Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 27
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ Opnar dyrnar fyrir nýjan markað Miklar breytingar hafa átt sér stað í MD Vélum ehf. síðustu tvö árin. „Í stað þess að þjóna eingöngu sjávarútveginum höfum við fært út kvíarnar yfir í byggingargeir- ann og fleira. Þetta hefur gerst með nýjum umboðum, vörum og breyting- um hjá rótgrónum birgjum,“ segir Laila Björk Hjaltadóttir, fjármála- og viðskiptastjóri MD Véla. Vararafstöðvar í gámum MD Vélar hafa verið með umboð fyrir Mitsubishi frá stofnun fyrirtæk- isins árið 1990. Frá upphafi hafa öll samskipti MD Véla við Mitsubishi farið í gegnum aðalskrifstofuna í Almere í Hollandi og þaðan hafa allar vörur og þjónusta komið. Nú eftir áramót breyttist fyrirkomulagið með tilkomu nýs útibús Mitsubishi í Noregi, sem mun framvegis sinna MD Vélum. „Með þessum breytingum hjá Mitsubishi getum við nú boðið upp á heila véla- pakka frá einum birgja og vararaf- stöðvar tilbúnar til uppsetningar eftir óskum viðskiptavinarins. Þá er t.d. hægt að fá rafstöðvarnar innbyggðar í gámum með olíutanki undir og fleira. Þetta opnar nýjar dyr fyrir okkur og höfum við t.d. verið að fá fyrirspurnir frá orku- og gagnaverum. Við erum hæstánægð að geta núna sinnt þessum markaði enn betur.“ MD Vélar hafa sérhæft sig í sölu þenslutengja í gegnum árin. „Nú hefur úrvalið breikkað mjög mikið,“ segir Laila og bætir við: „Okkar birgir er VM Kompensator í Danmörku og þeir eru með gúmmí-, stál- og veftengi. Gúmmítengin er frá hinum þekkta framleiðanda Trelleborg sem er vott- aður og þekktur fyrir gæði.“ Stál- og veftengin eru framleidd í Danmörku og eru sérhönnuð eftir pöntunum. Stáltengin er hægt að fá í stærðum DN 25–DN 5000. „Dönsku tengin eru í hæsta gæðaflokki. Tengin eru ekki bara með eitt lag af stáli, eins og hjá mörgum öðrum fram- leiðendum, heldur minnst tvö lög. Öll tengin eru sömuleiðis virkjuð með því að teygja og pressa þau áður en þau eru send frá verksmiðju. Með þessari meðferð virkjast allar bylgjur á tenginu. Hreyfingin dreifist á allar bylgjurnar undir álagi, en ekki bara þessar fyrstu 1–2 eins og oft gerist. Tengin hafa því mun meiri endingar- tíma og eru öruggari. Einnig býður fyrirtækið upp á veftengi sem eru notuð þegar þrýstingur er lágur, t.d. í loftræstikerfum. Tengin má hanna þannig að þau þoli mjög sterk efni og allt upp að 1.000°C hita. VM Kompensator býður einnig upp á þjónustu þar sem starfsmenn þess koma á staðinn, mæla allt upp og hanna svo tengin út frá aðstæðum á staðnum. Við komum líka og setjum upp tengi sé þess óskað. Nýverið voru t.d. menn frá Danmörku uppi í Kölku, sorpeyðingarstöð í Reykjanesbæ, að setja upp tengi sem leiða í brennslu- ofna og þola allt að 1.000 gráður.“ Nýjasta umboð MD Véla er MetraFlex, staðsett í Chicago, sem framleiðir einnig þenslutengi. Tengin hafa einstakan hreyfanleika allt upp í +/-24 tommur og fást fyrir ýmsa miðla. Einnig fást þau sérhönnuð fyrir eldvarnarkerfi. Tengin geta tekið á sig mjög mikla hreyfingu og henta því sérstaklega vel á jarðskjálftasvæðum eins og t.d. Íslandi. „Ég var nýverið í Madrid til að ganga frá einkaumboði á þessum tengjum og öllum vörum þessa fyrirtækis í Evrópu. Þetta eru mjög spennandi tímamót og er sam- starfið strax farið að skila sér bæði á Íslandi og á meginlandinu. Aðrar vörur sem þeir framleiða eru t.d stálbarkar til að tengja saman ofna í byggingum. Þetta er nokkuð sem hótel hafa verið að óska eftir, en þau glíma við það að ef hótelgestur rekst utan í ofn í einu herbergi þá berst hljóðið í næsta herbergi. Svona tengi tekur titringinn og dempar þar með hljóðið. Við erum með breitt birgjanet og getum boðið upp á mjög fjölbreytt- ar vörur og lausnir. Við erum spennt fyrir framtíðinni og erum alltaf að bæta við okkur,“ segir Laila og hvetur alla til að fylgjast með heimasíðunni mdvelar.is og Facebook-síðu MD Véla: MD Vélar ehf, þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar um fyrirtækið og fylgjast með því sem er að gerast. MD VÉLAR:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.