Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 14
14 FÓKUS - VIÐTAL 17. maí 2019 Sá listi af poppstjörnum sem Arnþór hefur samið fyrir og tekið upp er hreint lygilegur á að líta. Þarna má meðal annarra finna Jennifer Lopez, Jessicu Simpson, Carlos Santana, Janet Jackson, Celine Dion, Westlife, Jay-Z, Sting, Samönthu Mumba, Ronan Keating, Enrique Iglesias, Ricky Martin og Boyzone að ógleymdri poppdrottningunni Britney Spe- ars. Hverjum var skemmtilegast að starfa með? „Ég verð að segja Janet Jackson. Við vorum þrjár vikur í Los Angel- es og mánuð í New York. Hún er fagmaður af öðru kalíberi en ég hef séð áður, bæði sem listamað- ur og í samskiptum við okkur. Ég hlustaði mikið á hennar tónlist þegar ég var unglingur og henn- ar lagahöfundar, Terry Lewis og Jimmy Jam, voru mínar hetjur. Það var draumur að fá að standa í þessum sporum.“ Hefur verið erfitt að starfa með einhverjum? „Já, já, við erum að vinna með mjög skapandi og tilfinningaríku fólki. Margir af listamönnunum eru ekki alltaf hamingjusamir og ýmislegt að gerast í einkalífinu. Ég hef samt verið nokkuð hepp- inn með samstarfsfólk. Stúdíóið er líka nokkurs konar athvarf fyr- ir listamennina og þeim líður vel þar. Það er enginn sem kemur til að trufla eða angra þá. Oftast nær er þægilegt andrúmsloft í stúdíói.“ Ert þú alltaf ánægður með út- komuna? „Nei,“ segir Arnþór eftir smá umhugsun. „Í þessum bransa verður maður að læra listina að gera málamiðlanir. Þeir sem eru einstrengingslegir endast ekki lengi. Það eru margir sem koma að útgáfunni og sumir með ára- tuga reynslu af því hvað virkar í útvarpi og hvað ekki. Stundum hef ég ekki verið alveg sáttur við lokaútkomuna en þeim skiptum hefur farið fækkandi síðustu tíu árin. Það er ekki jafn mikil pólitík í þessu lengur. Fólk treystir því sem við erum að gera.“ Flýgur stjörnunum Arnþór hefur lengi verið með flug- dellu. Sjálfsagt á móðir hans ein- hvern þátt í því. Þegar hann var níu ára gamall fékk hann sinn fyrsta flughermisleik og sat hann öll kvöld og lék sér í honum. Árið 2001 byrjaði hann í flugnámi en lauk því ekki vegna anna. Þá var Benjamín, elsti sonurinn, vænt- anlegur í heiminn. „Að klára þetta hefur blundað í mér allar götur síð- an. Fyrir nokkrum árum fór ég að hugsa: Ef ég geri þetta ekki núna, þá geri ég þetta aldrei. Þess vegna dreif ég mig af stað og kláraði einkaflugmannsprófið og vegna þess að mér fannst þetta svo skemmtilegt tók ég atvinnuflug- mannsprófið líka.“ Arnþór kláraði námið árið 2018 og tók sér þá frí frá upptökum. Í mars síðast- liðnum fékk hann flug- mannsstöðu hjá flugfé- lagi í einkaflugi. Starfar hann núna jafnfætis í fluginu og upp- tökunum, viku og viku í senn. Ertu þá að fljúga poppstjörn- unum um heiminn? „Já, í nýja starf- inu hitti ég marga gamla vini og flýg með þá til Ibiza og á fleiri staði. Þeir vilja allir fljúga hjá mér,“ segir Arnþór og skellir upp úr. „Ég hef til dæmis verið að fljúga með fyrsta kollega minn, Christian, og hina strákana í Galantis.“ Að fljúga minni vélum er mjög hentug byrjun í fluginu. Arnþór er þó opinn fyrir því að fljúga stærri vélum og breiðþotum í framtíð- inni. „Þetta hentar mér mjög vel eins og þetta er. Ég bý í Solna, fimm mínútum frá flugvellin- um. Þetta er lítið og þægilegt, það væri miklu stærra batterí að fljúga fyrir SAS til dæmis. Þegar ég var yngri var draumurinn alltaf að fljúga fyrir Icelandair.