Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 18
18 FÓKUS 17. maí 2019
G
reta Salóme Stefáns
dóttir fór í fyrsta sinn út
í Eurovision fyrir Íslands
hönd með lagið Never
Forget árið 2012. Greta samdi
lag og texta og flutti lagið með
söngvaranum Jóni Jósep Snæ
björnssyni á stóra sviðinu í Bakú
í Aserbaídsjan.
„Never Forget var samið árið
2011 í Skálholti og er byggt á
gamalli sögu, sem gerðist í Skál
holti, um Ragnheiði biskups
dóttur. Þaðan kom hugmyndin
að laginu. Síðan var ég að vinna
með þessi íslensku þjóðlaga
element og svo fór þetta út í
hina hádramatísku ballöðu fyrir
konu og karl sem þetta lag end
aði á því að vera,“ segir Greta, en
þátttakan í Eurovision opnaði
margar dyr fyrir hana.
„Þetta lag náttúrlega breytti
lífi mínu og ég verð þessu lagi
ávallt þakklát. Það að fara í
Eurovision 2012 gaf mér svo
ótrúlega margt. Ég fékk plötu
samning frá Senu og í kjölfarið
fékk ég samning hjá Disney sem
breytti lífi mínu á enn frekari
hátt, þannig að ég á Eurovision
ótrúlega margt að þakka. Bæði
þann fylgjendahóp sem ég á í
dag og þennan Disneysamn
ing sem ég fékk, sem gaf mér
annan samning hjá annarri um
boðsskrifstofu sem ég hef ver
ið hjá í tvö ár og er búin að vera
að túra út um allan heim,“ seg
ir hún og bætir við: „Maður get
ur nýtt Eurovision sem stökkpall
ef maður á góðan flutning og er
pínulítið klókur.“
Greta hefur góð ráð fyrir
Hatara.
„Mitt ráð til Hatara er að
halda áfram að stimpla inn
þennan boðskap sem þeir eru
búnir að vera að stimpla inn, því
það er hægt að gera svo margt
stærra en bara í keppninni þess
ar þrjár mínútur, og það er það
sem þeir eru búnir að gera. Svo
bara njóta og vera í augnablik
inu og hugsa um þetta sem tón
leika frekar en nokkuð annað,
því svo lýkur Eurovision og þá
fyrst byrjar vinnan.“
ALLIR ÚT AÐ HJÓLA
MEÐ TUDOR
Eitt mesta úrval landsins
af rafgeymum í allar
gerðir faratækja
MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST
OG FAGLEG ÞJÓNUSTA
Bíldshöfða 12•577 1515•skorri.is
Við mælum
rafgeyma
og skiptum um
Hr
að
þjónusta
S
öngkonan Anna Mjöll
Ólafsdóttir samdi lagið
Sjúbídú með föður sínum,
Ólafi Gauki heitnum, fyrir
Eurovisionkeppnina í Ósló árið
1996. Anna Mjöll söng sig í þrett
ánda sæti.
„Sjónvarpið hafði samband
við mig og spurði hvort ég væri
til í að semja lag fyrir Eurovision.
Mér fannst þetta mikill heiður
og sagði strax já, hringdi síðan
í pabba og sagði: HJÁLP,“ segir
Anna Mjöll og hlær. Hún var þó
ekki eini einstaklingurinn sem
RÚV hafði samband við það árið
og voru keppinautarnir allt ann
að en vinsamlegir við feðginin.
„Ég held að þeir hafi beðið þrjá
einstaklinga að semja lög þetta
árið. Einn keppinautur okkar
mætti í stúdíóið á meðan við vor
um að taka upp í Reykjavík og
sýndi allar sínar verstu hliðar, en
það breytti engu fyrir okkur,“ seg
ir Anna Mjöll.
„Hugmyndin fæddist út frá
öllum fyrirmyndunum mínum;
Ellu Fitzgerald, Frank Sinatra,
Elvis – sem öll sungu Sjúbídú.
Pabbi samdi síðan þennan gler
fína texta við lagið,“ segir hún og
bætir við að stórstjarnan Svavar
Gestsson hafi veitt þeim mikla
hvatningu í þessu Eurovision
ævintýri.
„Svavar Gests skrifaði pabba
fallegt bréf um þessa textasmíð.
Bréfið var alla tíð eftir það uppi
á vegg í gítarskólanum hans
pabba.“
Anna Mjöll hugsar hlýtt til
þessarar Eurovisionreynslu, en
móðir hennar, Svanhildur Jak
obsdóttir, tók einnig virkan þátt í
þessu batteríi.
„Eurovisionreynslan hafði
mikla og góða þýðingu fyrir okk
ur öll. Pabbi útsetti stórkostlega
fyrir stórhljómsveitina í Nor
egi. Tónlistarmennirnir þökk
uðu honum fyrir bestu útsetn
inguna það árið. Mamma sá um
blaðamenn og alla pressuna svo
hún var á endalausum hlaup
um út um allt að redda öllu. Það
sást eiginlega ekkert í hana þessa
viku sem við vorum í Noregi.
Þetta var mikill heiður enda mjög
skemmtileg lífsreynsla.“
Anna Mjöll
hugsar hlýtt
til Eurovision.
Greta hefur í nægu að
snúast í tónlistinni.
Greta og Jónsi á sviðinu.
Keppinauturinn
beitti bellibrögðum
Samdi lagið
í Skálholti