Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐA Sandkorn 17. maí 2019 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Fréttastjóri: Kristinn Haukur Guðnason Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Fjölskyldan á rétt á því að vera saman E ftir aðeins nokkra daga á að vísa Mayeth Gudmundsson úr landi. Hún má ekki búa hérna, hún má ekki vinna hérna og, það sem mestu máli skiptir, hún má ekki vera hér með fjölskyldu sinni. DV greinir frá máli hjónanna Mayeth og Pjeturs Gudmundson í vikunni. Þau hafa verið gift í meira en áratug og eiga saman tíu ára gamla dóttur. Blönduð hjónabönd eru algeng hér á landi, þúsundir Íslendinga eiga erlenda maka. Öll þekkjum við einhvern sem er giftur útlendingi. Hentugleikahjónabönd eru vissu­ lega til en í þessu máli er auðsjáan­ lega ekki um það að ræða. Mayeth og Pjetur höfðu verið gift í tíu ár áður en þau ákváðu að búa sér heimili hér á landi. Það er innbyggt í okkur að fjöl­ skyldur eigi að fá að vera saman. Einhver mjög gild rök geti að­ eins gert það að verkum að fjöl­ skyldumeðlimum sé stíað í sundur af ríkisvaldinu; ofbeldi, glæpir eða eitthvað slíkt. Fjárhagsvand­ ræði ættu aldrei að vera nefnd í því samhengi. Frekar ætti ríkisvaldið að styðja við barnafjölskyldur. Við skulum ekki gabba okkur og halda að fjölskyldum hafi aldrei verið stíað í sundur vegna fjárhags. Í gegnum aldirnar þurfti fátækt fólk að gefa frá sér börnin og láta þau alast upp í fóstri. Stundum var börnunum dreift um sveitina af hreppnum og við skulum ekki halda að það hafi verið auðvelt fyrir foreldrana. Fátækum vinnu­ hjúum var gert ókleift að giftast þegar þau höfðu fest hugi saman. Þeim var meinað um þessa frum­ þörf mannsins, að finna maka og framlengja gen sín. Allt vegna pen­ inga. Útlendingastofnun hefur á sér slæmt orð fyrir seinagang og harðneskju í garð erlendra ríkis­ borgara. Þeir sem taka til varna fyrir stofnunina benda á að einungis sé verið að fylgja lög­ um og reglum. En í lögum eru oft gerðir fyrirvarar, til þess að mæta aðstæðum sem gætu komið upp. Það á sannarlega við í þessu til­ viki eins og DV greinir frá. Hægt er að víkja frá skilyrðum um trygga framfærslu, til að mynda á grund­ velli sanngirnisástæðna, en það er ekki gert í þessu tilviki. Heldur er ekki litið til Barnasáttmála Sam­ einuðu þjóðanna sem fullgiltur var á Íslandi árið 1992. Stendur þar í 7. grein: „Barn skal skráð þegar eftir fæðingu, og á það frá fæðingu rétt til nafns, rétt til að öðlast ríkisfang og eftir því sem unnt er, rétt til að þekkja foreldra sína og njóta um­ önnunar þeirra.“ Þetta er málið í hnotskurn. Fjölskyldan á rétt á því að vera saman. Ef stjórnvöld á Filippseyj­ um myndu taka sömu ákvörðun og Íslendingar, þá gæti fjölskyldan aldrei verið saman. Hvers vegna líta starfsmenn Útlendingastofnunar ekki á mál­ ið sem slíkt og íhuga hvort það sé sanngjarnt að vísa eiginkonu ís­ lensks manns og móður íslensks barns úr landi með valdi? Nógan tíma hafa þeir haft til að hugsa um þetta. n Rof milli Kristjáns og Bjarna Bjarni Benediktsson kaus gegn frumvarpi um þungunarrof sem samþykkt var í vikunni. Það gerði einnig Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson, en þeir tveir héldu um stjórnartaumana þegar vinnan að hinum nýju lögum hófst. Árið 2015 fól þáverandi heil­ brigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, sérfræðingum á þessu sviði að vinna að endur­ skoðun á lögunum. Nútíma­ legt sjálfræði kvenna var það sjónarmið sem átti að ráða för. Svandís Svavarsdóttir erfði frumvarpið og Kristján kaus vitaskuld með því. Sigmundur er að sjálfsögðu kominn í allt aðra stöðu í hinu pólitíska landslagi en súrt er fyrir Kristján að sjá formann sinn, Bjarna, ekki styðja við ráðherramálið sem hann fylgdi úr hlaði. Kínverjar vilja eitthvað í staðinn Kínverjar seilast nú til áhrifa á Íslandi og bjóða gull og græna skóga undir hinu hljómfagra heiti „Belti og braut.“ Verk­ efnið nær til fjölda landa í Asíu, Afríku og Evrópu og vilja Kínverjar styrkja innviði af ýmsum toga, svo sem vega­ gerð, hafnargerð, flugvallagerð og lagnir ljósleiðara. Opinbera skýringin er sú að opna leið­ ir austur til Kína en ekki er allt sem sýnist. Um margra ára skeið hafa Kínverjar seilst til áhrifa í Afríkuríkjum. Mokað þangað peningum til innviða­ uppbyggingar og sett upp fyrir­ tæki. Eru þeir þá í góðri stöðu til að fá viðskipti og aðgang að miklum, náttúruauðlindum álf­ unnar. Líkt og í fangelsunum, ef einhver gefur þér gjöf, þá vill hann eiga inni greiða. Spurning vikunnar Í hvaða sæti hafnar Ísland í Eurovision? „Trúlega öðru sæti.“ Margrét Jörgensen „Við vinnum þetta.“ Árni Þór Guðjónsson „Við lendum í sjötta sæti.“ Ágúst Baldursson „Fyrsta held ég.“ Guðrún Margrét Bjarnadóttir „Hvers vegna líta starfs- menn Útlendingastofn- unar ekki á málið sem slíkt og íhuga hvort það sé sanngjarnt að vísa eiginkonu íslensks manns og móður íslensks barns úr landi með valdi? Leiðari Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Á leið í Hörpu Íslenski sumarklæðnaðurinn kemur sér vel. MYND: HANNA/DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.