarlegt. Fyrirtækið
sérhæfir sig í sölu og þjónustu á öllum
tegundum af vinnufatnaði, hlífðar-
fatnaði, öryggisfatnaði, öryggisskóm,
öryggisvörum og vinnuvettlingum.
Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir mörg
þekkt vörumerki í Evrópu.
„Við þjónustum stærri og minni
fyrirtæki í öllu sem viðkemur fatnaði
og öryggisvörum fyrir starfsmenn
þeirra, þar með talin ráðgjöf í hvaða
fatnaður hentar best hverju sinni,
merkingar á fatnaði og fleira slíkt og
leggjum mikla áherslu á að þjón-
ustan sé á háu stigi,“ segir Sigurður
Guðjónsson hjá Vinnufötum og tekur
fram að það sé alltaf nóg að gera og
reksturinn gangi vel.
Opnunartími verslunarinnar er 8 til
17 mánudaga til fimmtudaga og 8
til 16 á föstudögum.
Verslunin er staðsett á Nethyl 2a,
110 Reykjavík.