“ Sonurinn samdi við Sony Arnþór á tvo syni, sá yngri heitir Jósef og sá eldri Benjamín. Benja- mín, sem verður brátt sautján ára, skrifaði nýlega undir útgáfusamn- ing í tónlist við Sony. „Hann byrjaði á þessu þegar hann var þrettán eða fjórtán ára gamall og hefur mestan áhuga á hip hop. Hann hefur verið að fá græjur lánaðar hjá mér til þess að búa til tónlist. Ungir strákar sem eru að framleiða sænskt hip hop tóku eftir því sem hann var að gera og vildu fá að taka upp með hon- um. Þetta verður einhvers konar blanda af hip hop og poppi.“ Ert þú ekkert að skrifa fyrir hann? „Nei. Ég hef hjálpað honum við ýmislegt, en hann er að gera þetta sjálfur. Hann spilar ekki á hljóm- borð og stundum biður hann mig að koma og spila. Hann tekur það síðan í sínar áttir.“ Það eru fleiri gleðifréttir af fjölskyldunni því að í ágústu munu Arnþór og Sharaeh Sophia Hosseini, unnusta hans, festa sitt ráð. Arnþór hefur áður verið giftur. Sharaeh er af írönsku bergi brotin, en flutti til Svíþjóðar tveggja ára líkt og Arnþór. Ræktið þið sambandið við Ís- land? „Já, við gerum það. Því miður tala strákarnir ekki íslensku og ég sé svolítið eftir því að hafa ekki talað meira við þá á íslensku. En þeir koma með mér til Íslands, oft- ast einu sinni á ári. Foreldrar mín- ir eru nú fluttir aftur til Íslands og strákarnir fara til þeirra í sum- ar. Strákarnir elska að koma til Ís- lands.“ Heldur meira með Íslandi en Svíþjóð Það er ekki hægt að sleppa Arn- þóri án þess að spyrja hann um Eurovision. Hann er jú milli steins og sleggju, verandi Íslendingur bú- settur í Svíþjóð. Eins og við vitum flest þá eru þetta tvær Eurovision- óðustu þjóðir álfunnar og Svíar vitaskuld margfaldir sigur vegarar. Hefur þú sent lag inn í keppn- ina? „Ég hef einu sinni samið lag fyr- ir vin minn sem heitir Darin, fyrir um það bil tíu árum. Lagið hafn- aði í þriðja sæti í keppninni hér, Melodifestivalen. Eurovision er auðvitað mjög skemmtileg keppni. John Lundvik, sænski keppandinn í ár, er góður vinur minn og hefur sungið demó-lög fyrir okkur. Þetta er hans fyrsta skipti og við erum mjög spennt fyrir hans hönd.“ Arnþór hefur einnig fylgst með Hatara, fulltrúum Íslendinga. Hvort heldur þú með Svíþjóð eða Íslandi? „Ég held alltaf með þeim sem gengur betur,“ segir Arnþór og flissar. „Ef sá sem ég held með fær fá stig skipti ég umsvifalaust um hollustu. En heilt yfir hef ég alltaf haldið meira með Íslandi en Sví- þjóð. Íslendingar hafa líka sent mjög mörg góð lög í keppnina.“ Hvernig heldur þú að Hatara muni ganga? „Þetta gæti orðið erfitt. Þetta er mjög athyglisvert framlag, bæði lagið og hvernig þetta er sett saman. Það sem mér finnst flott við atriðið er að þetta er öðruvísi og nýtt. Ég er hins vegar ekki viss um að áhorfendur geti skilið það jafn vel og við. Ég þurfti sjálfur að hlusta nokkrum sinnum til að átta mig á því. En ég vona að þeim gangi vel.“ n Í þessum bransa verður maður að læra listina að gera málamiðlanir Nokkrar af stjörnunum sem Arnór hefur samið fyrir Celine Dion, Carlos Santana, Britney Spears og Janet Jackson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.